Morgunblaðið - 06.12.2018, Qupperneq 66

Morgunblaðið - 06.12.2018, Qupperneq 66
66 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2018 Saffrox | Bætiefni sem hefur mikil áhrif á geðslag án aukaverkana eins og þyngdaraukningar og kyndeyfðar Útsölustaðir: Flest apótek. Saffrox er 100% náttúrulegt og klínískar rannsóknir sýna að það hefur góð áhrif á andlega líðan og léttir lund. Andleg vellíðan á náttúrulegan hátt n Vinnur gegn geðsveiflum og depurð n Jákvæð áhrif á kynlífslöngun n Vinnur gegn andlegri streitu n Stuðlar að betri svefngæðum Gunnhildur Ásta Jóhannsdóttir, þroskaþjálfi og sérkennari, á50 ára afmæli í dag. Hún lærði í Þroskaþjálfaskóla Íslandssem þá var og hét og lauk námi 1992. Í dag er þroskaþjálf- un fjögurra ára nám við Háskóla Íslands. „Ég byrjaði starfsævina á Kópavogshæli og þar kviknaði áhug- inn á þroskaþjálfanáminu. Ég vann lengi sem þroskaþjálfi, á með- ferðarheimili, sambýlum og í leikskóla, þar af fimm ár í Dan- mörku.“ Gunnhildur kláraði B.Ed. grunnskólakennaranám árið 2006 og hefur starfað í grunnskólum síðan. Árið 2017 lauk hún meistara- prófi í sérkennslufræðum og er núna sérkennari við Hofsstaða- skóla í Garðabæ. „Ég kenni íslensku, stærðfræði og sinni nýbúakennslu, er að styðja við nemendur sem þurfa á því að halda í náminu. Grunn- menntun mín sem þroskaþjálfi hefur nýst mér vel í mínum störf- um sem kennari,“ segir Gunnhildur aðspurð. Hver eru áhugamálin? „Ég hef mjög gaman af því að ferðast, bæði innanlands og erlendis. Ég var nýlega í Edinborg í nokkra daga með góðum hópi vinkvenna. Edinborg er skemmtileg borg en ég var þar núna í annað sinn. Í sumar fór ég til Spánar og dvaldi í Barcelona í nokkra daga og heillaðist alveg af borginni.“ Gunnhildur ætlar að fagna afmælinu með fjölskyldu og vinum með veislu á laugardaginn. Dætur Gunnhildar eru Diljá Ýr Halldórsdóttir 17 ára nemi í Fjölbrautaskóla Suðurlands og Hrafnhildur Halldórsdóttir 10 ára nemi í Flataskóla. Mæðgurnar Hér eru þær Gunnhildur, Hrafnhildur og Diljá Ýr. Þroskaþjálfi og sérkennari Gunnhildur Á. Jóhannsdóttir er fimmtug K ristján Björnsson Skál- holtsbiskup fæddist í Reykjavík 6.12. 1958 en ólst upp í Kópavogi. Hann var í Kópavogs- skóla og Víghólaskóla, lauk stúdents- prófi frá MK 1979, embættisprófi í guðfræði frá HÍ 1987 og lauk fram- haldsnámi í klínískri sálgæslu við THG-sjúkrahúsið í Tampa á Flórída 2004. Kristján var bifreiðastjóri hjá Ísaga 1979-80 og hjá Sendibílastöð- inni Þresti í afleysingum 1979-89, lög- regluþjónn í Reykjavík í sumarafleys- ingum 1979-82 og 1984, gæslumaður á Kleppsspítala 1980, starfsmaður Þjóðgarðsins á Þingvöllum sumrin 1983, 1985 og 1986 og blaðamaður á Tímanum 1987-89. Kristján var sóknarprestur í Breiðabólstaðarprestakalli í Húna- Kristján Björnsson Skálholtsbiskup – 60 ára Ljósmynd/Gunnar Vigfússon Á vígsludegi Bjarni Benedikt, Björn Ásgeir og Sigurður Stefán, og Kristín Rut, Guðrún Helga, Kristján og Ólöf. Hinn brosmildi og glaðlyndi guðsmaður Ljósmynd/Gunnar Á fornum slóðum Hjónin að spóka sig í miðbænum í Vestmannaeyjum. Reykjavík Guð- mundur Friðrik Lárusson fæddist 20. september 2018 kl. 2.03. Hann vó 4.010 g og var 51 cm langur. Foreldrar hans eru Kristjana Sigurveig Sveinsdóttir og Lárus Kristinn Guðmunds- son. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.