Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Page 16
16 FÓKUS 17. maí 2019 Ú rslitakeppni Eurovision fer fram næsta laugardagskvöld og eigum við Íslendingar fulltrúa í úrslitum í fyrsta sinn síðan árið 2014. Af því tilefni ákvað DV að kíkja á sögurnar á bak við nokkur af okkar þekktustu Eurovision-lögum. Þrýst á Jóhönnu Guðrúnu að sýna meira hold Óskar Páll Sveinsson er einn af lagahöfundum Is It True?, þess framlags Íslendinga í Eurovision sem hefur náð hvað bestum ár- angri. Lagið var hins vegar ekki samið upprunalega fyrir Eurovision. „Þetta lag fæddist um árið 2005 minnir mig. Á þeim tíma bjó ég í London og var að vinna sem laga- höfundur og upptökustjóri. Ég var með útgáfusamning við Sony London. Þetta vildi þannig til að kunningi minn, sem heitir Chris Neil, er einn af upptökustjórum Celine Dion og hringdi í mig og sagðist vera að vinna plötu með rússneskri söngkonu, Tinatin Japaridze, sem væri sennilega allavega jafngóð og Celine Dion. Ég sperri alltaf eyrun þegar ég heyri eitthvað svona,“ segir Óskar Páll og heldur áfram. „Hann sagði mér að þau væru að leita að meðhöfundum til að semja lög á plötuna hennar og spurði hvort ég væri ekki til í að semja með henni eitt lag. Þetta var það sem ég var að vinna við á þessum tíma og auðvitað er ekk- ert skemmtilegra en að vinna með góðum söngvurum. Það er það sem gaf manni alltaf mest – góð- ar raddir. Það er ekkert sem topp- ar það.“ Lagið samið á nokkrum tímum Í framhaldinu fór Óskar Páll í hljóðver með fyrrnefndum Chris og söngkonunni og allt small saman. „Ég var tilbúinn með grunn- hugmyndina þegar að þau komu í stúdíóið. Þau kveiktu strax á því sem ég var búinn að gera. Ég var búinn að hnoða deigið, síðan var brauðið bakað og sett smá glassúr ofan á. Við gerðum það í sam- einingu og út kom þetta lag, Is It True?“ Textasmíðin gekk eins og í sögu og segir Óskar Páll að fæðing lags- ins hafi verið auðveldari en með mörg önnur lög. Þríeykið var mætt í hljóðverið klukkan 11 og var demó af laginu tilbúið klukkan 17. „Síðan liðu nokkur ár og það bólaði ekkert á þessari plötu hennar. Þá kom á daginn að hún ákvað að hætta við að gefa út plötu því henni bauðst að fara í mjög eftirsótt nám í Columbia-háskóla í New York, með áherslu á sam- skipti Rússlands og Bandaríkj- anna. Þá lá þetta lag uppi í hillu hjá mér. Þegar ég flutti heim til Ís- lands sá ég auglýsingu fyrir lög í Eurovision. Þá poppaði þetta lag upp í hausinn á mér, en vanda- málið við það er það getur nánast enginn sungið þetta almennilega. Mér datt strax Jóhanna Guðrún í hug því ég bara gat ekki ímyndað mér að nokkur önnur söngkona sem ég þekkti gæti ráðið við þetta. Ég spilaði fyrir hana lagið og hún var strax til í þetta.“ Stundin sem rústaði taugakerfinu Eins og allir vita komst lagið í Söngvakeppnina og bar sigur úr býtum. Það bjuggust hins vegar fáir við því að þetta yrði framlag Ís- lands árið 2009. „Þetta lag var aðeins undir radarnum hjá flestum hér heima. Fyrstu viðbrögð hjá nokkrum Eurovision-sérfræðingum voru alls ekki góð. Þeim leist ekkert á að senda svona lítið Eurovision-legt lag í þessa keppni. Út af þessari umræðu fórum við út með mjög litlar væntingar,“ segir Óskar Páll, sem varð þó enn vonminni þegar úrslit undanriðilsins í Eurovision- -keppninni í Rússlandi voru kunn- gjörð. Eins og margir muna var Ís- land lesið síðast upp í úrslitin. „Ég var algjörlega búinn að missa vonina. Ég gleymi seint þegar nafn lagsins var lesið upp. Sú stund algjörlega rústaði tauga- kerfinu. Þetta var alveg fárán- legt. Það voru svo mörg lög eft- ir í pottinum sem flestir töldu að væru örugg áfram og okkar lag var ekki eitt af þeim. Það bjóst enginn við að heyra Ísland sem síðasta lag inn,“ segir Óskar Páll, en eftir úrslitakeppnina kom í ljós að Jó- hanna Guðrún sigraði í undan- riðlinum og eins og flestir vita varð hún í öðru sæti í úrslitakeppninni. Þrýst á kjólabreytingu Það var þó ekki bara lagið sem fékk slæma dóma Eurovision-spekinga heldur einnig kjóllinn frægi sem Jóhanna Guðrún klæddist í Rúss- landi. „Fólk annaðhvort elskaði hann eða hataði hann út af lífinu,“ segir Óskar Páll, en vissir aðilar tengd- ir keppninni þrýstu á Óskar Pál að skipta kjólnum út fyrir eitt- hvað efnisminna. „Það var meðal annars komið að máli við mig og ýtt á mig um það hvort það ætti ekki að setja hana í stuttan, fleg- inn kjól. Sýna meira hold. Ég fékk að heyra það frá nokkrum að ég væri klárlega að tapa fjölmörg- um stigum með því að hafa hana ekki í flegnari kjól. Ákveðnir aðil- ar voru algjörlega harðir á því að það þyrfti að sýna meira hold til að komast áfram í keppninni og sögðu klárt að við kæmumst ekki upp úr undankeppninni. Ég fékk að heyra að ég bæri þá ábyrgð á því að við kæmumst ekki upp úr undankeppninni,“ segir Óskar Páll. Hann stóð hins vegar fastur á sínu. „Mér fannst aldrei góð hug- mynd að hafa kjólinn styttri og flegnari. Mér fannst hætta á því að það myndi skyggja á þessa frá- bæru rödd og lagið. Það má deila um kjólinn, eins og allt annað, en ég tel að hann hafi hjálpað okkur heilmikið.“ Óskar Páll rekur í dag fram- leiðslufyrirtækið Yoda Film og vinnur að heimildamyndagerð og kynningarmyndböndum. Hann er nú á Vestfjörðum að fylgja Veigu Grétarsdóttur er hún fer á kajak rangsælis í kringum landið. Út- koman verður heimildamynd um ferðalagið sem mun heita Á móti straumnum. Hann er ekki alveg hættur í tónlist og útilokar ekki að taka aftur þátt í Eurovision. Varð- andi framlag Íslands í ár, Hatara, segist hann vera hæstánægður með það. „Mér sýnist þeir vera með sitt atriði svo gjörsamlega á hreinu að ég gæti ekki gefið þeim nokkur einustu ráð. Ég styð þá 100 prósent í því sem þeir eru að gera,“ segir Óskar Páll. Óskar Páll við tökur á Grænlandi. Jóhanna Guðrún í kjólnum umdeilda. Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is Sögurnar á bak við Eurovision-lögin n Þrýst á aðstandendur að breyta klæðnaði Jóhönnu Guðrúnar n Keppinautur reyndi að skemma fyrir Önnu Mjöll n Greta leitaði á þjóðlegar slóðir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.