Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2019, Blaðsíða 26
Sumarið 3. apríl 2019KYNNINGARBLAÐ
Verkefnið steinliggur
með Steypustöðinni
Framleiðsla Steypustöðvarinnar er að stærstum hluta steypa í húsbyggingar, hvort sem um
er að ræða innveggi, sökkla, plötur
eða útveggi o.fl. „Við erum með
einingaverksmiðju í Borgarnesi þar
sem framleiddar eru húseiningar,
holplötur, steinrör og fleira.“ Að auki
býr Steypustöðin yfir flotdeild og er
með sérhannaða flotbíla. „Þessir bílar
eru algjör bylting í þeim geira,“ segir
Viðar Hreinn Olgeirsson sölustjóri –
Hellur og múr.
Þú þarft ekki að leita langt yfir
skammt
Þegar kemur að framkvæmdum
getur verið töluvert mál að finna
rétta aðila til þess að vinna verkin
vel og vandlega. Oft þarf að fara
á marga staði til að finna rétta
efnið og hafa samband við marga
til þess að framleiða mismunandi
hluta fyrir verkefnið. Steypustöðin
hefur ávallt haft það að leiðarljósi
að vera lausnamiðað fyrirtæki. „Hjá
okkur hefur viðskiptavinurinn gott
úrval þegar kemur að því að velja
allt frá hleðsluveggjum, hellum og
hleðslusteinum, allt niður í skraut-
möl í garðinn. Einnig sérsmíðum við
fyrir ýmis verkefni ef þess þarf. Við
viljum gera allt eins auðvelt og hægt
er fyrir viðskiptavini okkar og að þeir
þurfi ekki að flakka á milli fyrirtækja.
Auðvitað geta komið upp tilfelli þar
sem nauðsynlegt er að tala við fleiri
en einn aðila, en alla jafna reynum við
að leysa verkefnin sjálfir, snöggt og
örugglega.“
Sérsmíði
„Sérsmíðin fer aðallega fram í
einingaverksmiðjunni í Borgarnesi,
en þá bjóðum við upp á alls konar
útfærslu á t.a.m. stigum, svölum og
mörgu fleiru sem tengt er ákveðnum
verkefnum.“
Stolt af verkefnum sínum
„Við í Steypustöðinni erum sérlega
stolt af verkefni Allrahanda við
Hótel Hamar í Borgarnesi í fyrra.
Þar notuðust þeir við hleðslusteina
úr nýrri vörulínu hjá okkur. Hleðslu-
steinninn sem notast var við kallast
kallast Megaloc og kemur afskaplega
vel út og má sjá mynd af því á heima-
síðunni okkar steypustodin.is. Einnig
erum við mjög stolt af verkefni sem
var gert við Bláa lónið og vann til
Steinsteypuverðlaunanna 2019 og
JÁ verk var framkvæmdaraðili við.“
Glæný vörulína í sumar
„Í sumar bjóðum við upp á glænýja
vörulínu í hleðslusteinum. Þá erum
við með fallegar og einfaldar lausnir
við hellur og hleðslu í t.d. görðum eða
við hæðarmismun í plönum. Hægt
er að skoða ítarlegan bækling um
vörulínuna á vefsíðunni okkar. Einnig
er tilvalið koma við á Malar höfðanum
eða Hringhellu til þess að skoða
úrvalið og ræða við sölumenn okkar
og fá upplýsingar um hinar fjölmörgu
lausnir sem Steypustöðin hefur upp
á að bjóða. En við erum einmitt að
endurnýja sýningarsvæðið okkar á
Malarhöfðanum þar sem hleðslu-
steinar úr nýju vörulínunni okkar
verða aðal númerið,“ segir Viðar.
Starfsstöðvar Steinsteypunnar eru
fjölmargar:
n Malarhöfða 10, 110 Reykjavík
n Hringhellu 2, 221 Hafnarfirði
n Helguvíkurvegi 3, 250 Garði
n Engjaási 2, 310 Borgarnesi
n Hrísmýri 8, 800 Selfossi og
n Smiðjuvegi, 870 Vík.
Hafðu samband í síma 440-0400
eða í netpósti:
steypustodin@steypustodin.is
Nánari upplýsingar er að finna á
vefsíðunni steypustodin.is
Facebook: Steypustöðin
Instagram: Steypustodin
Viðar Hreinn Ol-
geirsson, við nýja
sýningarsvæðið
á Malarhöfða.
Megaloc steinn úr hleðslunni
við Hótel Hamar í Borgarnesi.
Megasmart
steinn úr nýrri
vörulínu hleðslu-
steina hjá okkur.
Megasmart steinn.
Train steinn úr nýrri vörulínu hleðslu-
steina hjá okkur.
Mynd af Train steinn á sýningarsvæðinu
okkar á Malarhöfða.
Train steinn á sýningarsvæðinu okkar.
Boston Antik steinn af sýningarsvæð-
inu okkar á Malarhöfða. Úr nýrri vörulínu
hleðslusteina hjá okkur.
Mynd af Boston Antik hleðslusteini.