Morgunblaðið - 20.09.2018, Page 54

Morgunblaðið - 20.09.2018, Page 54
54 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018 ✝ Haraldur GísliSigfússon fæddist að Stóru- Hvalsá í Hrútafirði í Strandasýslu 21. september 1925. Hann lést á hjarta- deild Landspítal- ans við Hringbraut 11. september 2018, eftir skamma sjúkrahúslegu. Foreldrar hans voru hjónin Sigfús Sigfússon bóndi, f. 7. ágúst 1887 að Eyj- um í Bjarnarfirði á Ströndum, d. 29. janúar 1958, og Kristín Gróa Guðmundsdóttir hús- móðir, f. 8. október 1888, d. 15. febrúar 1963. Haraldur var einn af 14 systkinum og eru tvö þeirra enn á lífi. Þau eru: Guðmundur, f. 1912, Hans Hallgrímur, f. 1913, Lárus, f. 1915 og er enn á lífi, Anna Helga, f. 1918 og er einnig ennþá á lífi, Steingrímur Matthías, f. 1919, Salóme, f. 1920 lést á fyrsta ári, Guðrún Sigríður, f. 1921, Eiríkur, f. 1923, Garðar, f. 1924, Haraldur Gísli, f. 1925, Sólbjörg, f. 1927, Guðbjörg María, f. 1929, Sal- óme Sigfríður, f. 1932, og Þor- björn Sigmundur, f. 1934. Haraldur giftist 21. septem- ber 1950 Ragnheiði Jóhannes- Harald Gísla, f. 14.8. 1989, maki Stella Stefánsdóttir. Langafabörnin eru 14; sex drengir og átta stúlkur á aldr- inum 10 daga til 16 ára. Haraldur ólst upp á Stóru- Hvalsá fyrstu árin við öll al- menn sveitastörf. Upp úr ferm- ingu fór hann að vinna við vegavinnu á sumrin. Í byrjun stríðs þegar hann ætlaði að halda áfram námi við Reykja- skóla var skólinn hersetinn, sem kom í veg fyrir frekari skólagöngu sem nokkru næmi. Um tvítugt keypti hann vörubíl og árin þar á eftir var hann mest í vegavinnu í Skagafirði. Árið 1946 fluttist hann til Reykjavíkur og vann við ýmis störf en fór síðan að aka leigu- bíl vorið 1948, sem varð að- alstarf hans allt til ársins 2000. Fyrst var hann á Litlu bílastöð- inni en frá 1951 og eftir það hjá Hreyfli og var þar alla tíð í ýmsum félagsstörfum, söng, nefndum og ráðum. Árið 1978 og árin þar á eftir lærði hann píanóviðgerðir og stillingar hjá Pálmari Ísólfssyni og vann síð- an við það í aukavinnu eftir það, allt fram á síðustu ár. Árið 1948 kynntist hann eiginkonu sinni og keyptu þau fyrstu íbúð sína á Grettisgötu 16b. Haustið 1958 fluttu þau inn í nýja íbúð að Álfheimum 44 og bjó Haraldur þar til ævi- loka. Útför Haraldar fer fram frá Langholtskirkju í dag, 20. september 2018, og hefst at- höfnin klukkan 13. dóttur, f. 30. desember 1919, d. 4. ágúst 2010, hús- móður í Reykjavík, f. að Svínhóli í Dalasýslu. Börn þeirra eru: 1) Hreinn Haralds- son, f. 24.6. 1949, fv. vegamálastjóri, eiginkona hans er Ólöf Erna Adams- dóttir, f. 22.2. 1952, kennari og leiðsögu- maður. Þau eiga þrjú börn; Guðrúnu Rögnu, f. 25.11. 1975, Hjördísi Láru, f. 18.2. 1979, maki Bragi Ólafsson, og Hjalta Þór, f. 1.3. 1984, maki Fanný Rut Meldal. 2) Hanna Dóra Haraldsdóttir, f. 30.1. 1951, bókari, eiginmaður hennar er Bjarni Jón Agnarsson, f. 25.4. 1950, rafeindavirki. Þau eiga tvo syni; Róbert Viðar, f. 19.7. 1972, maki Guðný Maren Vals- dóttir, og Harald Agnar, f. 5.5. 1975, maki Hanna Signý Guð- mundsdóttir. 3) Sigfús Birgir Haraldsson, f. 18.8. 1954, bif- vélavirki, eiginkona hans er Hanna Jóhannsdóttir, f. 11.10. 