Morgunblaðið - 06.12.2018, Page 77

Morgunblaðið - 06.12.2018, Page 77
MENNING 77 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2018 ar vel, það dregur fallega fram andstæðurnar dag og nótt og virkar vel í leik með mörkin milli drauma og veruleika.“ – Hvernig unnuð þið bókina, þ.e. hvort kom á undan, texti eða mynd? Anna: „Í stað þess að ég skrifaði bara heil- an texta og henti honum í Laufeyju til að teikna unnum við efnið mjög mikið saman. Ég skrifaði niður hugmyndir og Laufey teiknaði og stundum breyttust teikningarnar eða sagan. Á endanum var sagan tilbúin á undan teikningunum en það er nú ekki furða þar sem hver einasta teikning Laufeyjar er mjög nákvæmt listaverk sem tekur margar langar stundir að fullkomna.“ Laufey: „Það var mjög skemmtilegt ferli að geta kastað hugmyndunum svona fram og til baka. Það var oft sem upp komu áhuga- verðar hugmyndir í skissuferlinu sjálfu og manni detta í hug ýmsar nýjar tengingar og vísanir þegar sagan lifnar við á blaðinu.“ Í kynningu á bókinni er hún sögð nætur- ævintýri fyrir börn um að sigrast á myrk- fælni, en Anna segir að aðalmarkmiðið með bókinni hafi verið að skapa fallega mynd- skreytt ævintýri sem tali til barna. „Hvað varðar myrkfælni þá fór ég að hugsa um hana við gerð þessarar sögu. Fyrr á tíð voru börn hrædd með alls konar sögum um grýlur og drauga og hulduverur í myrkrinu, en í dag held ég að mjög mörg börn séu myrk- fælin þrátt fyrir að vera ekki hrædd með neinu slíku. Ég var sjálf mjög myrkfælin sem barn. Fullorðið fólk segir gjarnan við börnin: „Hvaða vitleysa“ eða „Það er ekkert til að vera hræddur við“. Nær lagi væri að skoða aðeins hvað við erum hrædd við. Í fyrsta lagi getur myrkur sannarlega verið ógnvænlegt, vegna þess einfaldlega að við sjáum ekki vel og augu og heili raða upp hlutum á annan hátt en í dagsbirtu. Í öðru lagi eru mörkin milli draums og vöku eða ímyndunarafls og raunveruleika dálitið loðin. Okkur langaði svolítið til að fanga þetta dularfulla sem kem- ur fyrir mannshugann, já eða barnshugann, milli svefns og vöku og titillinn er dreginn af því.“ Laufey: „Ég var myrkfælið barn og svaf lengi með ljósin kveikt því skuggalegt ímynd- unarafl mitt tók völdin í myrkrinu. Það fyrsta sem loksins hjálpaði mér var þegar móðir mín byrjaði að skálda nýjar sögur inn í myrkrið, hún sagði mér frá góðum verum sem bjuggu í hverju horni herbergisins, lýsti þeim nákvæmlega í útliti og hvernig þær vernduðu mig. Þá fyrst tókst mér að sigra myrkrið. Það eru nægar sögur til sem lýsa því hversu hræðilegt myrkrið er en fáar skemmtilegar sögur sem gera myrkrið fal- legt. Sagan okkar fjallar um hugrakka stúlku sem ræður eigin örlögum og treystir á gáfur sínar og útsjónarsemi til þess að leysa úr vandamálum. Ég lagði mikla áherslu á að fanga í teikningunum fegurð og kyrrð nætur- innar, þar sem ævintýri gerast.“ – Þú nefnir leynigest dóttur þinnar Anna, kemur hann enn í heimsókn? Anna: „Hann kemur einstaka sinnum í heimsókn en ég held að hún viti nú samt al- veg að hann er ekki til í alvörunni, hvað sem það svo sem þýðir. Hún er enn sannfærð um tilvist jólasveina og útilokar alls ekki að tröll og álfar séu til. Um daginn sagði hún mér að leynigesturinn ætti fjölskyldu sem vildi endi- lega koma í heimsókn og hún var alsæl með það!