Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Qupperneq 4
4 17. maí 2019FRÉTTIR Barnakarlar og -kerlingar á þingi Í Landnámu segir: „Ölvir barnakarl hét maður ágætur í Noregi; hann var vík- ingur mikill. Hann lét eigi henda börn á spjótaoddum, sem þá var víkingum títt; því var hann barnakarl kallaður.“ Margir barnakarlar sitja nú á hinu háa Alþingi, í Miðflokknum og Sjálfstæðisflokknum. Nokkrar barnakerlingar líka og hæst bylur þar í Ingu Sæland eins og henni einni er lagið. Í vikunni var kos- ið um ný lög um fóstureyðingar. Ekki skipaði sjálfur barnamála- ráðherrann, Ásmundur Einar, sér í lið með hinum barnakörlunum þó. Gífuryrði barnakarlanna og -kerlinganna voru mikil þegar þingmenn gerðu grein fyrir at- kvæði sínu. Lýstu þeir yfir megnri andúð á frumvarpinu. Sumir þeirra hafa látið gamminn geisa á þingi undanfarna daga. Sæland sagði til dæmis að verið væri að taka ákvörðun um að drepa börn í móðurkviði. Svarthöfði tók vel eftir þessu í atkvæðagreiðslunni og sá dráps- fýsnina í augum þeirra sem sögðu glaðhlakkalega já við frumvarp- inu. Fólk sem veit greinilega ekk- ert betra en að kasta börnum á spjótsodda, hlægja og skála í miði á eftir. Fátt veitir þeim meiri gleði en að drepa börn. Sjóða þau í potti eins og skessan Grýla og rífa þau í sig með brjóski og beinum. Svarthöfði hjó einnig eftir því að barnakarlarnir og barnakerl- ingarnar hafa ekki alltaf verið barnanna best þegar kemur að málefnum barna. Mestmegnis eru þetta eldri menn og í íhalds- samari kantinum. Ekki rekur Svarthöfða minni til þess að þeir hafi barist fyrir málefnum barna fyrr, beitt sér fyrir auknum fjár- munum til barnabóta eða fjár- stuðningi við barnafjölskyldur. Þarna eru til dæmis þingmenn eins og Ólafur Ísleifsson og Ás- mundur Friðriksson sem hafa verið ómyrkir í máli þegar kemur að málefnum hælisleitenda. Gild- ir þá einu hvort þeir eigi börn eða ekki, sem rifin eru upp um miðjar nætur og send með næturflugi út í óvissuna. Þarna er einnig Brynj- ar Níelsson lögmaður sem meðal annars varði Ágúst Magnússon, einn alræmdasta barnaníðing Ís- landssögunnar. Og Sigríður Á. Andersen sem gekk svo vask- lega fram í að halda upplýsing- um um uppreista æru leynd- um fyrir þolendum tveggja barnaníðinga. Svo vasklega að ríkisstjórn Íslands sprakk í kjölfarið. Siðferðispostularnir eru fleiri innan raða barnakarla og -kerlinga sem ganga nú fram með sverð og skjöld. Varla þarf að minnast á Klausturdónana. Bergþór Ólason sem fann skrokk- inn sem „typpið á honum dugði í“ og Gunnar Braga Sveinsson sem vildi hjóla í „helvítis tíkina.“ En í þessari viku gátu barna- karlarnir og barnakerlingarnar barið sér á brjóst, klappað sér á bakið og slegið sig til riddara sem helstu málsvara góðs siðgæðis og umhyggju fyrir börnum. n Svarthöfði Það er staðreynd að… Fuglar geta flogið sofandi. 