Morgunblaðið - 06.12.2018, Síða 47

Morgunblaðið - 06.12.2018, Síða 47
47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2018 Jólaskógur Grýla og Leppalúði komu við í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í gær til að skemmta leikskólabörnum sem þangað mættu á opnun Jólaskógarins. Rúmlega 3500 nemendur 28 grunnskóla í Reykjavík lögðust á eitt við að búa til snjókorn úr blaðsíðum bóka frá Forlaginu sem prýða skóginn. Grýla og Leppalúði sögðu sögur af jólasveinum sem koma brátt til byggða og sungin voru jólalög. Kristinn Magnússon Undanfarna daga hefur þjóðin fylgst með umræðum um ótrúleg samtöl nokk- urra þingmanna, sem hljóðrituð voru að þeim óafvitandi. Þó að þingmennirnir hafi sýnilega verið vel við skál, þegar þessi um- mæli féllu, eru þau með öllu óréttlætan- leg. Þingmennirnir hafa verðskuldað orðið fyrir þung- um ágjöfum vegna þessa og huga sumir þeirra að afsögn þing- mennsku sinnar. Fordæmingin hefur áreiðanlega líka komið frá fólki sem reglulega viðhefur gróf- an orðsóðaskap sjálft um annað fólk á hinum svonefndu samfélags- miðlum. Ég birti á dögunum dæmi um ótrúlegt orðbragð einhverra spak- vitringa um mig á slíkum miðlum. Þeir fengu þá yfir sig fordæmingu alls almennings vegna orðbragðs síns. Og þá birtust einhverjir, sem höfðu í frammi álíka orðalag um þetta fólk og það hafði sjálft við- haft í dæmunum sem ég birti. Lágkúra á lágkúru ofan. Síðustu daga hef ég á ný séð ummæli um mig sem jafnast fyllilega á við það sem ég vakti athygli á í grein minni. Þingmenn, sem urðu fyrir því að ummæli þeirra voru birt, hafa sagt að ummæli þeirra séu síst verri en ýmsir aðrir þingmenn hafi við önnur tækifæri viðhaft. Dapurlegt ef satt er. Hvernig væri nú að fólkið í þessu landi, þ.m.t. alþingismenn, reyndi að draga ályktanir af þessum atburðum? Hvernig væri að menn tækju sig á og hættu þess- um orðsóðaskap um annað fólk? Það er auðvitað einkenni á okkar samfélagi að fólk hefur ólíkar skoð- anir á flestu því sem til umræðu kemur. Okkar aðferð á þá að vera fólgin í því að skiptast á skoðunum. Þá eigum við að sýna hvert öðru fulla virðingu og gæta þess líka að snúa ekki út úr orðum annarra eins og svo margir gera til þess að betur henti sóðaskap þeirra sjálfra. Menn ættu líka að hafa hugfast að með hátterni sínu eru þeir fyrst og fremst að lýsa sjálfum sér en ekki öðrum. Það er svo ótrúlega lítið sem við getum sagt um per- sónugerð annars fólks, þó að við getum sagt heilmikla sögu um okkur sjálf. Svo boðskapur dagsins er: Gæt- um orða okkar í samtölum við og um aðra. Sýnum háttvísi og virð- ingu fyrir öðru fólki. Eftir Jón Steinar Gunnlaugsson »Hvernig væri að menn tækju sig á og hættu þessum orðsóða- skap um annað fólk? Jón Steinar Gunnlaugsson Höfundur er lögmaður. Sóðaskapur í orðum Umræða um sjáv- arútveg hefur verið allnokkur und- anfarnar vikur og veldur mestu frum- varp um veiðigjald. Því miður snýst um- ræðan nær eingöngu um einn afmarkaðan þátt í íslenskum sjáv- arútvegi. Það er: hversu hátt á veiði- gjaldið að vera? Ekki nóg með það, heldur er þar oftar en ekki vísað til ör- fárra fyrirtækja sem náð hafa bestum árangri, en hátt í þúsund aðilar greiða veiðigjald. Skoðanaskipti um nánast allt annað í íslenskum sjávarútvegi liggja óbætt hjá garði og er það mið- ur. En um hvað á að ræða, kann ein- hver að spyrja; hér verða nokkur dæmi gefin. Framsækinn Íslenskur sjávarútvegur er einhver sá framsæknasti í heimi. Kerfið sem við búum við, aflamarkskerfið, er stærsta einstaka