Morgunblaðið - 06.12.2018, Qupperneq 84
Ísland allt á myndum
Heimsókn til
Íslands olli
straumhvörfum í
lífi Max Milligans
Morgunblaðið/RAX
Straumhvörf Max Milligan féll fyrir Íslandi í sinni fyrstu heimsókn hingað.
Ljósmynd/Max Milligan
Jafnvægi Í bókinni eru margar myndir af mannífi.
Ljósmynd/Max Milligan
Landslag Í bókinn er talsvert af myndum af landslagi á öllum árstímum og beina margar sjónum að samspili forma, ljóss og skugga.
Ljósmynd/Max Milligan
Fólk Margrar portettmyndir eru í bókinni og sumar af þekktum listamönnum, þar á meðal mynd af Magnúsi Þór Jónssyni, Megasi.
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Um það leyti sem Íslendingar
fögnuðu fullveldisafmæli kom út
bókin Ísland – allt sem er sem
hefur að geyma ljósmyndir Max
Milligans sem hann hefur tekið
hér á landi á undanförnum árum,
en hann gefur bókina einmitt út
öðrum þræði til að fagna 100 ára
fullveldi Íslands.
Max Milligan starfaði lengi sem
tökumaður við gerð heimildar-
mynda, meðal annars hjá BBC, en
1993 fór hann að starfa sem ljós-
myndari og rithöfundur. Fyrsta
bók hans kom svo út 1999 og
fjallaði um forn mannvirki. Síðan
eru bækurnar orðnar nokkrar og
Íslandsbókin er sú sjöunda.
Milligan hóf að taka ljósmyndir
á Íslandi 7. febrúar 2015 og man
daginn svo vel því þá urðu vatna-
skil í lífi hans. „Ég hafði nýlokið
við stóra bók um Afríku sem ég
gerði fyrir olíufyrirtæki og
alþjóðadýraverndunarsamtök.
Þetta var mjög pólitísk og erfið
bók og ég fékk nóg af ljósmyndun
og nóg af bókagerð – ég fékk eig-
inlega nóg af öllu.“ Ekki löngu
síðar kom hann hingað til lands í
fyrsta sinn, rétt fyrir fimmtugs-
afmæli sitt. Þá stóð ekki til að
taka myndir, en hann varð svo
ástfanginn af landinu að hann fékk
ljósmyndunaráhugann aftur.
Myndirnar í bókinni eru teknar
í ferðum Milligans um Ísland á
síðastliðnu hálfu fjórða ári. Marg-
ar þeirra eru landslagsmyndir, en
talsvert er líka af myndum af fólki
og fénaði, uppákomum og menn-
ingu.
Myndirnar segja sögu
„Ég hef skoðað mikið af ljós-
myndabókum og grúa af ljós-
myndum frá Íslandi, en þó mér
þyki landlag fallegt þá er það eins
og með súkkulaði, ef ég fæ of mik-
ið af því verður mér bumbult. Að
frátöldum bókunum hans Raxa,
sem ég verð aldrei leiður á, þá
leiðist mér að sjá ekkert nema
landslagsmyndir, mig langar alltaf
að vita hver búi í þessu landslagi.
Mér finnst frábært að finna
jafnvægið á milli þessa tvenns,
þannig að ég hef gjarnan fimm
eða sex myndir af landslagi og
byggingarlist og síðan annað eins
af myndum af fólki. Fyrir vikið er
ekki of mikið af hvoru fyrir sig og
þar sem bókinni er skipt eftir árs-
tíðum, hefst á nýársdag og miðar
svo fram eftir árinu, þá eru mynd-
irnar að segja sögu.“
Langar að gera annað bindi
Eins og fram kemur eyddi Milli-
gan ríflega þremur síðustu árum í
að keyra um landið og taka mynd-
ir, en hann segist þó fráleitt vera
búinn að segja það sem hann vildi
um land og þjóð.
„Ef þessi bók gengur vel langar
mig til að gera annað bindi Ég á
til að mynda eftir að fara til
Surtseyjar, fékk ekki leyfi til þess,
og svo á ég eftir að skoða Horn-
strandir betur. Nokkrar af port-
rettmyndum mínum tókust líka
ekki nógu vel fyrir minn klaufa-
skap og komust því ekki í bókina.
Ég þyrfti að taka þær aftur og svo
á ég fimmtíu myndir til viðbótar
sem komust ekki inn í þessa bók.
Ég er reyndar líka byrjaður á
annarri bók um Ísland, nota allar
afsakanir til að komast hingað aft-
ur. Núna er ég að gera bók þar
sem ég fer um landið og tek
myndir af helstu safngripum í öll-
um 162 söfnum sem starfa á Ís-
landi. Í leiðinni ætla ég svo að
taka myndir í næsta bindi.“
84 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2018