Morgunblaðið - 06.12.2018, Síða 42

Morgunblaðið - 06.12.2018, Síða 42
42 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2018 Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi Sími 587 1400 |www. motorstilling.is SMURÞJÓNUSTA < DEKKJASALA TÍMAPANTANIR 587 1400 Við erum sérhæfðir í viðgerðum og varahlutum fyrir ameríska bíla. Almennar bílaviðgerðir fyrir ALLAR tegundir bíla BÍLAVERKSTÆÐIVatnshitablásarar hitataekni.is | S: 5886070 | Smiðjuvegur 10, græn gata | 200 Kópavogi BAKSVIÐ Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Í tilkomulítilli múrsteinsbyggingu á snævi þöktu svæði í útjaðri Tartu, næststærstu borgar Eistlands, pikkuðu hermenn í felubúningum tölvulyklaborð ótt og títt í októ- berlok. Þetta voru framlínuher- sveitir í átakalínum 21. aldarinnar. Við ertandi ljós og afþiljuð tölvu- borð gæti allt eins hafa verið um andlausa skrifstofu að ræða. En þarna voru menn og konur á „staf- rænu skotæfingasvæði“ Atlants- hafsbandalagsins (NATO) við um- fangsmestu æfingar bandalagsins til þessa í netheimahernaði. Æfðu þau stafrænar netvarnir sem gengu undir heitinu Netvarnabandalagið 2018. Æfingarnar áttu sér stað í aðeins 50 kílómetra fjarlægð frá landa- mærum Rússlands en þaðan telja Vesturlönd sér stafa mesta ógn af netárásum. Ekki síst í kjölfar raðar netárása sem yfirvöld í Kreml hafa verið sökuð um að hafa fyrirskipað. Skotmörk þeirra hafa meðal ann- arra verið heimssamtök á sviði íþrótta, Demókrataflokkurinn í Bandaríkjunum og efnavopnaeft- irlitsstofnun með aðsetur í Hol- landi. NATO segir að árásir sem þessar verði „æ algengari, flóknari, skað- legri og meira þvingandi“. Að baki þeim standi ekki bara stjórnvöld eins og í Rússlandi, Kína og Norð- ur-Kóreu, heldur einnig glæpa- gengi sem gera út á fjárkúganir annars vegar og hins vegar innbrot í tölvukerfi til að hrekkja stórar stofnanir. Ódýr hernaður „Að leggjast í árásir í netheimum kostar sáralítið fé,“ segir banda- ríski ofurstinn Don Lewis, aðstoð- arframkvæmdastjóri hinnar nýju netvarnamiðstöðvar NATO í Eist- landi, við AFP-fréttstofuna. Mið- stöðin var sett á laggirnar í ár. „Hyggist þú ráðast að landi mínu úr lofti þarftu að smíða orrustu- þotur, sem er ekki auðvelt verk og kostar gríðarlega fjármuni. En fyr- ir sama verð og kaffibolla á Star- bucks og vopnaður fartölvu kemstu inn í netheima. Og fyrir nokkur hundruð dollara að auki geturðu keypt þér spilliforrit af svarta net- inu,“ bætir Lewis við. NATO hefur komið sér upp tveimur hraðliðasveitum til net- varna. Eru þær í viðbragðsstöðu og til taks á öllum tímum sólarhrings- ins. Geta þær svarað árásum innan 48 stunda. Vopn þeirra eru hrað- virkar tölvur með forritum er greina varnargetu og fleira, rann- sóknarhugbúnað ýmiss konar og sérleg gagnagrunnstól, m.a. til að greina tölvukóða. „Þetta er okkar útgáfa af svart- klæddu mönnunum, sem hafa heil- mikið af öflugum svörtum plast- kössum með sér,“ segir Jeremy Tod, hjá upplýsingaþjónustu NATO, og skírskotar til vopna sveitanna. – Afrísk sviðsmynd – Þrátt fyrir orðspor Rússlands og nálægð beindust æfingarnar ekki í þá átt, heldur líktu eftir stuðnings- aðgerðum í ímynduðu Afríkuríki sem varð fyrir stafrænni rafeinda- árás frá óvinveittu ríki akkúrat þegar kosningar fóru þar fram. Þar kom upp eftirfarandi staða: Spillif- orrit