Morgunblaðið - 06.12.2018, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2018 63
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Fasteignafélagið Reginn óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra viðskipta. Um nýtt starf er að ræða en leitað er að öflugum og
kraftmiklum aðila sem er tilbúinn til að móta félagið áfram í samvinnu við forstjóra og aðra stjórnendur félagsins. Framkvæmdastjóri
viðskipta heyrir beint undir forstjóra og situr í framkvæmdastjórn félagsins.
Meðal verkefna
• Tekur þátt í að móta, samræma og framkvæma viðskiptastefnu félagsins
• Leiðir teymisvinnu við nýfjárfestingar og umbreytingar á núverandi
eignasafni
• Leiðir og stýrir samþættingu rekstrareininga sem snýr að
viðskiptatækifærum þ.m.t. að leiða útleiguteymi félagsins
• Leiðir og stýrir lánamálum, fjármögnun og endurfjármögnun félagsins
• Samskipti við fjárfesta og fjármálastofnanir í tengslum við lánamál
• Staðgengill forstjóra
Hæfniskröfur
• Yfirgripsmikil reynsla af stjórnun úr atvinnulífinu
• Framúrskarandi þekking á sviði fjármála og reksturs fyrirtækja
• Háskólamenntun á sviði viðskipta-, hag- og/eða verkfræði eða sambærileg
menntun
• Framhaldsmenntun æskileg
• Afburða góð samskiptafærni
• Góð tölvukunnátta
• Íslensku- og enskukunnátta
FRAMKVÆMDASTJÓRI VIÐSKIPTA
Nánari upplýsingar veita:
Sverrir Briem, sverrir@hagvangur.is
Gyða Kristjánsdóttir, gyda@hagvangur.is
Reginn hf. er íslenskt fasteignafélag sem fjárfestir í, leigir út og annast rekstur á atvinnuhúsnæði.
Fasteignasafn Regins telur 121 fasteign og er heildarstærð safnsins um 370 þúsund fermetrar.
Félagið er hlutafélag í dreifðu eignarhaldi og skráð í Kauphöll Íslands.
Umsóknarfrestur er til og með 11. desember 2018.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is
Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf.
Forstöðumaður útflutnings
Íslandsstofa er samstarfs-
vettvangur atvinnulífsins
og stjórnvalda og
hefur það hlutverk að
auka gjaldeyristekjur
þjóðarinnar með þróttmiklu
starfi í þágu íslenskra
útflutningsgreina. Íslandsstofa
er sjálfseignarstofnun sem
er rekin á einkaréttarlegum
grunni með sjálfstæðri
fjárhagsábyrgð.
Upplýsingar og umsókn
capacent.com/s/12147
Menntunar- og hæfniskröfur:
Reynsla af stjórnun.
Að minnsta kosti 5 ára reynsla af erlendu markaðs- og
kynningarstarfi og útflutningi á vöru og/eða þjónustu.
Frumkvæði og metnaður til að ná árangri.
Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
Mjög gott vald á íslensku og ensku máli í ræðu og riti,
önnur málakunnátta æskileg.
Umsóknarfrestur
10. desember
Starfssvið:
Leiða þjónustu Íslandsstofu við íslenskar
útflutningsgreinar.
Skipuleggja starfsemi sviðsins og móta þjónustu við
einstakar atvinnugreinar og fyrirtæki.
Verkefnastjórnun.
Eiga frumkvæði að og leiða samskipti við fyrirtæki sem
starfa að útflutningi og aðra hagaðila á því sviði.
Útflutningur er eitt af þremur meginsviðum Íslandsstofu ásamt sviðunum Áfangastaðnum og Fjárfestingum.
Hlutverk sviðsins er að auka eftirspurn eftir íslenskum vörum og þjónustu hjá öllum útflutningsgreinum og greiða fyrir
markaðssetningu og útflutningi, hvort sem er á vörum eða þjónustu og á sviði skapandi greina. Sviðið vinnur náið með
atvinnulífinu og stjórnvöldum við að móta verkefni, kortleggja markaði, greina tækifæri og móta skilaboð út á markaði.
Innan sviðsins eru þarfir og möguleikar hverrar útflutningsgreinar skoðaðar sem og mögulegar aðgerðir varðandi erlent
markaðsstarf og hvernig Íslandsstofa getur stutt við þær.
Íslandsstofa leitar að metnaðarfullum einstaklingi í starf forstöðumanns útflutnings með ástríðu fyrir því að kynna og
markaðssetja íslenskar vörur, þjónustu og skapandi greinar. Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um.
Capacent — leiðir til árangurs
·
·
·
·
·
·
·
·
·
hagvangur.is
Náðu meiri árangri
í samningaviðræðum
Námskeið í samningatækni