1954, sjúkraliði. Þau eiga þrjú börn; Hafdísi Eddu, f. 5.11. 1974, maki Halldór Björnsson, Heiðu Hrönn, f. 17.7. 1980, maki Jón Þór Önundarson, og Elsku pabbi, það er svo margs að minnast þegar kveðjustundin rennur upp. Ég á svo margar dýrmætar minningar um þig eft- ir langa samveru frá barnæsku til dauðadags. Fyrstu minningar mínar eru frá æskuheimilinu á Grettisgötu, þegar þú sast á rúmstokknum á hjónarúminu meðan mamma var að ljúka við að elda kvöldmatinn. Þú spilaðir öll fallegu lögin sem þú elskaðir á harmonikkuna og við börnin kúrðum í rúminu og hlustuðum á þig spila og dilla þér eftir tónfallinu. Þú varst leigubílstjóri mestall- an þinn starfsaldur og vannst alltaf mikið. Þú fórst út snemma á morgnana og komst heim seint á kvöldin og undir morgun um helgar. Mamma var heima og sá um bú og börnin þrjú en þú komst alltaf heim í mat. Þið keyptuð síðar íbúð í Hreyfils- blokkinni í Álfheimum og þú tókst þátt í byggingarvinnunni og man ég eftir þér að hlaða upp múrsteinum í vegg á milli eld- húss og stofu. Einu sumarfríin sem þú tókst var að skreppa nokkra daga á ári í heimsóknir í Skrúð til Önnu systur þinnar, vestur í Dali á æskuslóðir mömmu og norður í Hrútafjörð á þínar æskustöðvar. Við Hreinn vorum mjög ung þeg- ar við vorum svo heppin að fá dvöl í sveit á sumrin, ég vestur í Dölum og Hreinn norður í Hrútafirði. Eftir það voru ferð- irnar ykkar mömmu og Bigga, litla bróður, farnar til að keyra okkur og sækja í sveitina. Þér var alltaf svo umhugað um bílana þína að þú fórst strax við komuna í Dalina niður að Miðá til að þvo bílinn þinn. Síðan fórstu í Hrúta- fjörðinn og fékk ég að fara með. Meðan Kristín amma var á lífi dvöldum við hjá henni í gamla húsinu á Stóru-Hvalsá og þá fórstu alltaf með okkur krakkana niður í fjöru og sagðir okkur sög- ur frá því þegar þú lékst þér þar sem lítill strákur. Við fórum síð- an að Kolbeinsá að hitta bróður þinn og hans fjölskyldu og var mikið talað. Árið 1974 var hringvegurinn opnaður og þú bauðst okkur Bjarna og Róberti með ykkur mömmu í ferð hringinn í kring um landið. Við fórum norðurleið- ina, en það fór að rigna mikið þegar við vorum komin upp á Hérað og þú vildir drífa þig í bæ- inn og dagarnir sem það tók þig að aka hringinn voru bara þrír. Þú keyrðir hringinn aldrei aftur. Þegar við börnin vorum upp- komin fóruð þið mamma í ýmis ferðalög erlendis, bæði tvö ein og með okkur fjölskyldunni. Barna- börnin voru alltaf svo ánægð þegar þið voruð með okkur í frí- um. Þið voruð mjög ánægð með af- komendahópinn ykkar og þú sagðir oft hvað það gleddi þig að ættinni skyldi vera haldið við. Þið mamma voruð alltaf tilbúin að passa fyrir okkur og var þá spil- að á spil, þú lékst á píanóið og mamma bakaði pönnukökur. Þegar mamma veiktist hættir þú leigubílaakstrinum og sinntir henni vel, en gafst þér samt tíma til að sinna píanóstillingum og hestamennsku þegar færi gafst. Þegar mamma dó fyrir átta árum varð mikil breyting á lífi þínu. Þú tókst því með æðruleysi og varst duglegur að taka þátt í félagsstarfi aldraðra til síðasta ævidags og bjarga þér sjálfur með heimilisstörfin. Elsku pabbi, ég vil fyrir hönd fjölskyldunnar þakka þér fyrir allt sem þú varst okkur og bið góðan guð að blessa þig. Hanna Dóra Haraldsdóttir. Lifðu lífinu lifandi! Þau orð áttu svo sannarlega við um minn elskulega tengdapabba Harald Sigfússon, sem skipaði svo stór- an sess í lífi okkar hjóna. Birgir og pabbi hans voru í góðu sam- bandi nánast daglega um tugi ára. „Hvernig ertu í dag?