Morgunblaðið - 06.12.2018, Síða 79

Morgunblaðið - 06.12.2018, Síða 79
MENNING 79 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2018 Íformála bókar segir svo: „Flóra Íslandser ítarlegasta rit sem birst hefur um ís-lenskar plöntur. Markmið þess er aðgefa heildstætt og myndskreytt yfirlit yfir allar plöntur í íslensku flórunni, útlit þeirra og sérkenni, æxlunarlíffræði, vistfræði, bú- svæði, nytjar, hnattræna útbreiðslu og sögu- legar heimildir um fundarstaði hér á landi. Ís- lenskt útbreiðslukort fylgir hverri tegund. Bókin er ætluð fræðimönnum og almenningi og er hugsuð sem uppsláttarrit þar sem finna má fjölbreyttan fróðleikk. Fjallað er um 467 teg- undir og 66 ættir“ (9). Sá sem hér skrifar las bókina með augum almennings. Þetta er mikið rit, 742 bls. í stóru broti, skýringar- kaflar að upphafi (59 bls.) prentaðir í þremur dálkum með fremur smáu letri og greinar- góðum teikningum og myndum (t.d. af lífsferli burkna, 16, og öllu sem við kemur blaðlögun, 27, o.fl.), jurtalýsingarnar síðan á sama hátt. Upphafskaflarnir fjalla um það sem kalla má forsendur gróðursins, hvers konar lífverur jurtir eru, lýsa þróunarsögu þeirra og flokkun, æxlunaraðferðum, líkams- byggingu þeirra og lit, búsvæðum, útbreiðslu- mynstri, þróun flórunnar á norðurhjaranum o.fl. Sérstakur kafli er um rannsóknasöguna og víst er hún ekki löng þótt rit hafi verið skrifuð um flóruna síðan á 17. öld eða jurtir komið við sögu í t.d. ferðabókum. Vatnaskil urðu með Flóru Íslands 1901 eftir Stefán Stefánsson; sú bók er höfð hér til hliðsjónar við nafnaval plantna; þetta rit var tvisvar endurútgefið og uppfært. Víða rak þennan lesanda í vörðurnar en greinagóðar orðaskýringar víða í meginmáli og í sérstakri skrá undir bókarlok komu honum á rétta slóð; orðalistinn þekur 25 dálka. Það er að- al góðra vísindamanna að geta skrifað skiljan- lega fyrir fróðleiksfúsan almenning og þá þarf að skýra sérhæfðan orðaforða. Það kom rýni á óvart að 32 afbrigði og tegundir æðplantna eru friðlýstar hér á landi (11). Sömuleiðis var það uppgötvun að lesa að krækiber er steinaldin (35). Meginbálkur bókarinnar er síðan lýsing á ættum jurtanna og hverri tegund innan þeirra og fylgir mynd eða myndir Jóns Baldurs hverri þeirri, teiknaðar og málaðar af mikilli hind að mati rýn- is sem tók þá mið af þeim jurtum sem hann þekkir sjálfur úti í náttúrunni. Víða eru einstakir jurtahlutar málaðir sérstaklega til betri skýr- ingar fyrir lesanda, stækkaðir upp; stundum eru margar slíkar skýringarmyndir. Margar plöntur blasa við á heilli síðu og fer vel á því; það eru ekki endilega hávöxnustu jurtirnar sem fylla síðuna. Umbrotið er hvergi knúsað þannig að myndirnar njóta sín, það loftar um þær og samspil texta og mynda er prýðilegt í hverri opnu. Stundum taka teikningarnar meira rými en önnur umfjöllun sem er annars samræmd í besta máta: Fyrst er nafn tegundar á íslensku og latínu og síðan er henni ítarlega lýst, breytileiki innan tegundar- innar er kynntur og deilitegundum gerð skil. Því næst er fjallað um búsvæði og útbreiðslu; í inn- gangskafla eru búsvæði flokkuð ítarlega og það kom þessum rýni á