Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2019, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2019, Síða 26
Sumarið 3. apríl 2019KYNNINGARBLAÐ Verkefnið steinliggur með Steypustöðinni Framleiðsla Steypustöðvarinnar er að stærstum hluta steypa í húsbyggingar, hvort sem um er að ræða innveggi, sökkla, plötur eða útveggi o.fl. „Við erum með einingaverksmiðju í Borgarnesi þar sem framleiddar eru húseiningar, holplötur, steinrör og fleira.“ Að auki býr Steypustöðin yfir flotdeild og er með sérhannaða flotbíla. „Þessir bílar eru algjör bylting í þeim geira,“ segir Viðar Hreinn Olgeirsson sölustjóri – Hellur og múr. Þú þarft ekki að leita langt yfir skammt Þegar kemur að framkvæmdum getur verið töluvert mál að finna rétta aðila til þess að vinna verkin vel og vandlega. Oft þarf að fara á marga staði til að finna rétta efnið og hafa samband við marga til þess að framleiða mismunandi hluta fyrir verkefnið. Steypustöðin hefur ávallt haft það að leiðarljósi að vera lausnamiðað fyrirtæki. „Hjá okkur hefur viðskiptavinurinn gott úrval þegar kemur að því að velja allt frá hleðsluveggjum, hellum og hleðslusteinum, allt niður í skraut- möl í garðinn. Einnig sérsmíðum við fyrir ýmis verkefni ef þess þarf. Við viljum gera allt eins auðvelt og hægt er fyrir viðskiptavini okkar og að þeir þurfi ekki að flakka á milli fyrirtækja. Auðvitað geta komið upp tilfelli þar sem nauðsynlegt er að tala við fleiri en einn aðila, en alla jafna reynum við að leysa verkefnin sjálfir, snöggt og örugglega.“ Sérsmíði „Sérsmíðin fer aðallega fram í einingaverksmiðjunni í Borgarnesi, en þá bjóðum við upp á alls konar útfærslu á t.a.m. stigum, svölum og mörgu fleiru sem tengt er ákveðnum verkefnum.“ Stolt af verkefnum sínum „Við í Steypustöðinni erum sérlega stolt af verkefni Allrahanda við Hótel Hamar í Borgarnesi í fyrra. Þar notuðust þeir við hleðslusteina úr nýrri vörulínu hjá okkur. Hleðslu- steinninn sem notast var við kallast kallast Megaloc og kemur afskaplega vel út og má sjá mynd af því á heima- síðunni okkar steypustodin.is. Einnig erum við mjög stolt af verkefni sem var gert við Bláa lónið og vann til Steinsteypuverðlaunanna 2019 og JÁ verk var framkvæmdaraðili við.“ Glæný vörulína í sumar „Í sumar bjóðum við upp á glænýja vörulínu í hleðslusteinum. Þá erum við með fallegar og einfaldar lausnir við hellur og hleðslu í t.d. görðum eða við hæðarmismun í plönum. Hægt er að skoða ítarlegan bækling um vörulínuna á vefsíðunni okkar. Einnig er tilvalið koma við á Malar höfðanum eða Hringhellu til þess að skoða úrvalið og ræða við sölumenn okkar og fá upplýsingar um hinar fjölmörgu lausnir sem Steypustöðin hefur upp á að bjóða. En við erum einmitt að endurnýja sýningarsvæðið okkar á Malarhöfðanum þar sem hleðslu- steinar úr nýju vörulínunni okkar verða aðal númerið,“ segir Viðar. Starfsstöðvar Steinsteypunnar eru fjölmargar: n Malarhöfða 10, 110 Reykjavík n Hringhellu 2, 221 Hafnarfirði n Helguvíkurvegi 3, 250 Garði n Engjaási 2, 310 Borgarnesi n Hrísmýri 8, 800 Selfossi og n Smiðjuvegi, 870 Vík. Hafðu samband í síma 440-0400 eða í netpósti: steypustodin@steypustodin.is Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðunni steypustodin.is Facebook: Steypustöðin Instagram: Steypustodin Viðar Hreinn Ol- geirsson, við nýja sýningarsvæðið á Malarhöfða. Megaloc steinn úr hleðslunni við Hótel Hamar í Borgarnesi. Megasmart steinn úr nýrri vörulínu hleðslu- steina hjá okkur. Megasmart steinn. Train steinn úr nýrri vörulínu hleðslu- steina hjá okkur. Mynd af Train steinn á sýningarsvæðinu okkar á Malarhöfða. Train steinn á sýningarsvæðinu okkar. Boston Antik steinn af sýningarsvæð- inu okkar á Malarhöfða. Úr nýrri vörulínu hleðslusteina hjá okkur. Mynd af Boston Antik hleðslusteini.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.