“ „Bara nokkuð góður,“ var oftast svarið. Sjaldnar var svarið: „Ég var nú hálflélegur í morgun, en fór nú samt í matinn í hádeginu á Vita- torg,“ en þannig var einmitt svarið hjá Halla þennan sunnu- dag, 9. september sl. Alltaf spurði hann hvað væri að frétta af okkur fjölskyldunni. Jú, þenn- an daginn voru það góðar fréttir, lítil langafastelpa hafði fæðst um nóttina, og var hann aldeilis glað- ur að heyra af því. Þessi einstaki Strandamaður var nú helst lítið heima hjá sér nema yfir blánóttina. Var farinn út á miðjum morgni alla daga, því hann sótti svo mikið í félagsskap við aðra, var fljótur að kynnast fólki og elskaði að spjalla um heima og geima. Hann hafði gaman af að spila á spil með fólk- inu í Langholtskirkju og á Vita- torgi. Halli keypti sér nýjan bíl fyrir stuttu og var hann aldeilis ánægður með að fá sér að þessu sinni bíl með bakkmyndavél, annars hafði hann íhugað að fá sér rafmagnsbíl, sem því miður gekk ekki upp í hans tilfelli þar sem hann bjó í fjölbýlishúsi. Halli var í leigubílaakstri hjá Hreyfli lengst af og söng þar bæði í kór og kvartett. Hesta- mennsku stundaði hann alla tíð og bæði byggði sér hesthús og keypti önnur. Birgir og Heiða barnabarn Halla voru einnig með honum í hestamennsku núna á seinni árum. Tengdapabbi var mikið í ýmsum félagsstörfum alla tíð og hin síðari ár einnig mikið í píanóstillingum og píanóviðgerð- um. Margar ferðir fórum við fjöl- skyldan með þeim hjónum Halla og Rögnu, bæði innanlands og utan, og eigum við margar góðar minningar um þær ferðir. Hann naut þess að ferðast og merkilegt hvað hann gat gert sig skiljanleg- an í hvaða landi sem var. Mikið var nú gaman að fylgjast með honum þegar götusalar voru að reyna að pranga inn á hann ein- hverju dóti, t.d. dúkum, og hafði hann mikið gaman af að prútta við sölumennina, oft með miklum handahreyfingum, þótt hann tal- aði alltaf aðeins sitt „ástkæra yl- hýra mál“. Honum tókst oft að lækka verðið svo mikið að sölu- menn fengu oft lítið sem ekkert fyrir sitt, þegar vel tókst til hjá Halla. En hvað hann var oft skemmtilegur að ferðast með. „Afi í Álfheimum“ eins og hann var alltaf kallaður af barna- og barnabarnabörnum sínum var nær alltaf hress og skemmtileg- ur, spilaði á píanó og söng, var mikill gleðigjafi og var elskaður og dáður af okkur öllum og hvar sem hann kom. Halli var engum líkur. Blessuð sé minning Halla og Rögnu, sem ég trúi að hafi tekið vel á móti bónda sínum. Hanna Jóhannsdóttir (Lilla). Haraldur tengdapabbi minn var ekki alveg tilbúinn í þessa ferð. Hann átti sitthvað ógert enda lífsviljinn einlægur. Halli var fremur gefinn fyrir framfarir en kyrrstöðu, var glaðbeittur og hress í bragði. Hann var ævin- lega maður samstöðunnar, hvort sem vinnufélagar