Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Page 29
Iðnaðarblaðið 17. maí 2019 KYNNINGARBLAÐ „Fólk hættir seint að nudda sér utaní“ Bílasmiðja SGB var stofnuð þegar ég keypti húsnæðið á Ísafirði og tækin sem ég nota í starfsemina árið 2013. Ég var þá aðallega í sprautun og réttingu og hélt það yrði tæplega nóg að gera fyrir mig og einn starfsmann í við- bót. En sú varð ekki raunin og síðan þá hefur starfsemin undið töluvert upp á sig, sérstaklega eftir að ferða- mennskan tók að aukast hér á Vest- fjörðum,“ segir Sindri Gunnar Bjarnar- son, eigandi Bílasmiðju SGB. Fjölbreytt þjónusta við heimamenn og ferðalanga Fyrirtækið býður upp á réttingar, breytingar á bílum, nýsmíði og fleira. „Við erum þó aðallega í bílasprautun. Einnig erum við aðeins komnir með puttana í dekkjabransann til þess að auka þjónustuna við ferðamenn. Við erum svo með Ford 350-dráttar- bíl með spil og kerru og vörubíl, sér útbúinn með krana og palli, á staðnum, aðallega til þess að sækja bilaða eða tjónaða bíla, en við bjóðum líka upp á bílaflutning milli landshluta.“ Hugar að stækkun Aðspurður segir Sindri almennt mikið að gera í bílabransanum. „Fólk hættir seint að nudda sér utaní, eins og maður segir, og bílarnir hætta ekki að bila. Því er alltaf nóg að gera hjá okkur, þótt auðvitað séu hæðir og lægðir í þessum bransa eins og öðrum. Þrátt fyrir það þá stefni ég á stækkun. Hugmyndin er þá að auka þjónustu og bjóða upp á viðgerðir og fleira. Við erum tveir á verkstæðinu eins og er og ég þarf að ráða fleiri menntaða og góða starfskrafta,“ segir Sindri. Hafðu samband við Bílasmiðju SGB með því að hringja í síma 847-3413 eða senda netpóst á bilasmidja@gmail.com Bílasmiðja SGB er staðsett að Seljalandsvegi 86, 400 Ísafirði. BÍLASMIÐJA SGB:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.