Morgunblaðið - 06.12.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2018
NÝR &
KRAFTMEIRI
Vinsælasti bíllinn á Íslandi
hefur nú fengið skarpara útlit,
meiri íburð, lengri drægni,
meira afl, aukið akstursöryggi
og margt fleira.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is · Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · BVA Egilsstöðum *Miðað við fulla hleðslu og fullan tank við bestu aðstæður.
Mitsubishi Outlander PHEV er rafdrifinn & svo miklu meira. Tvær öflugar rafvélar og S-AWC-aldrifið skila auknu
afli og afköstum sem gera allar aðstæður leikandi léttar. Háþróaðar tæknilausnir færa þér umhverfisvænan akstur
með lágmarkseyðslu allt niður í 2.0l/100 km (Skv. WLTP viðurkenndri mælingu).
Kynntu þér vinsælasta bílinn á Íslandi.
Verð frá 4.690.000KR.
Áþessum tíma árs gengur ælu-pest, svokölluð noroveira eralgengasta sýkingin sem
veldur slíkum einkennum. Þessi
veira getur eingöngu valdið einkenn-
um í mönnum, þannig að dýr geta
ekki veikst eða borið smit. Sjúkdóm-
urinn er mjög smitandi, einn dropi af
ælu, hægðasnerting eða öndunar-
smit af mjög litlum toga getur smitað
einstaklinga sem eru í návígi við
þann sjúka. Smitandi einstaklingar
dreifa smitinu í um tvo sólarhringa
og stundum lengur. Vörn gegn sjúk-
dómnum eftir eigin sýkingu er stutt
og algengt er að fólk veikist aftur af
sama sjúkdómi, jafnvel ár eftir ár.
Það er einmitt þess vegna sem veisl-
ur og mannfagnaður er oft staðurinn
þar sem fólk smitast af slíkri pest.
Snögg einkenni og mikil ógleði
Caliciveirur eru algengasta orsök
uppkasta og niðurgangspestar á
sjúkrahúsum og hjúkrunarheimilum.
Bæði sjúklingar og starfsmenn
veikjast og oft þarf að loka heilu
deildunum til að verja sjúklinga
smiti. Sjúklingar eru ekki fluttir á
milli sjúkradeilda við þessar að-
stæður og mikilvægt er að hafa sem
minnst umgengni við aðra meðan á
veikindum stendur.
Smit getur komið við ýmsar að-
stæður t.d. með djúpfrystum berj-
um, ostum og ýmssi matvöru sem
smitar af því að þar hefur veikur ein-
staklingur borið smit í. Sjúkdómur-
inn kemur oftast fyrir í nóvember og
er að koma upp fram í apríl en lang-
algengastur í janúar og febrúar og
þess vegna er þetta kallað í ýmsum
tungumálum vetrarælupestin. Veir-
an greinist oft í hægðum ein-
staklinga sem veikst hafa í margar
vikur eftir einkenni.
Helstu einkenni eru snögg veik-
indi, uppköst, mikil ógleði, niður-
gangur, kviðverkir, vöðvaverkir, höf-
uðverkur og hiti. Mikilvægt er að
vita að sjúkdómurinn læknast af
sjálfu sér á fáum dögum eða jafnvel
gengur yfir á nokkrum klukkustund-
um.
Verður ekki fyrirbyggt
Greining er oftast gerð bara við
skoðun læknis en stundum er rann-
sakað með PCR aðferð til að stað-
festa sýkinguna. Tímabil frá smiti
þar til að einstaklingur veikist eru
12-48 klst. og helsta vandamál við
greiningu sjúkdómsins er mismuna-
greining við aðra sambærilega vírus-
orsakaða sjúkdóma. En stundum eru
vandamálin verri eins og alvarleg
blóðeitrun eða jafnvel heilahimnu-
bólga sem getur líkst þessum veik-
indum. Veikindi af völdum salmon-
ellu, campylobacter eða rota- eða
adenoveira geta einnig líkst ælupest-
um.
Ekki er hægt að fyrirbyggja sjúk-
dóminn með bólusetningu en mikil-
vægt er að hafa ávallt góðan hand-
þvott, við umönnun slíkra sjúklinga
en ekki síður á heimili þess sem verið
er að sinna. Veikir einstaklingar eiga
að sjálfsögðu alls ekki að vera í mat-
argerð fyrir aðra. Náin samskipti
eru því ástæða þess að maður smit-
ast af svona ælupest. Þar sem við
myndum ekki varanlegt ónæmi við
að smitast getur maður fengið þessa
ælupest árlega. Oft veikjast flestir í
fjölskyldum vegna einmitt þessa.
Engin sérhæfð meðferð er til en
rétt er að nota venjulegar aðferðir
við ælupest. Passa skal að fólk þorni
ekki upp og þarf því að drekka smá
skammt af vatni með jöfnu millibili.
Rétt er að hafa sykur- og jafnvel
saltskammt vatnsins í lagi og er
hægt að fá í apótekinu sérseldar
vörur til þessa. Þá er einnig hægt að
blanda einn lítra af vatni með 3 mat-
skeiðum af sykri eða 2 matskeiðum
af þrúgusykri og ½ teskeið af salti.
Passa skal að gefa lítinn vökva í einu
og best er að nota til þess matskeiðar
en ekki þamba vökvann. Langoftast
þarf því ekki að leita sér aðstoðar og
stundum er það óheppilegt vegna
hættu á að dreifa sjúkdómnum inná
spítala þar sem veikasta fólkið er.
Viðkvæmir geta farið illa út úr þessu.
