Morgunblaðið - 20.09.2018, Page 56

Morgunblaðið - 20.09.2018, Page 56
56 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018 ✝ HrafnhildurMagnúsdóttir fæddist í Reykjavík 18. febrúar 1938. Hún lést á Landa- koti 7. september 2018. Foreldrar henn- ar voru Guðbjörg Erlendsdóttir hús- freyja, f. 17. nóvem- ber 1901, d. 17. nóvember 1991, og Magnús Pálmason bankaritari, f. 15. júní 1897, d. 28. nóvember 1985. Systur Hrafnhildur eru Erla, f. 27. september 1927, Sigurbjörg, f. 1. ágúst 1926 og Kristín Jórunn, f. 16. maí 1925, d. 3. mars 2018. Hrafnhildur giftist Páli Guðmundssyni, húsgagnasmiði og innanhússarkitekt, 8. septem- ber 1962. Börn þeirra eru: 1) Guðmundur Pálsson, f. 25. maí 1963, maki Ragnheiður Þóra Kolbeins, f. 1. apríl 1966. Dóttir þeirra er Rósa Guðbjörg f. 12. október 2004. Börn Guðmundar eru Hrafnhildur Eva, f. 23. ágúst 1987, maki Hjalti Andrés Sigur- björnsson f. 10. nóvember 1987, dóttir þeirra er Heiða Margrét, f. 15. febrúar 2018, og Gunnar, f. 19. maí 1988, maki Alma Rún Vignisdóttir, f. 26. nóvember 1990, dóttir þeirra er Kría, f. 19. jan- úar 2017. Fóstur- dóttir Guðmundar er Aldís Margrét Bjarnadóttir f. 4. júní 1982. 2) Auður Pálsdóttir, f. 21. febrúar 1965, maki Ingólfur Ásgeir Jó- hannesson, f. 1. apr- íl 1954. Börn Auðar eru Páll Ágúst Þór- arinsson, f. 29. janúar 1995, og Bjargey Þóra Þórarinsdóttir, f. 7. október 1998. 3) Guðbjörg Pálsdóttir, f. 6. janúar 1966, dóttir hennar er Auður Páls- dóttir f. 17. ágúst 2006. Hrafnhildur var fædd og upp- alin á Karlagötu 14 í Reykjavík. Hún lauk gagnfræðaprófi og fór stuttu síðar til Bandaríkjanna. Eftir heimkomu vann hún í Sjúkrasamlaginu en meginhluta starfsævinnar vann hún í Verzl- unarbankanum, sem síðar varð hluti af Íslandsbanka. Hrafnhild- ur vígðist í Oddfellow-regluna 1987, var kölluð í búðir 1997 og var virkur félagi um langt ára- bil. Útför Hrafnhildar fer fram frá Bústaðakirkju í dag, 20. september 2018, og hefst athöfn- in klukkan 15. Í dag kveðjum við móður okkar með miklum söknuði. Hún sigldi frá ströndinni sem við stöndum á í átt að sjóndeild- arhringnum, að strönd sem við sjáum ekki en vitum að er þar. Hún náði þar landi hinn 7. september síðastliðinn. Mamma var skörp kona og sterk og átti marga vini. Á upp- vaxtarárunum voru líka vinir okkar systkina ávallt velkomnir og alltaf tekið vel á móti þeim. Mamma var ekki strangur upp- alandi nema kannski helst þeg- ar kom að heimanáminu, þá var enginn afsláttur gefinn. Þannig var hún í senn hlý en staðföst, allt eftir því hvað var okkur fyrir bestu. Þá var hún líka akkúrat í fjármálum, sérstak- lega þegar kenna átti okkur að fara með peninga. Mamma var alltumvefjandi húsmóðir sem kunni og gat það sem þurfti til að reka fallegt heimili. Hún hafði ávallt góða yfirsýn yfir hlutina og vildi vita hvað væri fram undan. Þá reyndi hún stöðugt að kenna okkur mikilvægi þess að ganga alltaf snyrtilega um og koma öllu á sinn stað. Það hefur misjafn- lega lærst. Hún vildi alltaf vita af okkur, hvernig við hefðum það og hvort hún gæti hjálpað okkur. Við munum vel að á meðan við bjuggum heima var sama hve seint við komum heim, þá var algert prinsipp að segja góða nótt svo eftir væri tekið og læðast svo upp á ris í okkar rúm. Í því fólst traust sem við lærðum af. Mamma var hreinskilin kona sem gat sagt hlutina á umbúða- lausan hátt án þess að nokkur móðgaðist. Gaman var að ræða við hana pólitík enda fylgdist hún alltaf vel með og alla tíð máttu