áttu í hlut eða fjölskylda. Halli ólst upp á Ströndum, fað- irinn frá Bjarnarfirði sem fann sína konu og gott jarðnæði sunn- ar, á Stóru-Hvalsá í Hrútafirði. Heimilið var stórt og vinna barna við bústörfin sjálfsögð. Sýsl og stundum basl og Haraldur tíundi í röðinni af 14 systkinum. Börnum og unglingum nú- tímans þætti tæpast fýsilegt að skera mó í eldinn, róa til fiskjar og vitja hrognkelsa- eða silungs- neta, veiða sel og lunda og sinna dúntekju. Leikföngin voru líf- ræn. Horn og skeljar. Matseðill- inn var líka með öðrum brag. Saltaður fiskur, selkjöt nýtt og saltað, reyktur matur, sjófugl og egg þeirra, súrmatur af fjöl- breyttara taginu en vissulega ný- meti inn á milli. Skepnufóður, svo sem söltuð síld, þótti krökkunum lostæti. Og svo var það tunnan með léttsaltaða sellýsinu. Í hana sóttu þau og fengu sér sopa, eins og eina öðuskel, um leið og lýsinu var bætt í heyið. Gríðarleg hlunnindi voru af reka, en það kostaði erfiði að sækja hann og vinna. Heimilislífið á Stóru-Hvalsá var oft fjörlegt. Tónlist og söngur hljómaði um bæinn. Það var allt- af stutt í nikkuna, enda margir liðtækir á því sviði. Þannig var bernskan líka blíð og „mikið var gaman að því“. Halli gerði mikilvæg fyrstu kaup á fararskjóta eftir ferm- ingu. Það var hesturinn Gráni, sem kostaði 120 kr. og reyndist honum vel árum saman. Þá ætl- aði Halli í Héraðsskólann á Reykjum, hinum megin fjarðar. Hann þurfti þó að sækja um lán í Sparisjóðnum fyrir vistinni – en lánsbeiðninni var hafnað. Árið eftir var Ísland hernumið og Reykjaskóli orðinn að fjölmennri varðstöð með mörgum bröggum og sjúkraskýli – og ekkert nám í boði fyrir unga fólkið í sveitinni. Hernámsárin breyttu lífinu í landinu. Halli vann ýmis störf og árið 1945 keypti hann sinn fyrsta – en ekki síðasta – bíl. Það var Ford-vörubíll, árgerð 1931 og kostaði 8.000 kr. Það var drjúgt dagsverk að keyra bílinn norður, en hafðist. Því miður kviknaði í vörubílnum nokkrum mánuðum síðar og Halli missti aleiguna. Síðar meir varð atvinnutækið leigubíll á Hreyfli. Hann var 74 á stöðinni. Halli kynntist Rögnu sinni og hóf baráttu fyrir öruggu og góðu húsnæði fyrir fjölskyld- una. Árið 1958 fluttu þau í „bíl- stjórablokkina“ í Álfheimum 44. Halli átti djúpar rætur og sterk tengsl við frændfólkið norður í Hrútafirði og styrkti þau með því að senda elsta son- inn þangað í sveit um árabil. Það hefur verið gefandi að eiga samleið með Halla og taka þátt í áhuga hans á lífi og fram- förum fjölskyldunnar. Síðustu langferðina fórum við í ágúst til Akureyrar. Á heimleiðinni ók Halli frá Hrútafirði til Reykja- víkur. Þótti honum sú leið nú margfalt styttri en þegar hann fór norður með gamla Fordinn. Ég er afar þakklát fyrir langa og góða samfylgd með Halla mínum. Ólöf Erna. Það er ljúfsárt að hugsa til þess að við munum ekki líta aftur inn hjá Halla afa í Álfheimum. Þar leið okkur alltaf vel, enda hlýjar móttökur og ætíð leitast við að stjana við okkur og okkar fjölskyldur. Það koma upp í hug- ann svo margar góðar minning- ar; næturgistingar hjá afa og ömmu, hlusta á plötur í horninu undir glugganum, leikur í hveiti- og sykurskúffum, leikur