Morgunblaðið - 06.12.2018, Síða 76

Morgunblaðið - 06.12.2018, Síða 76
76 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2018 Skuldadagar Í lok nóvember 1927 Það hnussaði í dómsmálaráðherr- anum þegar hann hafði lokið við að lesa skýrslu at- hugunarmann- anna sem hann hafði sent vestur á Patreksfjörð. En Jónas glotti líka út í annað. Hann vissi sem var að honum hafði með skýrsl- unni verið fært yfrið nóg tilefni til að grípa til þeirra aðgerða gegn Einari M. Jónassyni sýslumanni sem hann kysi. Kannski hafði alltaf legið fyrir að Jónas frá Hriflu myndi víkja Einari frá störfum. Jónas var þess nefni- lega fullviss að nánast allir sýslu- menn á landinu væru gerspilltir, raunar gervöll embættismannastétt- in. Fyrir vikið hlaut hver einasta at- hugun í raun að geta sýnt fram á eitthvað óeðlilegt sem hægt væri að nota gegn viðkomandi. Ekki allt taldist spilling eða gróðastarfsemi í eigin þágu; sumt snerist einfaldlega um slæm vinnu- brögð og vondan frágang á bókhaldi og skýrslugjöf. Lítill vafi lék hins vegar á því að Einar M. Jónasson hafði efnast í sýslumannstíð sinni. Hann átti jarðeignir, hús, lóðir og skip, bæði fyrir vestan sem og fyrir sunnan, þar sem hann var að gera sig líklegan til að byggja stein- steypuhús við Laufásveg í Reykja- vík. Stefán Jóhann Stefánsson fór rækilega yfir það í skýrslu sinni hvaða jarðir Einar hafði eignast á undanförnum tíu árum sem og aðrar eignir. Þó að hann héldi því ekki fram að eignir þessar væru illa fengnar var Jónas þannig innstilltur að hann gat sem best ályktað að trauðlega væri allt þetta helber til- viljun. Í huga Jónasar frá Hriflu voru skuldadagar runnir upp fyrir sýslu- manninn í Barðastrandarsýslu. Hann myndi fyrstur fá fyrir ferðina – en þeir skyldu verða fleiri sem fyndu til tevatnsins. Það var kominn tími til að láta til skarar skríða. Brjóta spillingaröflin á bak aftur. Veita gamla embættismannakerfinu verðuga ráðningu. Svo var auðvitað hitt að með því að víkja gömlum og spilltum emb- ættismanni frá störfum skapaðist tækifæri fyrir Jónas til að koma ein- um af sínum ungu lærisveinum fyrir í kerfinu. Hæpið er að Jónas hefði verið tilbúinn til að samþykkja þau rök að í raun væri hann að gera sig sekan um hið sama og hann gagnrýndi íhaldsmenn fyrir að hafa gert; hygla vinum og vandamönnum með emb- ættisveitingum. Fyrir hann helgaði tilgangurinn einfaldlega meðalið. Út fór embættismaður af gamla skól- anum, inn skyldi næsta kynslóð koma; ungir menn með nýja siði. Sannarlega áttu margir ungu mannanna sem Jónas kallaði til verka eftir að setja mark sitt á ís- lenskt samfélag. Sumir áttu eftir að fara út í stjórnmál, aðrir urðu lyk- ilmenn í stjórnsýslunni. Allir þurftu fyrst að sinna einhverjum störfum fyrir Jónas. Rannsókn á embættum sýslumanna var mál málanna fyrst um sinn og auk Stefáns Jóhanns Stefánssonar voru kallaðir til þeirra verka nokkrir menn sem áttu það sameiginlegt að vera fæddir árið 1902 og vera nýskriðnir úr skóla: Björn Steffensen endurskoðandi, Helgi P. Briem og lögfræðingarnir Gizur Bergsteinsson, Einvarður Hallvarðsson og Sveinn Ingvarsson. Sýslumenn landsins áttu eftir að skjálfa á beinunum yfir tilhugsun- inni um þessar stormsveitir Jónasar, sem svo hafa verið kallaðar, þessa agenta sem fóru um landið þvert og endilangt og sinntu því eftirliti sem dómsmálaráðherra taldi brýnast. Hvað sýslumannsembættið á Pat- reksfirði varðaði hafði Jónas ágætan mann í huga sem hann taldi að gæti leyst starfið vel af hendi og væri heppilegur kandídat í stöðuna. Sá hét Bergur Jónsson. Jónas hafði fengið á honum augastað nokkru fyrr og var búinn að ákveða að hann skyldi fara vestur og leysa Einar gamla af hólmi. Bergur Jónsson var ekki nema tuttugu og níu ára gamall þegar hann hlaut upphefð sína. Hann hafði verið fulltrúi hjá lögreglustjóranum í Reykjavík frá 1923 en það sama ár hafði hann útskrifast með lögfræði- próf frá Háskóla Íslands. Bergur hafði því afar takmarkaða starfs- reynslu að baki þegar hann fékk kallið. Þeim mun ættstærri var hann hins vegar: Bergur Jónsson var son- ur Jóns Jenssonar, sem setið hafði á þingi um aldamótin og gegnt ýmsum trúnaðarstörfum öðrum. Um leið var Bergur barnabarn Jens Sigurðs- sonar, rektors og þjóðfundarmanns 1851, bróður sjálfrar þjóðfrelsishetj- unnar Jóns Sigurðssonar. Fleiri úr ætt Bergs höfðu komist til metorða. Föðurbróðir hans, Sig- urður Jensson, hafði setið um