40 prósent jóla á Íslandi eru hvít og 60 prósent rauð. Orðið skóli er dregið af gríska orðinu skhol sem þýðir frí. Full nafn Barbie er Barbara Millicent Roberts. Heilagur Gummarus frá Saxlandi er verndardýrlingur fráskilins fólks og þeirra sem þjást af kviðsliti. Hver er hún n Er 36 ára og frá Akureyri. n Stofnaði dansskóla. n Var valin Framúr­ skarandi ungur Norð­ lendingur árið 2013. n Rakaði hár sitt á Glerártorgi til að safna fyrir sjálfboðaliðaferð til Úganda. n Nýlega hætt sem umsjónarkona Stundarinnar okkar. SVAR: SIGYN BLÖNDAL YFIRHEYRSLAN Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir er Ís- lendingum að góðu kunn sem fjölmiðlakona, sjón- varpskokkur og vinsæll bloggari. Hún hefur meðal annars gefið út matreiðslubækurnar Matargleði Evu og Kökugleði Evu og stýrt þáttunum Ísskápastríði á Stöð 2. DV tók Evu Laufey í yfirheyrslu. Hjúskaparstaða og börn? Gift Haraldi Haraldssyni og við eig­ um tvær stelpur, Ingibjörgu Rósu (4) og Kristínu Rannveigu (1). Fyrsta atvinnan? Ég vann samhliða skólanum á elli­ heimili, sambýli og sem flugfreyja hjá Icelandair. Ég byrjaði svo hjá Stöð 2 árið 2013. Skemmtilegast að gera? Ég er mjög heppin að vinna við það sem mér þykir skemmtilegast; að elda góðan mat og hitta skemmti­ legt fólk. Það skemmtilegasta sem ég geri þó er að verja tíma með stelpunum mínum og manninum mínum, þau eru kjarninn minn og ég elska að gera eitthvað skemmti­ legt með þeim. En leiðinlegast? Ef ég á að vera alveg heiðarleg að þá finnst mér ekkert leiðinlegra en að brjóta saman þvott og ganga frá honum. Trúir þú á drauga? Ég get ekki beint sagt að ég trúi á drauga en ég trúi á góða anda og ég er handviss um að fólkið okkar sem er farið fylgist vel með okkur. Besta ráð sem þú hefur fengið? Að vera ég sjálf … hljómar undar­ lega, en í starfi mínu þá er auðvelt að detta í smá hlutverkagír og þess vegna er þetta besta ráðið sem ég hef fengið. Ég get ekki verið neitt annað en ég sjálf. Mannkostir þínir? Það er nú erfitt að segja, en ætli ég sé almennt góð við dýr og menn (þetta er of mikið sjálfshól fyrir mig). En lestir? Kannski of ákveðin stundum, bara stundum. Fyrsti bíllinn? Maðurinn minn hefur svolítið stjórnað þessum bílakaupum en fyrsti bíllinn okkar saman var Alfa Romeo fyrir rúmlega 12 árum. Leiðinlegasta húsverkið? Frágangur á þvotti, enn og aftur. Uppáhaldseftirréttur- inn? Tíramisú. Furðulegasti matur sem þú hefur smakkað? Erfitt að segja, súrmatur er furðulegur og ætli það sé ekki bara furðulegasti matur sem ég hef smakkað. Ertu A- eða B-mann- eskja? Ég er A­manneskja. Hver er fyrirmynd þín í lífinu? Foreldrar mínir eru þar fremstir í flokki, en svo á ég margar góðar fyrirmyndir en ég datt í þann lukkupott að eiga marga góða að og svo hef ég unnið með framúrskarandi fólki úr öllum áttum sem ég læri mikið af. Fyrsta minn- ingin þín? Ég man eftir mér í brúðkaupi hjá mömmu minni og pabba, ég var rúmlega tveggja ára og ég man eftir dúkkunni sem ég hélt á og brot úr deginum. Ert þú góður söngvari? Ég myndi segja það – hins vegar eru ekki margir sem taka undir það :D. Hvað er mikilvæg- ast í lífinu? Að fylgja hjartanu og gera það sem mann langar. Lifa í núinu og njóta þess að verja tíma með fólkinu okkar, það er mikilvægast af öllu. Eva Laufey Kjaran 4745587 MYND: HANNA/DV
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.