sýktu vatnshreinsistöð og menguðu drykkjarvatn, skemmdir voru unnar á lestarteinum járn- brauta sem beina varð í aðrar áttir en þær voru fullar af NATO-her- mönnum sem áttu að gæta kjör- staða. Sjö hundruð netsérfræðingar í nokkrum löndum voru kallaðir út til að greina stöðuna og finna lausn- ir á æfingunni sem stóð í þrjá sólar- hringa. Stjórnandi æfinganna var Robert Buckles, yfirlautinant í bandaríska flotanum. Hann segir megintilgang æfingarinnar hafa verið að þjálfa netárásasveitirnar í að vinna saman undir álagi. Þær prófuðu einnig hvernig nýta mætti árásarbúnað frá sumum NATO-landanna í varn- arviðbrögðum bandalagsins við net- árásum. Bandaríkin, Bretland, Danmörk, Eistland og Holland hafa öll skuld- bundið sig til að bjóða afnot af net- vopnum sínum til aðgerða af hálfu NATO, ef á þyrfti að halda. Þykir líklegt að þau muni draga kjarkinn úr hugsanlegum árásaraðila sem vissi að hann þyrfti að sæta gagn- árásum. Fælingarmáttur árásar- vopnanna væri því gagnlegur. Fyrrnefndur Lewis ofursti segir að sama áhætta fylgi því að grípa til netvopna sem hefðbundinna vopna. Ígrunda verði áhættuna á hliðartjóni; öðru tjóni en á mann- virkjum sem árás beindist að. Því hafi stjórnendur æfinganna ákveðið að beita þeim vopnum ekki. Fælingarmáttur Fyrr á árinu endurmótaði banda- ríska varnarmálaráðuneytið, Penta- gon, netvarnastefnu sína. Inntak hennar var „framvirkar varnir“ til að trufla eða stöðva illkvittnislegt athæfi í netheimum. Hollendingar hafa lýst opin- berlega nothæfi eigin netvarna. Flugliðsforinginn Elanor Boekholt- O’Sullivan, æðsti maður hollenskrar netöryggissveitar sem fengið hefur þjálfun í árásartaktík, segir að „óá- sættanlegt framferði ríkja í net- heimum verði ekki lengur látið af- skiptalaust“. Í október gengu Hollendingar óvenjulega langt og nafngreindu fjóra rússneska leyniþjónustumenn og sökuðu þá um tilraunir til að brjótast inn í tölvukerfi höfuð- stöðva OPCW, alþjóðlegrar stofn- unar um bann við efnavopnum, í Haag. Dreifðu þeir ítarlegri sam- antekt á launráðum Rússanna. Ákvörðun Hollendinganna var liður í tilraunum þeirra til að byggja upp netfælingarmátt sem grundvallast á því að gera söku- dólgunum þá skömm til að nafn- greina þá og smána um leið. Jafn- framt að vera í stakk búnir til gagnárása ef fyrirmæli í þá veru væru gefin. Margs konar skotmörk „Hver verður fyrir barðinu á bullunni á skólalóðinni? Tvímæla- laust ekki pilturinn sem æfir ka- rate og er umkringdur af vinum sem taka til varna fyrir hann,“ tjáði Boekholt blaðamönnum sem fylgdust með netvarnaæfingu NATO. Til skotmarka getur talist allt sem tengist netinu, þar á meðal tölvur og snjallsímar og allt upp í útbúnað sem stjórnar lykiltækjum í orkuverum og samgöngukerfum. „Allt sem er með straumrofa, til að kveikja eða slökkva, er hægt að hafa áhrif á með kænskubrögðum,“ sagð Boekholt. Varnarsveitir gegn netárásum  NATO hefur komið upp sérstökum sveitum tölvufræðinga til að bregðast við árásum á netinu  Í lok október fór fram netvarnaæfing í nýrri miðstöð sem komið hefur verið á fót í Eistlandi Netárásir Atlantshafsbandalagið (NATO) hefur hafið skipulegar varnir gegn netárásum en með þeim er hægt að lama gangverk samfélaga ef ekki er brugðist við með uppbyggingu varnarsveita.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.