sjálfstæðimenn vita af öruggum stuðningi hennar. Mamma kenndi okkur að sinna hverju verki af metnaði, alúð og natni, eins og hún sagði, því þá hefðu verkin allt annað yfirbragð. Þar var hún skýr fyrirmynd. Svo þegar við höfð- um gert okkar besta var hún óspör á hrósið og það hve stolt hún væri af okkur. Við tökum það með okkur. Mamma var líka mikil og flink handavinnukona sem sést á útsaumsveggteppunum og öll- um lopapeysunum sem hún gerði. Hún var vandvirk og metnaðarfull og lagði ríka áherslu á að allt sem við tækj- um okkur fyrir hendur gerðum við vel og vandlega. Mamma lagði mikið upp úr fjölskyldunni og að við stæðum alltaf saman og minnti okkur reglulega á að fólk er ólíkt og það væru fjölskyldumeðlimirnir líka. En forgangsröðunin var skýr. Fjölskyldan kemur fyrst af öllu. Þetta höfum lært að skilja og erum þakklát fyrir. Mömmu fannst mikilvægt að börn væru alin upp við að gera sér dagamun, kunna að fara út að borða, viðhafa fallega borð- siði og sýna kurteisi. Hún hafði lag á að létta stemninguna og fannst gaman að hafa góðan mat, fá gesti og kæra sig koll- ótta um að „bara henda öllu út um gluggann“. Þetta fylgir okk- ur, þetta að sjá það jákvæða í öllu og öllum og njóta augna- bliksins. Mamma trúði því að við myndum skilja hvað væri rangt og hvað væri rétt, hvað væri gott og hvað ekki, en á meðan við værum öll á sömu blaðsíðu, gætum talað saman af hrein- skilni, þá færi allt vel. Fyrir það þökkum við. Við kveðjum mömmu með söknuði, en líka þakklæti fyrir að hafa komið okkur til manns. Guðmundur, Auður og Guðbjörg Í dag kveðjum við litlu syst- ur okkar og það er okkur erfitt. Það eru ekki nema rétt um sex mánuðir frá því að við kvöddum elstu systur okkar hana Kiddý og nú er sú yngsta farin. Hrafnhildur var mikill gleði- gjafi og alltaf skemmtilegt í kringum hana. Það verður mik- ið tóm sem hún skilur eftir og eigum við systur eftir að sakna þess mikið að heyra ekki í henni. Við þökkum henni öll góðu árin sem við áttum saman og biðjum góðan Guð að blessa hana. Sigurbjörg (Bíbí) og Erla. Það eru rétt rúm fimmtán ár frá því ég kynntist tengdamóð- ur minni, Hrafnhildi Magnús- dóttur. Okkur samdi vel, vorum ekki alltaf sammála um hlutina enda höfðum við báðar ákveðnar skoðanir á lífinu og tilverunni. Hrafnhildur bar ætíð hag fjölskyldu sinnar fyrir brjósti og var sannur áhrifa- valdur á alla fjölskyldumeðlimi. Hrafnhildur var alltaf vel til höfð og hafði gaman af því að gleðja sig með nýjum fötum og skóm. Hún ræktaði frændgarð sinn vel og naut þess að spjalla um fólk og ættartengsl. Mér þótti dýrmætt að spjalla við hana um fólkið mitt sem hún sýndi mikinn áhuga og samvera með henni og mömmu var alltaf mjög skemmtileg. Ferðalög voru henni hugleik- in og þær voru ófáar aðventu- ferðirnar með Oddfellow og alltaf kom hún heim með eitt- hvað til að gleðja ungmennin. Hún ferðaðist víða með fjöl- skyldu sinni og með vinkonum sínum til heitari landa. Í minn- ingunni finnst mér hún alltaf hafa haft næstu ferð bókaða. Á Landakoti ferðuðumst við með aðstoð tækninnar, skoðuðum kort af heiminum á spjaldtölv- unni og ég sagði henni frá ferð- um fjölskyldu minnar um Frakklandi. Þetta svæði þekkti hún og naut þess að skoða myndir og rifja upp minningar. Þau hjónin ferðuðust mikið um í Evrópu með flugi og bíl. Ekki var alltaf fyrirfram ákveðin ferðaáætlun en þau pössuðu að vera komin í náttstað fyrir myrkur, settust inn á veitinga- hús og nutu stundarinnar. Mér fannst merkilegt þegar