“ Laufey: „Ég ætti kannski að dusta rykið af stórfjölskyldinni hans sem húkir uppi í skáp hjá mér!“ Ævintýri í fegurð og kyrrð næturinnar  Í bókinni Milli svefns og Vöku freistuðu Anna Margrét Björnsson, sem skrifaði, og teiknarinn Laufey Jónsdóttir þess að fanga hið dularfulla sem kemur fyrir mannshugann milli svefns og vöku Kyrrð Anna Margrét Björnsson og Laufey Jónsdóttir vildu skapa ævintýri sem tali til barna. Ævintýri Vaka vingast við leynigestinn og þau lenda í ýmsum ótrúlegum ævintýrum. VIÐTAL Árni Matthíasson arnim@mbl.is Í bókinni Milli svefns og Vöku, eftir þær Önnu Margréti Björnsson og Laufeyju Jóns- dóttur, segir frá Vöku, hugrakkri og glað- værri stúlku sem líður ekki vel þegar rökkv- ar, enda breytist allt þegar myrkrið tekur völdin. Eitt kvöld ber undarlegan gest að garði og dularfullir hlutir eiga sér stað. Anna segir að þær Laufey hafi lengi rætt það að gaman væri að gera saman barnabók. „Hugmyndin að bókinni kviknaði þó ekki fyrr en ég var að segja henni frá því þegar yngri dóttir mín, Ása Georgía, sem var þá fjögurra ára, var að gera saklaus skammarstrik á heimilinu og sakaði svo einhvern ósýnilegan leynigest um að hafa gert þau. Þetta var svo sætt og skondið að okkur fannst þetta kjörið til að nota í sögu, og sú stutta hjálpaði Lauf- eyju með útlitið á þessum leynigesti, sagði henni nokkurn veginn hvernig hún sæi hann.“ Laufey: „Út frá lýsingum Ásu hófst kar- aktersköpunin. Ég held að ég hafi líklega teiknað um það bil hundrað mismunandi leynigesti, en þessi sigraði hjörtu okkar allra og stóðst ströngustu kröfur Ásu. Hann fékk að stíga inn í ljósið á meðan stórfjölskylda hans húkir enn uppi í myrkum skáp. Mig langaði að skapa myndheim sem væri örlítið óhuggulegur en dregur mann inn og vekur forvitni. Teikningarnar vísa, líkt og sagan, til þeirra barnabóka sem við ólumst upp með og því fannst mér tilvalið að vinna með gamla góða blekið sem vekur vonandi nostalgískar tilfinningar hjá fleirum en okkur Önnu. Kolsvart blekið hentar líka sögunni af- Mýtan um hamingjusömuvændiskonuna er jarð-sett í bókinni And-stæðum eftir Guðrúnu Sigríði Sæmundsen. Andstæður eru önnur bók Sigríðar sem gaf árið 2015 út skáldsöguna Hann kallar á mig. Andstæður fjalla um hjón sem virðast hamingjusöm og eiga allt sem hugurinn girnist. Gunnar og Re- bekka hafa verið saman frá ung- lingsárum. Þau búa í Belgíu þar sem Gunnar starfar sem forstöðumaður á skrif- stofu EFTA en Rebekka vinnur að bók um lögleiðingu vændis. Þau eiga eina dóttur sem stundar framhaldsskólanám og býr hjá ömmu sinni í Reykjavík. Allt virð- ist leika í lyndi en í ljós kemur að ýmislegt leynist í fari Gunnars og Rebekku sem kemur á óvart og hið fullkomna líf byrjar að liðast í sundur. Rebekka á við ritun bókarinnar um vændi erfitt með að setja sig inn í heim vændis og fíkniefna en þegar hún hittir óvænt