Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Page 30
Iðnaðarblaðið 17. maí 2019KYNNINGARBLAÐ RAFSTILLING: Rafstilling ehf. er gamalgróið verkstæði sem sérhæfir sig í alternatora- og startaravið- gerðum. „Við flytjum inn og seljum nýja startara og alternatora, ásamt því að gera við og skipta um þá fyrir viðskiptavini okkar. Einnig erum við með alla íhluti svo sem kapla og aðra fylgihluti með störturum. Við þjónustum alls staðar á landinu þar sem hægt er að starta einhverju í gang eða hlaða. Viðskiptavinir okkar eru hvort tveggja fyrirtæki og einstaklingar. Þá þjónustum við mest verktaka, bændur og búalið eða aðila sem tengdir eru sjávarútvegnum,“ segir Sigurjón Jónsson, eigandi fyrir- tækisins. Reynsluboltar Verkstæðið er með öll nauðsynleg tæki og tól til viðgerða og ísetninga á störturum og alternatorum. All- ir viðgerðir hlutir eru prófaðir í prufubekk til að tryggja að allt sé í lagi. Þeim er einnig skilað hreinum og máluðum. „Við höfum áratuga reynslu í viðgerðum fyrir einstaklinga og fyrirtæki enda er fyrirtækið búið að vera starfandi í meira en tuttugu ár. Starfsmennirnir hér eru að sama skapi flestir búnir að vera hér í um 10–15 ár og með gífurlega reynslu.“ Einnig flytur verkstæðið inn og selur sólarsellur í miklu úrvali fyrir húsbíla og hjólhýsi. Hraði og góð þjónusta „Við leggjum áherslu á hraða og góða þjónustu og flytjum inn ýmis vöru- merki sem tengjast okkar þjónustu. Við erum bæði með vörur frá original framleiðendum og öðrum til þess að geta boðið viðskiptavinum okkar upp á fyrsta flokks þjónustu.“ Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu Rafstillingar, rafstilling.is Dugguvogi 23, 104 Reykjavík Sími: 581-4991 eða 663-4942 Netpóstur: rafstilling@rafstilling.is Facebook: Rafstilling Startar öllu í gang

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.