Jólastjarnan - 01.12.1922, Side 24

Jólastjarnan - 01.12.1922, Side 24
22 Konan í litla húsinu kveikti á kerti. pað var rautt að lit, og ljósið bar föla birtu. En oft og mörgum sinnum hafði verið látið loga á því áður. jpegar faðir Lorenzar dó, hafði logað á því. þegar skammdegishlákumyrkrið datt yfir og skriðuhrap- :ð kom brunandi ofan frá Dimmufjöllum og stefndi á húsið, hafði logað á því; og þegar að því kæmi, að Lorenz Hackbretter og hin trygglynda eigin- kona hans lokuðu augunum í síðasta sinni, eftir langa og stranga lífdaga, átti að láta loga á rauða kertinu. Og nú logaði einnig á því, þegar hinn elsti í húsinu var horfinn — hið flekklausa mannorð. — það var ljós dauðans. Húsmóðirin kraup á knje fyrir framan ljósið og bað. Bæn hennar var ekki þrungin þungri ástríðu. Hún bað í lotningu andans og auðmýkt hjartans. „Heilagi Guðssonur“, mælti hún. „1 þínar hendur fel jeg sorg mína og áhyggjur. Hann getur ekki hafa gjört neitt ilt. pað er mín stöðuga bæn, að verndarengill hans megi aldrei sleppa af honum vemdarhendi sinni. Ó, Guð, jeg vil taka á móti örbyrgð og hverskonar böli, — en ekki vömm og vansæmd". „Nú er hann að koma fyrir utan“, hvíslaði Magda- lena, og hlustaði við. Og í sannleika. það var ekki hávaðinn í storminum á húsþakinu, eða þyturinn í mjöllinni við gluggann. — það voru barin þjett- ingshögg á hurðina. — Móðirin greip ljósið og skundaði til dyranna. IV. Úti stóð ókunnur drengur, einkennilegur sveinn,

x

Jólastjarnan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jólastjarnan
https://timarit.is/publication/1336

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.