Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Side 23
KYNNING BARNIÐ: Bílasmiðurinn verður á glæsilegri sölu- og þjónustu- sýningu í Laugardalshöll Bílasmiðurinn verður með glæsilegan bás á sýningunni Barnið 2019 sem haldin verður í Laugardalshöll með Lifandi heimili núna um helgina 18.–19. maí. Um er að ræða sölu- og þjónustu- sýningu fyrir verðandi foreldra, nýbakaða foreldra og tengda aðila. „Það verða margir stórir aðilar í barna- geiranum með bása á sýningunni og Bílasmiðurinn hf. verður með stóran og flottan bás þar sem við sýnum helstu barnastólana ásamt barnakerrum frá RECARO KIDS. Við búumst við að það verði mikið um að vera og margt að skoða,“ segir Erla Leifsdóttir hjá Bílasmiðnum. Sýningin var haldin síðast í Hörpu haustið 2016 og fékk frábærar viðtök- ur. Mættu þá um 10.000 manns og 40 sýnendur og kynntu þar vörur sínar og þjónustu. Í ár verða allir helstu söluaðil- ar á barnavörum með bás á sýningunni. Auk þess verða leiktæki fyrir yngstu kynslóðina. Nældu þér í miða á sölusýn- ingu ársins á midi.is. Recaro Kids: Gæðavörur og gott verð RECARO KIDS srl. framleiðir hina rómuðu RECARO barnabílstóla sem eru í algerum sérflokki hvað varðar gæði og öryggi. „Viljum við m.a nefna RECARO Zero1 360° sem hefur fengið fjölmörg hönnunarverðlaun. Við munum sýna alla barnastólalínuna frá RECARO KIDS sem við bjóðum á Íslandi.“ RECARO KIDS kerrurnar eru einnig mjög vinsælar hér á landi enda sterk- byggðar og traustar. Þær fást í tveimur gerðum, RECARO City Life og Easy Life, með mismunandi notkunarmöguleika. „Þess má geta að City Life kerran frá RECARO KIDS fékk þýsku hönnunar- verðlaunin í fyrra enda alveg einstak- lega flott og skemmtileg kerra sem auðvelt er að brjóta saman eða leggja bakið niður. Einnig verður til sýnis ýmiss konar aukabúnaður fyrir bæði bílstóla og kerrur.“ Það er um að gera að skella sér á sýninguna Barnið um helgina og kynna sér RECARO barnabílstólana. Nánari upplýsingar um vörurnar frá RECARO KIDS má nálgast á vefsíðunni recaro-kids.com. Opnunartími sýningarinnar er: 11–18 á laugardeginum og 11–17 á sunnudegin- um. Bílasmiðurinn er með bás númer A8. „Við hlökkum til að sjá sem flesta á sýningunni,“ segir Erla. RECARO KIDS barnabílstólar og kerrur fást hjá Bílasmiðnum hf. Bíldshöfða 16. Sími: 567-2330 Nánari upplýsingar má nálgast á bilasmiduirnn.is eða Facebook Recaro Ísland RECARO KIDS kerrur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.