Gott aðgengi að
heilbrigðisþjónustu
Það eru svo sannarlega lífsgæði að
hafa gott aðgengi að sínum eigin
heimilislækni, heilsugæslustöð og
hjúkrunarfræðingi. Við sem vinnum í
heilsugæslunni erum tilbúin að veita
leiðbeiningar ef á þarf að halda.
Sjaldnast þarf þess þó. Þú getur haft
samband við hjúkrunarfræðing á
þinni heilsugæslustöð eða hringt í
síma 1700 en þar er sólarhringsþjón-
usta hjúkrunarfræðinga. Þá eru á
höfuðborgarsvæðinu alltaf læknir og
hjúkrunarfræðingur á vakt á hverri
heilsugæslustöð og eftir lokun
heilsugæslustöðva er Læknavaktin
opin til 23:30 alla daga. Sífellt um-
bótastarf er liður í rekstri stofnana
og fyrirtækja og einmitt þetta árið
leggjum við áherslu á aðgengi, sem
reyndar er með allra besta móti sam-
kvæmt könnunum
Veira veldur vetrarpest
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jólahlaðborð Hér er margt gott og girnilegt en hættur geta leynst í mat-
vælum sé ekki farið að öllu með gát. Veirusýkingar hverskonar má varast.
Getty Images/iStockphoto
Heilsugæsla Það eru lífsgæði að hafa gott aðgengi að eigin heimilislækni.
Heilsuráð
Óskar Reykdalsson,
sérfræðingur í
heimilislækningum
Unnið í samstarfi við Heilsu-
gæslu höfuðborgarsvæðsins.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
U
m þessar mundir er
hinn grafíski heimur í
örri þróun. Margar
skemmtilegar nýj-
ungar eru að koma
fram og forritin sem við störfum
með verða sífellt fullkomnari,“ segir
Linda Þórey Pétursdóttir, nemi í
grafískri miðlun við Upplýsinga-
tækniskólann í Tækniskólanum. Út-
skriftarnemar skólans sem að þessu
sinni eru níu talsins efna á morgun,
föstudag, til sýningar á verkum sín-
um, það er ýmiss konar prent-
gripum, vefsíðum og öðru stafrænu
efni. Sýningin er opin milli kl. 15 og
18, er í sal Vörðuskóla við Skóla-
vörðuholt í Reykjavík og er gengið
inn frá Barónsstíg.
Þörf á þekkingu
Átta af nemendunum útskrif-
ast í grafískri miðlun, öðru nafni
prentsmíði, og einn er útlærður í
bókbandi. Hópurinn, með aðstoð
kennara, hefur unnið saman að
skipulagi, uppsetningu og kynningu
á útskriftarsýningunni. Tilgangur
þessa er að vekja athygli atvinnu-
lífsins á útskriftarefnunum sem nú
eru í þeim sporum að finna sér
námssamninga og ljúka sveinsprófi.
Hafa meðal annars verið útbúnir
svonefndir fyrirtækjapakkar, það
er margvíslegt kynningarefni svo
sem nafnspjöld, bæklingar og fleira
slíkt sem stjórnendur gjarnan af-
henda viðskiptavinum í kynningar-
skyni.
„Að komast á samning í graf-
ískri miðlun er fyrirstaða. Pláss eru
ekki mörg eða meistarar mikið að
taka inn nema. En það opnast alltaf
möguleikar og tækifæri og ég er
opin fyrir öllu,“ segir Linda sem nú
horfir til þess að komast til vinnu á
auglýsingastofu og hugsanlega fara
svo í frekara nám í faginu við
Listaháskóla Íslands.
„Í dag er hvarvetna mikil þörf
á fólki sem hefur góða grafíska
þekkingu til dæmis til þess að vinna
efni fyrir samfélagsmiðla sem eru
að taka svo margt yfir. Í náminu
förum við í hönnun, texta- og mynd-
vinnslu, uppsetningu og svo líka
forritun, svo það er tekið á flestum
þáttum. Í ákveðnum hluta námsins
er mikið lagt upp úr því að maður
vinni eftir ákveðnum reglum, en þar
á móti er líka lagt mikið upp úr því
að maður noti sköpunargáfuna. Það
er lykilatriði.“
Framarlega í faginu
Í náminu við Upplýsingatækni-
skólann er áhersla lögð á að nem-
endur kynnist því hvernig hlutirnir
gerast úti í atvinnulífinu. Í því skyni
var meðal annars farið í kynnisför
til Kaupamannhafnar, með góðum
stuðningi Erasmus+ sem er
fræðsluáætlun Evrópusambands-
ins. „Að fara út og kynnast grafískri
menningu annarra þjóða er mjög
fróðlegt, en í Danmörku heimsótt-
um við auglýsingastofur og listahá-
skóla. Danir eru mjög framarlega í
faginu; þar er grafísk miðlun alveg
á heimsmælikvarða,“ segir Linda.
Á sýninguna í Vörðuskóla hafa
nemendur meðal annars boðið for-
svarsmönnum og starfsmönnum
fjölda fyrirtækja í iðngreinum til að
sjá afrakstur haustsins og kynnast
náminu. Sýningin er einnig tilvalin
fyrir alla sem hafa áhuga á námi í
þessum greinum og vilja spjalla við
útskriftarefnin og kennara þeirra.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Grafíkerar Útskriftarnemar í Upplýsingatækniskólanum hér í Vörðuskóla
með skemmtilegar og frumlega hannaðar veggmyndir að baki sér.
Grafískur heimur
Upplýsingatækniskólinn býður upp á áhugavert nám.
Útskriftarnemar kynna verk sín í Vörðuskóla
á morgun. Stafræna veröldin er orðin allsráðandi
og verkefni fólks í faginu eru gjarnan á því sviði.