árabil á Alþingi fyrir Barðstrendinga. Tengsl voru þannig fyrir hendi við sýsluna sem Jónas Jónsson frá Hriflu hafði ákveðið að treysta lög- fræðingnum unga fyrir. Merkismenn var einnig að finna í móðurætt Bergs, en móðir hans var bróðurdóttir Bergs Thorberg, sem verið hafði landshöfðingi á Íslandi, einn af þremur mönnum sem gegndu því embætti áður en heima- stjórn komst á 1904. Var Bergur Jónsson nefndur eftir þessum afa- bróður sínum. Jónas hugðist setja Berg sýslu- mann í Barðastrandarsýslu í stað Einars gamla, sem yrði afsettur tímabundið – og auðvitað var ætlan Jónasar að þessi tilhögun yrði síðan staðfest til frambúðar. Bergur, sem orðið hafði faðir öðru sinni örfáum dögum áður en Jónas tók þá ákvörð- un að veita honum þessa upphefð, þurfti fyrir vikið að rífa sig upp fyrirvaralítið með tvö ung börn og flytjast vestur á Patreksfjörð. Hann þurfti þó ekki að hugsa sig tvisvar um. Bergi Jónssyni var lýst þannig að hann væri mikill maður vexti, fríður sýnum og svipmikill, augun dökk og djúp undir hvössum brúnum. Hann þótti góður ræðumaður og fylgdi jafnan mikill þungi orðum hans. Rökvís var hann einnig, hugsunin skörp og skýr. Engu að síður hlaut skyndilegur frami svo ungs manns að vekja nokkurt umtal. Ekkert þurfti þó út af fyrir sig að koma á óvart í þeim efnum þegar Jónas frá Hriflu var annars vegar. Aðförin að Einari var aðeins fyrsta lota í bardaga sem Jónas hugðist efna til. Jónas hafði í sigtinu mun stærra skotmark en Einar M. Jónasson. Sá hét Jóhannes Jóhann- esson og var bæjarfógeti í Reykja- vík. Jóhannes var einn af þeim mönnum sem dómsmálaráðherrann lagði hvað mesta fæð á í heimi hér og langaði hvað mest til að fella af þeim stalli að teljast meðal heldri borgara landsins. Jóhannes hafði verið sýslumaður og bæjarfógeti í meira en þrjá ára- tugi, alþingismaður nær samfellt frá aldamótum og oft forseti sameinaðs þings. Hann hafði einnig setið í sam- bandslaganefndinni sem samdi um fullveldið 1918. En þess háttar upp- hefð skipti Jónas engu. Hann taldi Jóhannes einn af höfuðandstæð- ingum sínum í stjórnmálum og þeir höfðu oft elt saman grátt silfur á ár- unum áður en Jónas og Framsókn- arflokkurinn komust til valda 1927. [...] Atlagan sem Jónas hafði í huga gegn Jóhannesi þurfti hins vegar að bíða enn um sinn. Það mál allt sam- an átti eftir að valda gríðarlega heiftúðugum deilum – en fyrstur til að verða fyrir mulningsvél dóms- málaráðherrans var Einar M. Jón- asson, sýslumaður í Barðastrand- arsýslu. Þær sakargiftir sem síðar voru settar fram gegn Jóhannesi rímuðu að því er virðist ágætlega við ýmis- legt af því sem fram kom í embættis- athugun Stefáns Jóhanns Stefáns- sonar og Þorláks Einarssonar á hendur Einari fyrir vestan. Hér var í raun komin ein af helstu skýringum þeirrar óbeitar sem Jón- as frá Hriflu hafði á gömlu embætt- ismönnunum í landinu sem höfðu líf fólks í höndum sér og í huga Jónasar nýttu hvert tækifæri í starfi til að maka krókinn persónulega, jafnvel á kostnað bláfátækra og sauðmein- lausra. Kerfið var rotið og kerfis- karlana þurfti að uppræta að hans mati. Ráðherrann var ekki á þeim bux- unum að bíða boðanna. Ákvörðun hans í máli Einars skyldi fram- kvæmd án nokkurrar tafar. Bergur skyldi samstundis fara vestur á Pat- reksfjörð til að taka við sýslumanns- embættinu þar. Og enn var kallað á Landhelgis- gæsluna til að skaffa fararskjóta fyr- ir trúnaðarmann ráðherrans. Nú var það varðskipið Þór sem skyldi nýtt til að sigla með Berg vestur. Í mulningsvél dómsmálaráðherrans Þegar Jónas Jónsson frá Hriflu varð dóms- og kirkjumálaráðherra 1927 beitti hann sér meðal annars fyrir breytingum á skipan og hætti emb- ættismanna. Einn af þeim sem hann beindi sjón- um að var Einar M. Jónasson, sýslumaður í Barðastrandarsýslu og áður en varði voru athug- unarmenn komnir vestur til Patreksfjarðar að rýna í pappíra embættisins. Sagnfræðingurinn Davíð Logi Sigurðsson rekur glímu Einars við of- ureflið í bókinni Ærumissir sem Sögur gefa út. Morgunblaðið/Úr safni Aðför Jónas Jónsson frá Hriflu dóms- og kirkjumálaráðherra. Ljósmynd/Úr einkasafni Efnaður Einar M. Jónasson og Ragnheiður Kristjánsdóttir Hall með Ernu, elstu dóttur sína. Mynd úr einkasafni afkomenda Einars og Ragnheiðar. Hamraborg 10, Kópavogi Sími: 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18 VERIÐ VELKOMIN Í SJÓNMÆLINGU ———
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.