hún sagði mér frá sauma- klúbbnum sínum, að þær væru löngu byrjaðar á því að hittast á daginn, sætu yfir góðum veit- ingum og spjölluðu fram að kvöldmat. Ég hafði aldrei heyrt það flottara. Ég hugsa mér gott til glóðarinnar með mínum saumaklúbbi síðar meir. Við nutum þess báðar þegar ég sagði henni frá mínum sauma- klúbbi, þeim veitingum og þeirri umgjörð sem þar var við höfð. Ég passaði mig á því að vera nógu smámunasöm í útskýring- um á því sem á borð var borið og það var eins og hún teiknaði umgjörðina upp í huga sér og samgladdist. Ég þekki engan sem hafði jafn gaman af því að fylgjast með kóngafólkinu í Evrópu. Hún lá yfir blöðunum sem við færðum henni frá ferðalögum okkar og hún fylgdist vel með öllu efni sem sjónvarpað var, s.s. brúðkaupum kóngafólksins. Hrafnhildur varð áttræð í febrúar síðastliðinn og hélt glæsilegt kvennaboð fyrir fjöl- skyldu sína og vinkonur. Það var alveg í hennar anda, haldið á heimili hennar og frambornar fallegar og góðar veitingar. Þar naut hún stundarinnar og það var yndislegt að hlusta á þegar Bíbí systir hennar rifjaði upp hvernig þær eldri systur um- vöfðu hana kærleika frá fyrstu tíð. Aldursmunurinn var þó- nokkur og þær voru svo hrifnar af litlu systur, skiptust á að passa hana korter í senn svo allar fengju þær að halda á henni. Bíbí sagði okkur einnig frá því hvernig hún kenndi litlu systur ameríska slagara, bara allt sem herinn söng. Svo hlóg- um við allar saman um leið og við sungum lagið: „You are my sunshine“. Ég þakka samfylgdina, elsku tengdamamma, og nú er það okkar sem eftir lifum að halda minningunni um stórbrotna konu á lofti. Ragnheiður Þóra. Í dag kveðjum við Addý, yngstu móðursystur okkar. Elst var Kiddý, sem lést fyrr á þessu ári. Eftir lifa Bíbí og Erla. Addý var lífsglöð og skemmtileg og áttum við frænkurnar margar góðar stundir saman. Oft hittumst við frænkur, þ.e. þær fjórar og við dætur þeirra. Þá var glatt á hjalla, sungið og spilaði Addý undir á píanó. Nú undanfarið komum við oft í heimsókn til hennar á spít- alann og var hún þá ávallt vel snyrt og tilhöfð með varalitinn og augnskuggann á sínum stað, svo ekki sé talað um Chanel- ilminn góða. Addý var alltaf til í ferðalög með skemmtilegu fólki og snögg að bóka dagsetningar og lendingartíma flugvéla, enda mikið fyrir að hafa yfirsýn og alla hluti á hreinu. Til dæmis ætlaði hún að drífa sig með okkur frænkum til Valencia í október, en því miður förum við án hennar. Elsku Guðmundur, Auður, Guðbjörg og fjölskyldur. Við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Móður ykkar verður sárt saknað af okkur systra- börnunum. Minningin mun lifa. Björg og Guðbjörg Erla. Sannarlega er sjónarsviptir að góðri vinkonu minni Hrafn- hildi Magnúsdóttur, sem er lát- in eftir veikindi undanfarin misseri. Harma ég hana mjög. Árið 1960 kynntumst við er við hófum störf um svipað leyti hjá Verzlunarsparisjóðnum er síðar varð Verzlunarbankinn í Bankastræti. Við vorum ungar að árum þegar við kynntumst tilvonandi eiginmönnum okkar, þeim Páli Guðmundssyni og Magnúsi M. Brynjólfssyni, en þeim varð vel til vina. Áttum við ánægjustundir á heimilum okkar hvort sem var á Kirkjuteigi, Tómasarhaga eða í Búlandi. Einnig var gaman að fara í Æskuminni, sumarhús okkar hjóna, og voru það dýrðarstundir okkar vinanna. Árin liðu og Hrafnhildur og Páll eignuðust börnin sín þrjú á fáum árum. Hafa þau öll verið foreldrum sínum til mikils sóma, eru vel menntuð og vel af Guði gerð. Eftir að