Morgunblaðið - 06.12.2018, Blaðsíða 69
DÆGRADVÖL 69
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2018
Jólin 2018
Opið virka daga kl. 10-18, laugardag kl. 11-16
Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú nærð þeim árangri sem þú ætlar
þér. Eitthvert verkefni veldur þér hugarangri
en til þess er engin ástæða, það mun greiðast
úr öllum flækjum hratt og vel.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er óðs manns æði að leggja út í
vandasamar samningaviðræður án þess að
kynna sér málin fyrst ofan í kjölinn. Mundu að
aðgát skal höfð í nærveru sálar.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Áður en þú tekur verkefni að þér
skaltu ganga úr skugga um til hvers er raun-
verulega ætlast af þér. Annars nærðu litlum
eða engum árangri.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú hefur tíma til að gera akkúrat það
sem þú vilt, en bara með því að sleppa ein-
hverju sem einhver annar vill. Hafðu ekki
áhyggjur en gerðu það sem þarf til að ná tök-
um á málunum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Gættu þess að vinnufélagar þínir hafi
ekki neitt upp á þig að klaga. Það skiptir miklu
máli að þú eyðir ekki orku þinni til einskis.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það er alltaf gaman að geta komið
öðrum á óvart, láttu það eftir þér. Söðlaðu um
og sjáðu hvað allt verður auðveldara, þegar
þú ert jákvæður gagnvart hlutunum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Sjálfsöryggi þitt bætir upp litla reynslu
þína á ákveðnu sviði. Þú ert í rómantískum
hugleiðingum og ættir að gera þér glaðan dag
með ástvini þínum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það hefur lítið upp á sig að ana
af stað áður en takmarkið er komið á hreint.
Taktu þér tak og viðurkenndu að sjaldan veld-
ur einn þá tveir deila.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Vinnan göfgar manninn, en það er
fleira, sem gefur lífinu gildi. Taktu hana að þér
þótt það kunni að kosta nokkurn tíma því það
verður þér bæði til gagns og gleði.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Taktu það ekki nærri þér þótt þú
neyðist til þess að verja deginum með erfiðri
manneskju. Og vertu óhræddur þótt ein-
hverjir erfiðleikar kunni að verða á vegi þín-
um.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það kemur þér á óvart þegar
ákveðin manneskja leitar eftir vinfengi við þig.
Vertu ljúfur og lítillátur, þegar til þín er leitað,
það mun koma sér vel síðar.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Ef þú heldur of fast í ótilgreindan
samning, gæti farið svo að þú misstir hann. Ef
þú veist hvað skiptir máli þá veistu hvað þú
átt að vernda og varðveita.
Jóhann Gunnar Ólafsson skrifar umSigurð Breiðfjörð og tvíkvæni
hans og setur þessa ferskeytlu Sig-
urðar fyrir ofan meginmálið:
Lát ei kúgast þanka þinn,
þá er efnin vandast.
Þú skalt fljúga á forlögin,
fella þau og standast.
Lausavísur Dorothy Parker eru í
þýðingu Magnúsar Ásgeirssonar, –
„Varasamur heiðindómur“:
Hlæja og dufla og drykkju heyja,
uns dögun roðar næturský,
því að á morgun munum við deyja!
(Því miður er ekki að treysta því.)
„Hvítur reynir“:
Svo má ég aldrei augum líta
undur sumarsins, reyninn hvíta,
að hvarfli ekki að mér, hve hreinlegt sé
að hanga í þvílíku blómsturtré.
Símon Jóh. Ágústsson segir að lær-
dómur og mannvit ávinnist einungis
með persónulegri athugun, rannsókn
og íhugun:
Að hreppa visku hunds fyrir bein,
hugsa það enginn skyldi.
Óðinn gaf burt sinn augastein
af því hann fræðast vildi.
Þegar Jón Hreggviðsson sigldi
heim til Íslands sumarið 1716 varð
Árna Magnússyni þessi staka á
munni:
Líta munu upp í ár
Íslands búar kærir,
að Hrggviðs niður hærugrár
höfuð til landsins færir.
Páll Vídalín lögmaður, sem þá
var staddur í Kaupmannahöfn hjá
Árna, kom að og kvað:
Hann fer seinna hrætetrið hann Kolur,
höfuðið fylgist enn nú jafnt sem bolur.