ástæðan. Umgangur um auðlindina er allur annar en áður var og leitast er við að nýta fiskistofna með sjálfbærum hætti svo ekki sé gengið á rétt komandi kynslóða til að nýta þá. Vinna við að rétta af stofna við Íslandsstrendur hefur gengið vel og hún mun halda áfram. Fyrir rúm- um 40 árum lét þáverandi sjáv- arútvegsráðherra hafa það eftir sér að Íslendingar lifðu ekki á varkárninni einni saman, þegar ástand þorsk- stofnsins var kynnt fyrir honum í svo- kallaðri „Svartri skýrslu“. Veiðiráð- gjöf samtímans byggist á vísindalegri niðurstöðu og hefur gert undanfarin ár. Á því verður ekki breyting og við munum lifa á varkárninni einni saman í umgengni okkar við nytjastofna hafsins. Ekki ríkisstyrktur Íslenskur sjávar- útvegur er ekki ríkis- styrktur, eins og víða um heim þar sem mönnum er beinlínis greitt fyrir að sækja sjóinn. Á Íslandi er þessu þveröfugt farið. Ís- lenskur sjávarútvegur er skattlagður sérstaklega umfram aðrar atvinnu- greinar í landinu með auð- lindagjaldi, þótt fjölmörg önnur fyr- irtæki og geirar atvinnulífsins nýti sér auðlindir landsins við verðmæta- sköpun. Þetta má hafa í huga þegar krafist er sífellt hærri gjalda af sjávar- útveginum. Við auðlindagjaldið bætast svo auðvitað öll önnur gjöld sem sjáv- arútveginum ber að standa skil á, eins og öðrum fyrirtækjum í landinu. Einstakt samspil Íslenskur sjávarútvegur og íslensk iðnfyrirtæki hafa sameiginlega náð stórkostlegum árangri á undanförnum árum. Engum blöðum er um það að fletta að fjölmörg iðnfyrirtæki á Ís- landi, til dæmis Marel í Reykjavík, Valka í Kópavogi, Skaginn3X á Akra- nesi og Vélfag í Ólafsfirði, hafa öll átt í nánu samstarfi við sjávarútvegsfyr- irtæki við þróun á sinni framleiðslu. Það sem meira er; íslensk sjáv- arútvegsfyrirtæki hafa leitað eftir lausnum hjá þessum fyrirtækjum og þegar lausnin er fundin er hægt að hefja útflutning, sem sífellt er að aukast. Samkvæmt úttekt Deloitte námu tekjur tækni- og framleiðslufyr- irtækja, sem rekja má til sjávarútvegs, tæpum 50 milljörðum króna á árinu 2016. Innan þessara fyrirtækja hafa orðið til verðmæt störf fyrir vel menntað fólk. Þessi störf hefðu aldrei orðið til, ef ekki væri fyrir framsækin og öflug fyrirtæki í sjávarútvegi. Sérstaða í umhverfismálum Íslenskur sjávarútvegur hefur al- gera sérstöðu þegar litið er til árang- urs við að draga úr olíunotkun. Olíu- notkun á Íslandi hefur aukist frá árinu 1990 um 349 þúsund tonn, eða 57%. Á sama tíma hefur hún dregist saman í sjávarútvegi um 114 þúsund tonn, eða 46%. Sú þróun mun halda áfram á komandi árum, ef ekki verð- ur þrengt að getu sjávarútvegsins til þess að fjárfesta. Á þessum vettvangi er til mikils að vinna. Varðveitum stöðuna Eins og sést af því sem hér hefur verið skrifað verðskuldar íslenskur sjávarútvegur fjölbreyttari umræðu en um veiðigjald örfárra útgerða og meintan ofurhagnað. Krafturinn í ís- lenskum sjávarútvegi er gríðarlegur og staða hans einstök á heimsvísu. Við höfum lagt mikið á okkur til þess að ná henni. Við eigum að vera stolt af henni og á stundum mætti velta því fyrir sér hvernig við ætlum að varð- veita þessa dýrmætu stöðu. »Krafturinn í íslensk- um sjávarútvegi er gríðarlegur og staða hans einstök á heims- vísu. … Við eigum að vera stolt af henni og á stundum mætti velta því fyrir sér hvernig við ætlum að varðveita þessa dýrmætu stöðu. Heiðrún Lind Höfundur er framkvæmdastjóri SFS. Sjávarútvegur í samtímanum Eftir Heiðrúnu Lind Marteinsdóttur
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.