Hrafnhildur veiktist hlúðu systkinin vel að móður sinni enda kærleiksríkt sam- band á milli þeirra. Eftir að við vinkonurnar vor- um orðnar ekkjur lögðumst við í ferðalög. Við fórum oft til Spánar, í margar aðventuferðir til Trier í Þýskalandi, til Dan- merkur og ógleymanlega ferð að Gardavatninu á Ítalíu. Alltaf var gott að vera í návist Hrafn- hildar og var hún skemmtileg kona sem hafði sérstaklega já- kvætt og glatt viðhorf til lífsins og naut hins fagra í kringum sig. Hrafnhildur var dugmikil húsmóðir sem fór létt með að halda glæsilegar veislur enda skipulögð með eindæmum. Hún var listakona í höndunum og saumaði til dæmis veggteppin Ævi Jesú og tvö riddarateppi. Munstrið af þessum listaverk- um er frá Þjóðminjasafninu. Ekki má gleyma öllum lopa- peysunum sem hún prjónaði og lagði einlægan metnað sinn í. Hinn 3. febrúar 1987 gekk Hrafnhildur til liðs við Odd- fellowregluna í Rb.st. nr. 4, Sig- ríði en flutti sig í Rebekkustú- kuna nr. 14, Elísabetu. Hún var kölluð til búða 11. október 1997 og var félagi í Rbb. nr. 2, Þór- unni. Hugsjónir og boðskapur reglunnar höfðaði mjög til vin- konu minnar og sótti hún fundi á meðan heilsan leyfði. Að leiðarlokum kveð ég kæra vinkonu mína með mikilli eft- irsjá. Magnús sonur minn sakn- ar hennar einnig. Hún var honum ævinlega mikill vinur. Börnunum Guðmundi, Auði og Guðbjörgu, tengdabörnum, barnabörnum og barnabarna- börnum sendum við Magnús kærleiksríkar samúðarkveðjur og biðjum þeim blessunar. Við þökkum samfylgd á lífsins leið þar lýsandi stjörnur skína og birtan himneska björt og heið hún boðar náðina sína en Alfaðir blessar hvert ævinnar skeið og að eilífu minningu þína. (Vigdís Einarsdóttir) Sigrún Guðmundsdóttir. Yndisleg vinkona, Hrafnhild- ur Magnúsdóttir, lést 7. sept- ember síðastliðinn. Hún var kærleiksrík, skemmtileg, glaðlynd, krefj- andi, hvatvís, hjálpsöm, lífsglöð, snyrtileg, yndisleg móðir, amma, langamma, systir og margt fleira. Við Hrafnhildur kynntumst fyrir 55 árum er ég vann í Verslunarbankanum um tíma en þar vann hún til starfsloka. Við urðum fljótlega góðar vinkonur, áttum báðar heima í Laugarneshverfinu og áttum börn á svipuðum aldri og fylgd- umst með þeim vaxa úr grasi. Þegar ég flutti í annað hverfi var eldri sonur minn áfram í Laugarnesskóla fram á vorið. Hrafnhildur tók hann að sér í mat og umönnun þann tíma og er ég henni ætíð þakklát fyrir það. Ég kom oft á heimili þeirra Hrafnhildar og Palla, sem bæði voru ákaflega gestrisin og sam- taka í öllu. Þau voru einstakir foreldrar sem vildu allt fyrir börnin sín gera. Páll lést 2001 aðeins 69 ára að aldri, en þá höfðu þau nýlega keypt sér fallega íbúð í Neðstaleiti 8 og þar bjó Hrafn- hildur áfram ein eftir að Palli lést. Eftir að við Hrafnhildur fór- um á eftirlaun gafst enn meiri tími til samveru. Þar eru efst í huga allar sundferðirnar okkar í Árbæjarlaug, sérstaklega var ljúft ef Bíbí systir hennar mætti líka. Hrafnhildur var snögg að öllu sem hún gerði, var hún yfirleitt búin að synda ca tvær umferðir þegar ég kom í laugina og að sundi loknu var hún búin að blása hárið, mála sig með Dior og beið úti á bekk þegar ég var loks tilbúin til brottfarar. Þá var farið í bakarí og feng- ið sér eitthvað gómsætt eftir sundið. Og mikið á ég eftir að sakna morgunsímtalanna okkar þar sem rætt var um lífið og til- veruna og hún fræddi mig um hvað var að gerast hjá kónga- fólkinu í Evrópu yfir fyrsta kaffibolla dagsins. Við Hrafnhildur vorum sam- an í saumaklúbbi