með lest og fótboltaspil, jólaboð, eldhús- spjall og ís – sem mátti alltaf treysta á að væri til. Og þarna leið afa og ömmu líka vel. Afi, sem alltaf var svo glaðlyndur og brosmildur, bjó heima þar til hann lést, tæplega 94 ára gamall. Hann var sjálfstæður og dugleg- ur og hafði ótrúlega orku þrátt fyrir að vera kominn á háan ald- ur, enda langlífi algengt í fjöl- skyldu hans. Það var fallegt að sjá hversu vel hann hugsaði um ömmu í veikindum hennar, og að fylgjast með honum eftir andlát hennar með lífsvilja og gleði allt til loka. Afi hafði alltaf mikinn áhuga á bílum og keypti nýjan bíl fyrir fá- einum vikum sem hann var stolt- ur af og ánægður með. Hann starfaði sem leigubílstjóri í rúm- lega 50 ár og bílar voru því mikil- vægur hluti af lífi hans. Ávallt var hann áhugasamur um okkar bíla, boðinn og búinn að aðstoða og ráðleggja þegar kom að við- gerðum eða öðru sem sneri að bílamálum barnabarna sinna. Hestamennska var annað áhugamál afa. Þegar við vorum yngri fórum við stundum með honum að líta eftir hestunum, gefa þeim brauð og jafnvel á bak. Afa þótt vænt um hestana sína og sinnti þeim af alúð alla tíð. Halli afi hafði góðan húmor og smitandi hlátur, var skemmtilega stríðinn, ófeiminn og bráðhnytt- inn og gladdi svo marga í kring- um sig með glaðværð sinni. Hann var músíkalskur, spilaði til dæm- is á píanó og harmónikku, söng og samdi tónlist. Hann lærði píanóstillingar og -viðgerðir og í seinni tíð undi hann sér vel í því að gera upp píanó. Það má segja að tónlist hafi spilaði stóran þátt í ævi hans. Hann settist reglulega við píanóið þar sem hann spilaði ýmis falleg lög, til að mynda eftir sjálfan sig og Steingrím bróður sinn. Það eru dýrmætar minn- ingar sem við eigum um afa við píanóið þar sem hann naut sín svo vel. Nú er afi kominn til Rögnu ömmu. Söknuður okkar systkina er mikill en við erum þeim ævin- lega þakklát fyrir dýrmætar samverustundir, hlýja nærveru og umhyggju. Blessuð sé minning elsku Halla afa. Guðrún Ragna, Hjördís Lára og Hjalti Þór. Elskaði yndislegi afi minn. Ég get ekki komið því í orð hvað mér þykir vænt um þig og hvað ég er þakklát fyrir allar okkar stundir fyrr og síðar. Það er sárt að kveðja þig minn kæri og við sem eftir sitjum þurfum að horfast í augu við veruleikann án þín, það mun án efa reynast okk- ur mörgum erfitt. Þú varst stór- brotinn persónuleiki og mikill gleðigjafi, svo hér hefur myndast mikið tómarúm, stórt gat í til- veruna. Ekkert verður eins og áður. Ég á erfitt með að gera upp á milli minninganna því allar eru þær mér svo kærar. Úr Álfheim- unum, á ferðalögum okkar vítt og breitt innanlands og utan og svo allar ómetanlegu stundirnar þeg- ar þú heimsóttir mig austur fyrir fjall. Við áttum óteljandi sam- verustundir í gleði og sorg. Þú varst svo skemmtileg og ljúf blanda og kunnir svo vel að njóta stundarinnar, ég virkilega dáði þig afi minn. Þú barst þig alltaf svo vel þrátt fyrir ýmsa kvilla sem herjuðu á þig. „Hvern- ig ertu afi minn?“ spurði ég þig gjarnan, það stóð ekki á svari sem var langoftast: „Ég er bara nokkuð góður.