Morgunblaðið - 20.09.2018, Síða 67
DÆGRADVÖL 67
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2018
STOFNAÐ 1956
Glæsileg íslensk
hönnun og smíði
á skrifstofuna
Bæjarlind 8–10
201 Kópavogur
Sími 510 7300
www.ag.is
ag@ag.is
Fyrir Á. Guðmundsson starfa íslenskir, vel menntaðir
arkitektar sem hafa þróað húsgögn og hönnunargripi
sem skapa notalegt andrúmsloft. Hver hlutur ber einkenni
klassískrar hönnunar en er einnig fallegur smíðisgripur sem
er þægilegt að nota og sómir sér vel á skrifstofunni.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Ekki eyða tíma í að bera þig saman
við aðra. Hver og einn er einstakur. Þú hitt-
ir naglann á höfuðið í rifrildi við einhvern
nákominn.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú þarft að hafa augun hjá þér svo
áætlun þín fari ekki öll úr skorðum. Haltu
dramatíkinni í huganum, þar sem hún á
heima. Allt er breytingum háð.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Heilsan batnar ef þú einbeitir þér
að því sem þér er kært. Þú byrjaðir með
tvær hendur tómar eins og margir aðrir en
hefur tekist að ávaxta pund þitt vel.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er að komast hreyfing á þín
mál svo þú munt brátt uppskera laun erf-
iðis þíns. Farðu í líkamsrækt eða góðan
göngutúr eða gefðu þér tíma til að elda
hollan og góðan mat.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér er óhætt að hefjast handa við að
fegra og bæta heimilið. Nú er tími til að
sýna tilfinningar sínar. Hurð skellur nærri
hælum í umferðinni.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú hefur engar efasemdir varðandi
markmið þín og átt því auðveldara með að
fá fólk til samstarfs við þig. Þú iðar í skinn-
inu að komast í sveitina.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það getur verið gaman að fara ótroðn-
ar slóðir en til þess þarf bæði kjark og
þrautseigju. Að hitta fólk sem þú hefur
ekki séð lengi gleður þig.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Fjarlægðin gerir fjöllin blá og
mennina mikla. Sama hvað þú reynir þá
tekst þér ekki að fyrirgefa einstaklingi sem
gerði á þinn hlut, ennþá.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Sumt af því sem þú ert að
reyna að afreka er mjög djarft, kannski af
því að þú veist að það mun hefja keðju-
verkun og líf þitt verður aldrei samt.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Láttu það ekki draga úr þér
kjarkinn, þótt vinir og vandamenn dragi
verk þín efa. Taktu þér tíma til að reyna að
leysa gömul vandamál eða finna nýjar leið-
ir.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú þarft að gefa þér tíma til
þess að styrkja þau tengsl við aðra sem
eru þér einhvers virði. Hugsaðu þinn gang
og leyfðu tímanum að vinna með þér.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er alltaf gott að gleðjast en
mundu að árangur verður ekki metinn í
krónum og aurum.
Á sunnudag setti Hjálmar Frey-steinsson þessa limru, „Hlíð-
arnar dala“, á fésbókarsíðu sína:
Á húsþökum hanar gala,
hóandi bændur að smala,
þótt komið sé haust
kveða við raust.
Hæðirnar brosa og hlíðarnar dala.
Á Boðnarmiði rak hver limran
aðra. Byrjum á Jóni Ingvari Jóns-
syni:
Þótt hafni mér konurnar hrjúfu
ég helst vildi liggja á grúfu
og stunda þau verk
svo stórlega merk
er iðkaði Orri frá Þúfu.
Pétur Stefánsson virtist kunn-
ugur á þessum slóðum:
Hann var fjörugur Finnur frá Bakka
er fékk hann sér vínið að smakka,
með Önnu og Siggu
og Ástu og Viggu
hann eignaðist tuttugu krakka.
Halldór Guðlaugsson sagði góð-
an gang í limrusmíðinni: – „Takk
Jón Ingvar og Pétur. Eftir lestur-
inn kom þessi á blað“:
Hjárænuleg þótti Halla
hún var samt natin við kalla
stytti þeim stundir
og stundi þeim undir
en stóð samt á sam’ um þá alla.
Er í raun „lítil saga úr sveit-
inni“.