sem var stofn- aður 1960 af ungum konum í Verslunarbankanum. Við vorum níu í klúbbnum og urðum allar nánar vinkonur. Nú hafa þrjár kvatt úr hópnum okkar góða, Lóló, Auður og nú elsku Hrafn- hildur. Það hefur verið yndis- legt að eiga þennan hóp að og margt höfum við gert okkur til skemmtunar gegnum árin. Við hikuðum ekki við að fara út á land í saumaklúbb ef ein- hver okkar bjó þar tímabundið, t.d. Hólmavík, Stykkishólm eða Hveragerði. Eftir að við urðum eldri hittumst við með mökum okkar í hádegismat og jólagleði og áttum ógleymanlegar stund- ir saman. Við í saumaklúbbnum þökk- um Hrafnhildi yndisleg kynni, vináttu og tryggð. Hinn 18. febrúar síðastliðinn hélt Hrafnhildur vinkona okkar upp á 80 ára afmæli sitt á heim- ili sínu með fjölskyldu sinni og nánustu vinum. Það var dásamleg stund sem við munum ætið minnast með þakklæti. Í veikindum sínum hefur Hrafnhildur sýnt einstakan kjark og dugnað. Hún gat átt erfitt með að tala um veikindi sín, en lét þau ekki buga sig í daglegu lífi og horfði alltaf fram á veginn. Við Hjálmar og fjölskyldan öll vottum börnum Hrafnhildar, Guðmundi, Auði og Guðbjörgu, og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Einnig sendum við Sigur- björgu og Erlu systrum hennar innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Hrafn- hildar. Ragnheiður Hermannsdóttir. Hrafnhildur Magnúsdóttir Ótímabært frá- fall Óla afa hefur verið okkur öllum mikið áfall. Við vor- um alveg viss um að við mynd- um eiga meiri tíma með honum. Ég bara trúi því ekki að það verði enginn Óli afi á bryggjunni Óli Sveinn Bernharðsson ✝ Óli SveinnBernharðsson fæddist 27. nóv- ember 1937. Hann lést 23. ágúst 2018. Útför Óla Sveins fór fram 15. sept- ember 2018. að taka á móti okk- ur aftur. Þó að hann hafi átt langa ævi og gæfurík ár er alltaf erfitt að kveðja þá sem manni þykir vænt um. Á svona tíma- mótum hrannast upp minningarnar sem maður er svo gríðarlega þakklát- ur fyrir. Það var alltaf gaman að vera með afa. Fá að fara með honum í lóðsinn þar sem var alltaf trópí og kex og hlæja svo að honum í bílnum þegar hann hnerraði stanslaust eftir að hafa fengið sér rauðan ópal. Hann var alltaf svo góður, hjartahlýr maður sem manni leið svo vel í kringum. Aldrei sparaði hann knúsin, var alltaf til í að aðstoða og vera til staðar fyrir fólkið sitt, hann fylgdist vel með okkur öllum og bar mikla umhyggju fyrir okkur. Fyrir mér var hann mjúkur maður, tilfinningaríkur, nægju- samur en sérstaklega örlátur þegar kom að því að gefa öðr- um. Það var ekki til hroki í honum eða eitthvað falskt. Ég vona að ég sé svo heppin að fá að búa yf- ir einhverjum af hans kostum. Ég veit alla vega hvaðan jóla- barnið í mér kemur. Eins erfitt og það er að kveðja hann veit ég að hann er í góðum höndum, kominn í faðm elskunnar sinnar, hennar ömmu Maddýjar, sem hann saknaði svo sárt. Það var yndislegt að fá að upplifa ástríkt samband þeirra í gegnum árin. Maður vissi og sá að það var sönn ást. Þegar amma var veik var aðdá- unarvert að sjá væntumþykjuna, kærleikann og ástina frá afa til hennar. Amma og afi eru ástæð- an fyrir því að ég bý að því að eiga hlýja og nána fjölskyldu sem hefur verið mér styrk stoð allt mitt líf og fyrir það er ég gríðarlega þakklát. Með miklum trega kveð ég þig, elsku Óli afi, mikið sem ég á eftir að sakna þín. Þakka þér fyrir samveruna, umhyggjuna, skilninginn og alla gleðina. Ég elska þig. Margrét Ósk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.