Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Síða 28
Iðnaðarblaðið 17. maí 2019KYNNINGARBLAÐ
Háþrýstiþvottur er óhjákvæmilegur undanfari stórra málningarverkefna
utanhúss og ákaflega skilvirk aðferð
til að gera hús og byggingar klárar
undir málningu. Fyrirtækið ÁÁ
Verktakar ehf. er leiðandi á sviði
háþrýstiþvottar hér á landi og hefur
yfir að ráða afar öflugum búnaði
til slíkra verka, sem er allur í eigu
fyrirtækisins.
Til að hreinsa málningu af hús
um er notast við 500 bara hita
dælur sem geta hitað vatn upp í
100 gráður. Slíkar dælur eru einnig
notaðar í alls konar fitu og olíu
hreinsanir og víðar þar sem við á.
„Íbúðarhús eru oft hreinsuð með
um 300 til 500 bara þrýstingi og
köldu vatni sem dugar til að hreinsa
óhreinindi og gróður af húsum. En
svo geta verið öndunarvandamál og
vatnspokar og þá þarf að hreinsa
gömlu málninguna alla af, þ.e.
alhreinsun. Þá þarf að nota heitt
vatn,“ segir Áslaugur Einarsson,
framkvæmdastjóri ÁÁ Verktaka.
Fyrirtækið var stofnað árið 1991
og hefur það vaxið og dafnað
allar götur síðan. Auk háþrýsti
þvottar sérhæfir ÁÁ Verktakar ehf.
sig í viðhaldi fasteigna, til dæmis
múrviðgerðum, málningarvinnu,
trésmíðavinnu og annarri viðhalds
vinnu fasteigna.
Sem fyrr segir er búnaður ÁÁ
Verktaka til háþrýstiþvotta afar
öflugur:
„Við erum með 3.000 bara dælur
sem eru notaðar til að hreinsa
málningu af stáli. Enn fremur við
hreinsanir á túrbínuhjólum og
ýmsu öðru. Þrýstingurinn á þeim er
afar hár og þær mjög öflugar. Enn
fremur erum við með 1.500 bara
dælur, mjög vatnsmiklar, þær eru
meðal annars notaðar í virkjanir, til
að hreinsa úr borholum og rörum og
vörmum,“ segir Áslaugur.
Háþrýstidælurnar koma
annars vegar frá Þýskalandi, frá
framleiðandanum Falch, og hins
vegar frá Bandaríkjunum, frá fyr
irtækinu Garden Denver, en báðir
aðilar eru afar öflugir framleiðendur
háþrýstidæla.
ÁÁ Verktakar ehf. er í Reykjanes
bæ en að sögn Áslaugs eru lang
flest verkefni þeirra á höfuðborgar
svæðinu. Viðskiptavinir fyrirtækisins
eru af ýmsu tagi, til dæmis almennir
húseigendur sem ætla að mála
hús sitt og þurfa á háþrýstiþvotti
að halda til að gera klárt und
ir málningu. Einnig er algengt að
málarameistarar leiti til fyrirtækisins
eftir tilboðum í háþrýstiþvott.
Háþrýstiþvotturinn er einnig
oft hluti af stærri verkefnum fyrir
tækisins enda sinnir það margs
konar húsaviðgerðum og er með
fjölda múrara í vinnu. Einnig hefur
fyrirtækið unnið mikið fyrir orku
fyrirtæki við að beita hinum öflugu
háþrýstidælum við hreinsanir úr
borholum og fleira. Þá hefur ÁÁ
Verktakar ehf. unnið mikið fyrir
útgerðar fyrirtæki og sinnir öllum
þvotti fyrir Stál smiðjuna Framtak,
sem rekur Slippinn í Reykjavík.
Sem fyrr segir hefur verið mikil
vöxtur í starfseminni:
„Starfsemin hefur vaxið jafnt og
þétt frá því við byrjuðum og tækja
kosturinn hefur fylgt með. Það varð
vissulega dálítið stopp eftir hrunið
eins og hjá mörgum en síðan hefur
þetta legið upp á við. Sem dæmi um
það keyptum við 3.000 bara há
þrýstidæluna árið 2013 og var það
fyrsta dælan af slíku tagi sem seld
var frá Þýskalandi innan Evrópu.
Einnig höfum við bætt við okkur
skæralyftum og spjótum til að nota
þegar unnið er við hærri byggingar,“
segir Áslaugur að lokum.
ÁÁ Verktakar ehf.
Fitjabraut 4
260 Reykjanesbær
Símar: 421-6530 og 898-2210
aaverktakar@aaverktakar.is
Heimasíða: www.aaverktakar.is
Myndin hægra megin sýnir einbýlishús eftir
háþrýstiþvott vinstra megin er sama hús
eftir pússningu og fíltun.
Háþrýstiþvottur á fjölbýlishúsi.
Háþrýstiþvottur á bárujárnshúsi.
ÁÁ Verktakar
eru leiðandi í
háþrýstiþvotti