vændiskon- una Jasmijn á ferðalagi á Íslandi leiðir Jasmijn hana inn í ógeðfelld- an heim vændis, fíkniefna og of- beldis þar sem grimmd, ofbeldi, drottnunargirni, eigingirni, valda- barátta, tómarúm, niðurlæging og misnotkun eiga sér stað. Þar sem virðing fyrir manneskjunni er eng- in og kaupendur nýta neyð ein- staklinga, í langflestum tilvellum kvenna, til að svala fýsnum sínum. Andstæður er samtímasaga byggð á raunverulegum heim- ildum. Guðrún naut liðsinnis Mir- jam van Twuijver til þess að skapa trúverðuga persónu vændiskon- unar Jasmijn í Andstæðum, en Twuijver starfaði áður sem vænd- iskona í rauða hverfinu í Amster- dam. Það gefur bókinni vigt að ein af þremur aðalpersónum bókar- innar skuli vera byggð á raunveru- legum frásögnum úr hinum harða heimi fíknar og vændis; heimi sem er óraunverulegur þeim sem ekki þekkja til. Slíkar frásagnir ýta við lesandanum og sýna hversu miklar andstæður geta búið í hverjum einstaklingi. Bókin er skemmtilega uppbyggð þar sem Gunnar, Jas- mijn og Rebekka segja sögu sína til skiptis, hvert í sínum kafla. Frásagnirnar fléttast saman og úr verður spennandi söguþráður. Guðrúnu tekst í Andstæðum að gera Rebekku og Jasmijn að trú- verðugum persónum og Gróu syst- ur Gunnars. Persóna Gunnars nær ekki nægum trúverðugleika og skrifast það eflaust á það hversu miklar andstæður og sjálfhverfa eru í persónuleika hans. Í byrjun bókar eru Gunnar og Rebekka með pálmann í hönd- unum og lifa í vellystingum á sama tíma og Jasmijn upplifir sína mestu niðurlægingu. Andstæð- urnar í lífi Jasmijn eru þær að hún kom ekki úr slæmum að- stæðum heldur lenti í slæmum fé- lagsskap og fíknin varð þess valdandi að hún leiddist í vændi. Andstæður Gunnars, sem átti allt sem hugurinn girntist, uppfylltu ekki tómarúmið innra með honum; hann vildi meira og sveifst einskis til að svala fýsnum sínum. Re- bekka hafði allt sem hún hélt að hún girntist en andstæður hennar voru veruleiki sem hún neyddist til að horfast í augu við þegar hluti af breyskleikum Gunnars kom í ljós. Auk þess að vera spennusaga eru skilaboð bókarinnar á þá leið að hamingjusama gleðikonan finnst varla. Flestar vændiskonur fara í vændi vegna fíknar eða neyðar. Grimmd, fýsnum og eigin- girni eru engin takmörk sett og á meðan eftirspurn er eftir vændi og drottnunargirnin ræður ríkjum verða þeir sem undir högg eiga að sækja notaðir til að svala fýsnum þeirra sem með valdið fara. Það liggur ekki alveg ljóst fyrir í Andstæðum hvort og hver stend- ur uppi sem sigurvegari í lok sög- unnar og endirinn er á þann veg að allt sé opið með nýja sögu um afdrif aðalpersónanna þriggja. Texti bókarinnar flæðir vel og spennan helst út bókina. Andstæðar aðstæður og valdaójafnvægi Morgunblaðið/Eggert Guðrún Sigríður Sæmundsen „Auk þess að vera spennusaga eru skilaboð bókarinnar á þá leið að hamingjusama gleðikonan finnst varla,“ segir rýnir. Skáldsaga Andstæður bbbmn Eftir Guðrúnu Sigríði Sæmundsen. Draumsýn bókaforlag, 2018. Kilja, 230 bls. GUÐRÚN ERLINGSDÓTTIR BÆKUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.