“ Tónlist og hestar færðu þér sérstaka og ómælda hamingju, tónlistin var þér í blóð borin og það var yndislegt að fylgjast með þér hvernig þú gast horfið inn í heim tónlistarinnar, lést ekkert trufla þig og leyfðir okkur svo oft að njóta með þér. Hestarnir voru svona svipað dæmi, þú fórst í annan heim, þú gast kallað hest- ana þína til þín úr órafjarlægð í haga, þótt þú hefðir ekki komið við lengi, en það var líka boðið upp á dekur, hestabrauð og þá helst mikið af rúgbrauði það þótti best og svo klór á góða staði. Þú hafðir áhuga og skoðun á flestu og fylgdist alltaf vel með fréttum, endalaust gat maður flett upp í þér. Breiddir alltaf báða vængina yfir okkur ungana þína og ræktaðir alla vel. Frænd- rækinn, vinamargur og vinsæll varstu afi minn og ég man hvað ég var alltaf stolt að fá að fylgja þér. En síðasta stefnumót okkar 16. ágúst síðastliðinn er mér af- skaplega dýrmætt, ég hafði verið að sinna erindum í höfuðborginni á sólríkum og fallegum degi og datt í hug að heyra í þér og bjóða þér út að borða. Við höfðum haft frekar fáar stundir í sumar og ég saknaði þín. Þá var minn maður búinn að setja kartöflurnar yfir klukkan 17.20 og það var glæný lúða á leið í pott, ég bauð mér í mat til þín og við áttum himneska stund í eldhúsinu í Álfheimunum. Á eftir skelltum við okkur svo í bíltúr, það var klassískt hjá okk- ur þetta kvöld, ísbúðin, til ömmu í kirkjugarðinn og rúntuðum svo í kvöldsólinni út á Gróttu, rædd- um málin, montuðum okkur á nýju bílunum okkar og áttum virkilega notalega stund. Ég er svo þakklát fyrir hvað þið Dóri minn kunnuð alltaf vel að meta hvor annan og voruð miklir vinir, það var alltaf hlegið og gert grín. Stelpurnar mínar eiga svo ljúfar og skemmtilegar minningar um langafa sinn sem var alltaf til í að hafa gaman. Við dáðum þig öll. Ég ætla að horfa fram á veg- inn og fagna lífinu og gleðinni eins og þú kenndir mér. Takk fyrir allt, elsku afi minn, þú varst mér ómetanlegur í alla staði og munt ávallt eiga sérstak- an stað í hjarta mínu. Þín Edda. Nú ertu farinn frá okkur, elsku afi, og verður sárt saknað. Þú gafst okkur svo margt og þú varst alltaf svo jákvæður, hress, svo réttsýnn og duglegur – þú ert okkur öllum frábær fyrirmynd. Tónlistin spilaði stórt hlutverk í lífi þínu og þú smitaðir mig snemma af þeim áhuga. Ein af fyrstu minningum mínum er að hlusta á þig spila á píanóið í Álf- heimunum og ég að reyna að glamra á það eftir á. Sem barn var ég líka heillaður af aðferðum þínum við píanóstillingar og tækjum og tólum tengdum því. Ég var oft í pössun hjá ykkur elsku ömmu og ég á margar góð- ar og hlýjar minningar frá þeim tíma. Það var alltaf gleði hjá fjöl- skyldunni þegar þú spilaðir undir söng á píanó eða harmónikku. Ættarmót Stóru-Hvalsárættar á Borðeyri árið 2015, þar sem mik- ið var sungið, ýtti mér í það að Haraldur Gísli Sigfússon Sonur minn og bróðir okkar, EYJÓLFUR VILHELM BÖÐVARSSON Víkurgrund 1a, Kjalarnesi, lést á heimili sínu miðvikudaginn 29. ágúst. Útför hefur farið fram. Anna Margrét Sigurðardóttir Sigríður Böðvarsdóttir Guðlaug Böðvarsdóttir Halldóra Böðvarsdóttir Jón Ingvason og aðrir aðstandendur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.