Jólastjarnan - 01.12.1922, Side 19

Jólastjarnan - 01.12.1922, Side 19
17 hinni minstu hríslu í skógi þessum, af illum hvöt- um“. „Nú, ekki það. En þessi hrísla, sem þarna ligg- ur, sem þú getur ekki haft hið minsta gagn af? Hvað segir þú um það?“ sagði von Gallheim. „Fyrirgefið, herra minn — jólatrje handa bam- inu mínu“. „Ha, ha, ekki ólagleg afsökun, en handsamaðan þjóf lætur maður nú samt ekki frá sjer hlaupa. Skógarvörður, viljið þjer binda hann og fara með hann? Veggir hallardýflissunnar munu varla gjöra honum mein fram yfir hátíðina“. Lorenz stappaði þungt í harðann mosann. Hið innra ólgaði reiði og hrygð, og óþægilegar andstæð- ur. Annað augnablikið fann hann, að hann var þjóf- ur, og hitt augnablikið fanst honum hann vera ranglæti beittur; en hann sagði ekkert orð lengur. þögull og þungbúinn horfði hann niður á jörðina og ljet mótþróalaust léiða sig á brott. Já, fljótt var nú að breytast veður í lofti. Svona var það nú komið. Hann, sem alla æfi hafði álitið sig heiðarlegan mann og aldrei viljað vamm sitt vita, var nú leiddur til dýflissunnar, þar sem áður hafði setið ræningi, og á eftir mundi koma um- renningurinn. það var jóladýrðin hans. Ó, já. — En jólatrjeð lá eftir á frosinni jörðinni, og í stað hinna hlýju jólaljósa glitruðu nú kaldar ís- perlumar á greinum þess. II. Reiður út af trjástuldinum, en þó jafnframt ánægður yfir að hafa komist fyrir hann, kom nú 2

x

Jólastjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólastjarnan
https://timarit.is/publication/1336

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.