Dagbjartur Dagbjartsson hafði
þá sögu að segja að fyrir nokkrum
árum fór hann og heimsótti vin
sinn og skólabróður sem er kaup-
maður og sauðfjárbóndi. – „Trú-
lega eini kaupmaðurinn á landinu
sem aldrei hefur haft yfirdrátt-
arheimild ef ég veit rétt,“ segir
Dagbjartur. „Erindið var að kaupa
af honum lambhrút en hann heimt-
aði vísu til liðkunar á viðskiptum“:
Kaupmanninn kvelur ei sút
þó kátlega líti hann út.
Samt hef ég von um
að særa út úr honum
eistu með áföstum hrút.
Eftir kvöldgöngu á þriðjudag
leit Helgi R. Einarsson á fréttirnar
og því varð þetta til:– „Ríður ekki
við einteyming“:
Hið íslenska þrek og þor
enn þroskast á meðal vor
og viljirðu meira
af þeim mannkostum heyra
þá má þeim kynnast hjá OR.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Limruleikur er leikja
skemmtilegastur
„ÞAÐ VAR U.Þ.B. HÉR SEM ÉG FATTAÐI
AÐ ÉG HEFÐI ÁTT AÐ BIÐJA UM AÐ FÁ
GREITT FYRIRFRAM.“
„ÞETTA ER ÞAÐ SEM RESEPTIÐ SEGIR:
EINA SKEIÐ, 300 SINNUM Á DAG.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... einn fyrir alla og allir
fyrir einn!
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ER NOKKUÐ BETRA
EN GÓÐUR MATUR…
ER ÞAÐ
NOKKUÐ?
HVERNIG Á ÉG AÐ
VITA ÞAÐ?
OG ÁHUGAVERÐAR
SAMRÆÐUR?
HELGA! ÉG ÆTLA Í
BAÐ! GETURÐU ÞVEGIÐ
ÓHREINU FÖTIN MÍN?
EKKERT MÁL! HRIS
T HRIST
HR
IS
T
GRÓÐI
Merkilegt er hvað unglingsár getamarkað menn jafnvel fyrir lífs-
tíð. Þannig fór Víkverji í bíó um dag-
inn ásamt nokkrum góðum félögum,
en „lenti“ þar í því að þeir höfðu að-
eins aðrar hugmyndir um hvar best
væri að sitja í bíósalnum en Víkverji.
x x x
Svo er mál með vexti að vinir Vík-verja eru allir rúmir meðalmenn
að vexti, en hann sjálfur hefur frek-
ar þurft að horfa upp á Maradona og
Woody Allen sem átrúnaðargoð sín.
Afleiðingar þessa hafa verið þær í
gegnum tíðina að Víkverji varð oftar
en ekki fyrir því á vissu tímabili ævi
sinnar að poppi var grýtt í hann.
x x x
Lausn Víkverja við þessu vanda-máli var einföld. Hann situr allt-
af aftast í salnum. Alltaf. Án nokk-
urra undantekninga. Ef hann situr
þar, þá er enginn að fara að grýta
hann með poppkorni og allir geta
verið sáttir, nema kannski helvítis
illa uppöldu eineltisbullurnar sem
Víkverji virðist hafa alist upp með í
hverfinu sínu sem þurfa nú að horfa
á myndina í stað þess að bögga sam-
borgara sína.
x x x
Vinir Víkverja könnuðust ekki viðþetta vandamál og tóku því ekki
í mál að sitja aftast. Raunar vildu
þeir frekar sitja nokkuð framarlega,
sem Víkverja fannst vera óðs manns
æði. Gætu þeir ekki alveg eins málað
skotskífu á bakið á nýja pleður-
jakkanum hans? „Við erum stóru
strákarnir núna,“ sagði einn félagi
Víkverja. Og þó það sé meira rétt í
hans tilfelli en Víkverja, þá sá Vík-
verji rökin á bak við þá fullyrðingu.
x x x
Skemmst er að segja frá því aðengu poppi var fleygt í Víkverja
í það sinn. Eru bíógestir 21. aldar-
innar betur dannaðir en villidýrin
sem Víkverji þurfti að umgangast?
Eða sáu þeir kannski bara þennan
miðaldra lágvaxna mann í pleður-
jakkanum sínum, sem hefur nb. ver-
ið duglegur í ræktinni upp á síðkast-
ið, og hugsuðu sig tvisvar um áður
en poppið flaug úr hendi?
vikverji@mbl.is
Víkverji
Játið að Drottinn er Guð, hann hefur
skapað oss og hans erum vér, lýður
hans og gæsluhjörð.
(Sálm: 100.3)