Morgunblaðið - 06.12.2018, Blaðsíða 36
36 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2018
SÖLUAÐILAR
Reykjavík: Gullbúðin Bankastræti
6 s:551-8588
Meba Kringlunni s: 553-1199
Michelsen Úrsmiðir Kringlunni s: 511-1900
Michelsen Úrsmiðir Laugavegi 15 s: 511-1900
Kópavogur: Klukkan, Hamraborg 10
s: 554-4320
Meba Smáralind s: 555-7711
Hafnarfjörður:
Úr & Gull Firði-Miðbæ Hafnarfjarðar
s: 565-4666
Keflavík: Georg V. Hannah, úrsmiður
Hafnargötu 49 s: 421-5757
Akureyri: Halldór Ólafsson úrsmiður
Glerártorgi s: 462-2509
Akranes: Guðmundur B. Hannah, úrsmiður
Suðurgötu 65 s: 431-1458
Egilsstaðir: Klassík Selási 1 s:471-1886
Selfoss: Karl R. Guðmundsson, úrsmiður
Austurvegi 11 s: 482-1433
Vestmannaeyjar:
Geisli Hilmisgötu 4 s: 481-3333
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Á uppstúfurinn það til að verða
kekkjóttur, eða hendir að puran á
steikinni verður ekki nógu stökk? Er
uppáhalds borðdúkurinn útataður í
kertavaxi og risastór rauðvínsblettur
í teppinu frá síðustu jólum?
Ekki örvænta, því sérfræðingar
Kvenfélagasambands Íslands eru í
viðbragðsstöðu og svara í símann hjá
Leiðbeiningastöð heimilanna.
Leiðbeiningastöðin er ókeypis
þjónusta opin öllum landsmönnum.
Þar má hringja inn í síma 552 1135
frá 10-12 á þriðjudögum og 13-15 á
fimmtudögum, og einnig hægt að
finna hafsjó fróðleiks um matseld og
þrif á Leidbeiningastod.is.
Jenný Jóakimsdóttir hjá Kven-
félagasambandinu segir Leiðbein-
ingastöðina búa að uppsafnaðri þekk-
ingu úrræðagóðra íslenskra hús-
mæðra allt frá 7. áratugnum og sífellt
bætist í sarpinn. Veitir ekki af að hafa
þessar upplýsingar aðgengilegar
enda getur það hent flesta að vita
ekki alveg hvernig á að bregðast við
þegar vandi kemur upp í eldhúsinu
eða hreinsa þarf erfiðan blett.
Hæfilegir skammtar
„Í dag er fólki líka mjög í mun að
draga úr matarsóun og margir sem
hafa samband til að vita hversu mikið
ætti að kaupa inn fyrir stóra veislu
eða matarboð. Enginn vill þurfa að
henda mat og þaðan af síður bjóða
heimilismeðlimum upp á afganga úr
hamborgarahryggsveislu í margar
vikur á eftir“ segir Jenný. „Á móti
kemur að það getur verið gaman að
eiga einhverja afganga af veislumatn-
um, og eitthvað notalegt við það að
taka því rólega í fríinu og hita upp
jólakræsingar. Er viðmiðið þá að
kaupa í kringumg 400 gr af kjöti á
mann til að eiga örlítið auka.
Afgangana ætti vitaskuld að setja í
kæli sem allrafyrst og má reikna með
að meðlætið geti geymst í þrjá daga á
meðan saltað og reykt kjöt endist
lengur. „Flestallar þurrar smákökur
geymast vel í boxi en ef þær innihalda
rjóma, eins og t.d. Söru Bernharðs-
kökur, þá ætti að setja þær strax í
frystinn,“ segir Jenný.
Hitamælirinn standi ekki í beini
Sígildu jólaréttirnir eru miserfiðir
viðfangs og stundum er engin ein
matreiðsluaðferð réttari en önnur.
