Morgunblaðið - 06.12.2018, Qupperneq 11
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2018
NÝ
KJÓLASENDING
Skoðið laxdal.is
Skipholti 29b • S. 551 4422
Jólastemmning
Ýmis tilboð
Káputískusýning kl.15-16
Kaffi og konfekt
Smart föt, fyrir smart konur
Holtasmári 1
201 Kópavogur
sími 571 5464
Str. 38-52
Við erum á facebook
Bæjarlind 6 | sími 554 7030
Kjólar // Túnikur
Verð 10.990.- Verð 10.900.-
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is
Allar úlpur á
20% afslætti
Glæsilegt úrval
í st. 36-52
Við erum á Facebook
Laugavegi 82 | 101 Reykjavík
Sími 551 4473
Jólagjöfin
fæst hjá okkur
Söfnum í neyðarmatar-
sjóð fyrir jólin til matarkaupa
hjá Fjölskylduhjálp Íslands
fyrir þá fjölmörgu sem lægstu
framfærsluna hafa.
Þeim sem geta lagt okkur lið
er bent á bankareikning
0546-26-6609,
kt. 660903-2590.
Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti
og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ.
Neyðarsöfnun í matarsjóðinn
fyrir jólin
Guð blessi ykkur öll
Bjarni V. Tryggvason, fyrsti íslenski
geimfarinn, tekur að sér kennslu á
námskeiði sem haldið er í Háskól-
anum í Reykjavík (HR) í þessum
mánuði. Er um að ræða þriggja
vikna námskeið
undir yfir-
skriftinni Space
Systems Design.
Námskeið sem
þetta eru haldin
að loknum próf-
um á hverri önn
og er námsefnið
sett í hagnýtt
samhengi og er
oft fenginn gesta-
kennari í kennsl-
una, segir á vef HR.
Bjarni lauk þjálfun hjá Geim-
ferðastofnun Bandaríkjanna, NASA,
og hefur hann meðal annars komið
að þróun hugbúnaðar sem notaður
hefur verið í geimstöðvum og geims-
kutlum. Hann starfar við flugvéla-
prófanir og flugþjálfun auk þess sem
hann sinnir rannsóknum og kennslu
í verkfræði á sviði loftaflsfræði,
straumfræði, stærðfræði og hönnun
kerfa fyrir geimferðir. Þá er hann
höfundur rúmlega 50 vísindagreina.
Áður unnið með HR
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
Bjarni á í samstarfi við Háskólann í
Reykjavík því hann hélt þar fyrir-
lestur í mars síðastliðnum.
„Þegar ég var á Íslandi heimsótti
ég bæði HR og HÍ og spjallaði við
meistaranema um verkefni þeirra. Í
framhaldinu hitti ég Ara Kristin
[rektor HR] og við höfðum margt
áhugavert að ræða um, enda er hann
mikill áhugamaður um flug. Það var
í gegnum okkar samskipti að ákveð-
ið var að ég myndi kenna sérstaka
kúrsa í HR. Mig hefur lengi langað
að kenna á Íslandi en hef hreinlega
ekki haft tíma til þess fyrr en nú,“ er
haft eftir Bjarna á vefsíðu HR.
Námskeiðið Space Systems De-
signs er, líkt og heiti þess ber með
sér, hönnunarnámskeið þar sem tek-
ið er mið af sérstökum aðstæðum í
geimnum.Umsjónarmaður þess er
dr. Ármann Gylfason, dósent við
tækni- og verkfræðideild.
Bjarni geim-
fari kennir
við HR
Sér um þriggja
vikna námskeið
Bjarni V.
Tryggvason
Slysum til sjós hefur farið fækkandi
undanfarin ár hjá HB Granda hf. en
sveiflur hafa verið í tíðni slysa í
landi. Þetta kom fram á árlegum
öryggisfundi félagsins sem haldinn
var nýverið en fundinn sóttu örygg-
isnefndir vinnustaða bæði til sjós og
lands auk skipstjórnarmanna og yf-
irmanna félagsins.
Á heimasíðu fyrirtækisins kemur
fram að í ár hafa orðið 13 slys á sjó,
en þau voru 17 í fyrra og 24 árið
2016. Slys í landi eru 51 í ár, 42 í
fyrra og 58 árið 2016, en tilgreind
eru bæði slys á vinnustöðum og á
leið til og frá vinnu. Á fundinum var
farið yfir stöðu öryggismála hjá HB
Granda og nýtt skipulag mála-
flokksins var kynnt. Farið var yfir
dæmi um algeng slys og greint frá
öryggisverkefnum sem flest fela í
sér að efla forvarnir og fræðslu.
Fjallað var um fyrirkomulag
skráninga slysa og hættulegra at-
vika en hjá félaginu er lögð áhersla
á traustar upplýsingar til að
tryggja nákvæmar greiningar sem
eru nauðsynlegar öllum forvörnum,
segir á heimasíðu fyrirtækisins.
„Öryggismál eru veigamikill þáttur
í vinnustaðamenningu HB Granda
og verða því alltaf í öndvegi hjá fé-
laginu“, er haft eftir Guðmundi
Kristjánssyni, forstjóra.
Færri slys til sjós hjá HB Granda