óvart hvað þau eru fjölbreytt (50-54). Þá er næst fjallað um vistfræði og æxlun og greint frá öðrum nöfnum sem tegundin kann að bera eða hafa borið. Þá er vikið að þeim nytj- um sem menn hafa eða höfðu af viðkomandi jurt og getið elstu heimildar um gróðurinn. Loks er rakin út- breiðsla viðkomandi jurtar í nágrannalöndum. Orðalist- inn góði er drjúgur stuðn- ingur við þennan lestur. Loks er Íslandskort með hverri jurt þar sem sýnd eru búsvæði hennar. Þrír litir eru notaðir til aðgreiningar, grænn ef jurtin hefur verið ílend í 300 ár eða lengur, blár ef jurtin er yngri slæðingur eða fundarstaðir vafasamir og loks brúnn um jurtir sem einungis þrífast á jarðhita- svæðum. Þessi kort eru mjög lýsandi. Sumar jurtir hafa einungis fundist á einum stað. Þann- ig vex knjápuntur einungis innst í Herjólfsdal (242) og ginhafri er aðeins ílendur í Pétursey (262), svo dæmi séu nefnd, aðrar þrífast í sam- fellu um land allt, enn aðrar blasa við eins og gróðureyjar á víð og dreif um landið. Það vakti furðu þessa lesanda hvar margar starar- tegundir þrífast á landinu, sumar út um allt, aðrar staðbundið; það er snúið að greina þær sumar. Það kom þessum rýni líka á óvart hvað alaskaösp hefur litla útbreiðslu út um land (375) en alaskalúpína er áberandi í öllum lands- hlutum að eyðibyggðum meðtöldum; hún virðist líka byrjuð að skríða upp á hálendið (379). Víða er skotið inn fróðleik um skyldar jurtir og birtir kaflar úr gömlum ritum, t.d. ferðabókum, þar sem viðkomandi jurt er nefnd á nafn eða sagt hvernig hún var nytjuð (t.d. einir, 116-117). Stundum flýtur með smælki úr þjóðtrú eða tengsl við bókmenntir. Mörg íslensku heitin eru einkar hugkvæm, lýsa gjarnan útliti, nytjum eða tengjast búsvæði svo eitthvað sé nefnt: hlaðkolla, gullkollur, horblaðka, kattartunga, sauðamergur, sifjarsóley. Allt bragðmikil orð á tungu. Flóra Íslands er mikið eljuverk hvort sem lit- ið er til meginmáls eða mynda. Hér hefur hvergi verið kastað til höndum. Höfundar hafa lengi setið við og skilað frábæru verki fyrir þá sem áhuga hafa á íslenskri náttúru og gróður- fari; prófarkalestur hefur verið vandaður. For- lagið hefur búið bókinni einkar snotran ytri búnað. Brennisóley prýðir hvíta bókarkápu sem er fóðruð grænu taui neðanvert þar sem bókar- heiti er þrykkt. Það er full ástæða til að óska öll- um vandamönnum útgáfunnar til hamingju með úrvalsverk. Smávinir fagrir, foldarskart Sjaldséðar Sumar jurtir hafa einungis fundist á einum stað. Þannig vex ginhafri (t.v.) í Pétursey og knjápuntur (t.v.) innst í Herjólfsdal. Fræði Flóra Íslands – Blómplöntur og byrkningar bbbbb Höfundar: Hörður Kristinsson, Jón Baldur Hlíðberg og Þóra Ellen Þórhallsdóttir, í samstarfi við Náttúrufræðistofnun Íslands. Vaka-Helgafell 2018. Innbundin, í stóru broti, 742 bls.; orðskýringar, íslensk og latnesk tegundaskrá, tilvísanir og heimildir. SÖLVI SVEINSSON DÓMUR Flóra Íslands Meginbálkur bókarinnar er lýsing á ættum jurtanna og hverri tegund innan þeirra fylgir mynd eða myndir Jóns Baldurs Hlíðbergs, „teiknaðar og málaðar af mikilli hind“ að mati rýnis.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.