Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.2019, Blaðsíða 47
FÓKUS 473. maí 2019
ógleymanleg upplifun. Mér fannst
mikilvægt að dömubindin kæmu
frá Indlandi og eftir mikla leit
keypti ég bindin í gegnum Pads
for Sisters hjá Ecofemme sem er
virkilega frábært framtak hjá flottu
fyrir tæki.“
Alexandra kveðst virkilega
snortin og þakklát þeim sem tóku
þátt í að styrkja málefni henn-
ar og hvetur fólk til þess að fylgja
draumum sínum.
„Ég vil þakka öllum þeim Ís-
lendingum sem styrktu þetta mál-
efni, suma hef ég aldrei hitt. Svo
var líka gaman að sjá hvað það
voru margar konur sem að keyptu
sín eigin endurnýtanlegu dömu-
bindi eftir að sjá þetta! Ég nota
sjálf endurnýtanleg dömubindi og
ég elska þau. Ekkert plast og engin
skaðleg efni, bara bómull eða
bambustrefjar, virkilega þægilegt
og svo hendir maður þessu bara í
þvottavélina. Mig langar til þess að
hvetja alla til þess að elta drauma
sína. Ég trúi því svo innilega að allt
sé hægt og að enginn draumur sé
of stór!
Bestu augnablikin í mínu lífi
hafa öll komið af því að ég fór út
fyrir þægindarammann minn.
Þrátt fyrir hræðslu og þekk-
ingarskort lét ég það ekki stoppa
mig, og ég vil hvetja annað fólk til
þess að gera slíkt hið sama.
Spurningin er, hvað er það sem
þig hefur alltaf langað til að gera?
Til að hjálpa, eða starfa við, en hef-
ur aldrei þorað?
Eins og breska tilvitnunin seg-
ir: „Life begins at the end of your
comfort zone.“
Eftir hverju ert þú að bíða?“ n
MATSÖLUSTAÐUR
SKEMMTISTAÐUR
RÁÐSTEFNUR
ÁRSHÁTÍÐIR
VEISLUR
RÁIN ER ALHLIÐA VEITINGAHÚS
Í REYKJANESBÆJARhjarta
„Margar stelpur mæta ekki í skólann, eða
hreinlega hætta þegar þær byrja á blæðingum“
„Hvað er
það sem
þig hefur alltaf
langað til að
gera?
Ævintýramanneskja
Alexandra ferðaðist um
heiminn í heilt ár sem
barnfóstra.
Jafnréttismál Meirihluti
kvenna í Indlandi hefur ekki
aðgang að dömubindum.