Segir Jenný að oft ráði hefðin því
hvort fólk velur t.d. að sjóða ham-
borgarhrygginn eða steikja hann í
ofni. „En það sem mestu skiptir er að
kjarnhitinn nái upp í 68 gráður og
verður að gæta að því að hitamælir-
inn sé ekki í beini eða inni í miðju fitu-
lagi í vöðvanum því þá gefur hann
ekki rétta mælingu.“
Lykillinn að vel heppnaðri puru-
steik segir Jenný að sé að skera rákir
í fituna á kjötstykkinu, án þess þó að
fara ofan í vöðvann, og láta steikina
þvínæst standa inni í ísskáp í 2-3 daga
til að þurrka hana lítillega. „Síðan er
nauðsynlegt að salta puruna vel, svo
hún verði stökk og fín, og mörgum
finnst ágætt að byrja á að steikja pur-
usteikina með puruna niður í stutta
stund. Með því að hækka hitann í ofn-
inum upp í 220°C í lokin er svo hægt
að fá puruna til að poppa svo hún
verði extra stökk.“
Kalkúnninn vefst fyrir sumum, og
er hættan sú að þessi stóri fugl verði
þurr ef hann er eldaður of lengi, en
hrár ef hann er eldaður of stutt. „Gott
ráð er að setja nóg af smjöri undir
húðina og muna að því meiri fylling
sem er í kalkúninum, því lengur þarf
að elda hann. Er óvitlaust að fara þá
leið að setja aðeins helminginn af fyll-
ingunni í fuglinn, en elda hinn helm-
inginn sér.“
Hvað snertir sósugerðina segir
Jenný að sé ágætis regla að flýta sér
ekki of mikið svo að innihaldsefnin fái
tíma til að blandast vel. Hlaupi sósa í
kekki er besta ráðið að hella henni í
gegnum sigti, og gott húsráð til að
laga of salta sósu, súpu eða pottrétt
er að setja hráa kartöflu út í því hún
dregur í sig saltið. „Ef sósan er aftur
á móti of þunn blöndum við maísmjöli
eða kartöflumjöli út í vatn, og hrær-
um því svo saman við. Ekki ætti að
setja mjölið beint út í sósuna því þá
geta myndast kekkir.“
Rauðvínið hreinsað strax
Undirbúningur jólanna kallar líka
á að gera heimilið hreint og fallegt.
Jenný segir gott skipulag létta þrifin.
„Það gerir enginn heimilið tandur-
hreint í einum hvelli á síðustu stundu,
og betra að taka eitt herbergi í einu,
dagana fram að jólum. Þá er í raun
það eina sem þarf að gera þegar há-
tíðin gengur í garð að taka örlítið til
og renna yfir gólfin.“
Gaman er að kveikja á kerti á jól-
um en verra ef vaxið sullast niður.
„Ef kertavax fer í dúk ætti að setja
plastpoka með ísmolum á blettinn svo
að vaxið harðni, eða láta dúkinn í
frysti. Má þá skafa eða brjóta vaxið af
og það sem eftir er hverfur yfirleitt
við þvott á 60°C. Ef dúkurinn þolir
bara 40°C hita má setja uppþvottalög
á blettinn og láta standa í 4-6 klst áð-
ur en dúkurinn fer í vélina,“ útskýrir
Jenný og bætir við að ef vaxið skilur
eftir lit megi nudda blettinn varlega
með rauðspritti eða própanóli.
Sullist rauðvín niður þarf að bregð-
ast skjótt við. Að hella hvítvíni eða
sódavatni ofan á blettinn hjálpar, sem
og að láta matarsóda eða kartöflu-
mjöl sjúga í sig vökvann. „Rauðvíns-
bletti ætti að þrífa strax en ekki bíða
með það fram yfir jól því það verður
svo miklu erfiðara að ná blettinum úr
ef hann nær að þorna.“
Uppsöfnuð þekking íslenskra húsmæðra
Hjá hjálparsíma Leiðbeiningastöðvar heimilanna má fá gagnleg ráð fyrir þrif og matseld jólanna
Morgunblaðið/Eggert
Áferð Jenný mælir með því að láta purusteik standa í kæli í 2-3 daga.