Um illt var hann lengi yfirburða þolur,
til Íslands færa karlinn hægar golur.
Í Vísnabókinni leynist „Ferða-
kista biskupsins“:
„Ferðakistan farin, kristnir bræður!“
„Því forði sá sem öllu ræður!“
(Við fylgd sína átti frómur biskup tal.)
„Ég missi í henni hundrað ræður!“
„Guð, hjálpi þeim, sem stal!“
Að lokum „Úr Vísnabókinni“ , –
þýtt og endursagt. „Grafskrift yfir
hundi“:
Ég var hundur húsbóndans á Rein.
Hver á þig, sem skoðar nú minn stein?
„Úr gömlu bréfi“:
Hvað sem annars er um mig,
engin líður stundin
svo að ekki sé við þig
sérhver þanki bundinn.
Hitt mér leyndist langa tíð,
ljúfan dyggðaríka,
að þú hugsar ár og síð
um þig sjálfa líka.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Aftur er Helgafelli flett
„Þessi er of stór. sendu hana til
næstu deildar til greiningar.”
„StoppaÐu hann. Hann er meÐ
kvöldmatinn þinn.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að segja henni að hún
sé stærsta stjarnan.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
BRENNDI
AF ODDI Á AFMÆLI Í DAG
BÚÐU ÞIG
UNDIR AÐ MÆTA
ÓVINUNUM!
VONANDI LÍKAR
ÞEIM VIÐ MIG!
HVAÐ Á ÉG AÐ SEGJA? ÉG
ER EKKI SJÁLFSÖRUGGUR!
Fullveldisafmælið um helgina fórnokkuð vel fram, þó að eflaust
hafi einhverjum þótt helst til fá-
mennt í miðbænum þegar jafnstór
og merkur viðburður og hundrað ára
fullveldi Íslands á í hlut. Var jafnvel
haft á orði að svipað margir hefðu
verið í bænum nú og fyrir hundrað
árum. Sá samanburður er þó ósann-
gjarn, þar sem fólk hafði ekki að-
gang að upphituðum stofum með
sjónvarpi fyrir hundrað árum.
x x x
Víkverji fann til dæmis þegar álaugardagsmorgninum að við-
vera á atburðinum myndi kalla á
meiri fyrirhöfn og fleiri yfirhafnir en
hann hreinlega nennti að setja á sig.
Hann skrúfaði því einfaldlega upp í
ofnunum, kveikti á sjónvarpinu og
naut þess að horfa á fólkið norpa við
Stjórnarráðið. Víkverji fékk ekkert
samviskubit þar sem hann sat sjálf-
ur í því sem Stöð 2 Sport kallar
„besta sætið“.
x x x
Lýsingar Morgunblaðsins á full-veldisdeginum 1918, sem lesa má
á timarit.is, eru mjög áhugaverðar.
Eitthvað virðist pistlahöfundi blaðs-
ins fyrir hundrað árum hafa mislíkað
athöfnin þá, þar sem hann ritaði
meðal annars: „Lúðraflokkurinn var
t. d. svo illa æfður að raun var á að
hlýða, og vita menn að hann getur þó
gert miklu betur. Og suma úr
flokknum vantaði.“ Og viðurkenndi
höfundur raunar að spænska veikin
hefði líklega átt sinn þátt í því.
x x x
Hitt þótti honum erfiðara að af-saka, ónærgætni fólks við at-
höfnina. „Það vita allir, að ótilhlýði-
legt er að skeggræða við náungann,
meðan verið er að halda ræður.“
Sumir hrópuðu húrra of oft: „Það
vita allir að ekki á að hrópa tífalt
húrra fyrir konunginum og þeir sem
ekki kunna að telja upp að níu ættu
helzt að þegja.“ Þá þótti honum
börnin hafa hegðað sér helst til illa.
„Gott lögreglulið getur gert ákaflega
mikið til að hindra það, að krakk-
arnir vaði uppi með látum og gaura-
gangi, og er tími til kominn að fara
að venja þau af því og kenna þeim að
hegða sér.“ vikverji@mbl.is
Víkverji
Sértu vitur verður vitið þér til góðs en
sértu spottari þá mun það bitna á þér
einum.
(Orðskviðirnir 9.12)