Jólastjarnan - 01.12.1922, Side 15

Jólastjarnan - 01.12.1922, Side 15
13 og ætíð, þegar gott barn sofnar, þá kemur hann að rúminu þess og leggur hendina á höfuð þess og lætur það dreyma fagra drauma um englana og móður sína, því honum þótti svo vænt um hana, þegar hann var að deyja“. „Pabbi minn“, sagði drengurinn eftir litla stund, og var gráthljóð í röddinni. „Jeg ætla altaf að vera góður við hana mömmu, og ef jeg dey, þá verður hún kannske góð við mig líka“. „Hún verður það, drengur minn, þótt þú lifir“, sagði faðirinn, „ef þú verður góður við hana“. í þessu opnuðust dyrnar og móðirin kom inn með tár í augum, því hún hafði staðið utan við hurðina og heyrt alt, sem fram fór í herberginu, og hún var alvarleg á svipinn og bauð af sjer góð- an þokka á þessari stundu. Drengurinn gekk á móti henni hikandi og sagði lágt, svo varla heyrðist: „Jeg ætla altaf að vera góður við þig, mamma. Hann pabbi sagði mjer sögu af góðri mömmu, sem átti fallegan dreng, sem dó, og hann dreymdi um hana við gröfina, og alt, sem fallegt var, og mamma hans grjet svo mikið, eins og þú mundir gráta, ef jeg dæi, en hann fór með vísur og bað hana að gráta ekki. Jeg ætla altaf að vera góður við þig, mamma mín. Ef jeg dey, þá má jeg til að vera það“. „Guði sje lof fyrir þetta kvöld“, sagði móðirin og tók hann í faðm sjer og kysti. „Jeg skal altaf vera góð við þig líka“. En faðirinn sat og horfði á, og var hógvært sig- urbros á vörum hans, eins og oft er hjá göfugum mönnum, þegar þeir eru sjer þess meðvitandi, að þeir hafi komið einhverju góðu til leiðar. Og nú

x

Jólastjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólastjarnan
https://timarit.is/publication/1336

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.