Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Síða 31
Iðnaðarblaðið 17. maí 2019 KYNNINGARBLAÐ FISKELDI AUSTFJARÐA HF: Hágæða íslenskur eldislax stútfullur af Omega3 Fiskeldi Austfjarða hf. eða Ice Fish Farm var stofnað sumarið 2012. Þetta unga og framsækna fyrirtæki hefur heldur betur sótt á og í dag hefur Fiskeldi Austfjarða hf. getið sér gott orð úti um allan heim fyrir hágæða eldislax. Fyrirtækið er með sjókvíaeldi í Berufirði og Fáskrúðsfirði á hágæða eldislaxi. Einnig er Fiskeldi Austfjarða hf. með seiðastöðvar í annars vegar Þorlákshöfn og svo á Rifósi fyrir norðan þar sem seiði fyrir laxinn er framleitt. Lax fyrir heilsuna Atlantshafslaxinn er mikil heilsuvara enda stútfullur af hágæða prótíni og með lítið af mettaðri fitu. Laxinn okkar er þar að auki alger hágæða- vara. Þetta er Atlantshafslax og kaldi og hreini sjórinn hér í kringum landið gerir hann sérstaklega litfagran og ríkan af Omega3 fitusýrum. Einnig er hann að fá toppfóður. Bæði fóðrið og kaldi sjórinn gerir það að verkum að hátt í þrisvar sinnum meira af Omega3 er að finna í laxinum okkar en er í öðrum laxi. Aqua Gap vottun Fyrirtækið starfrækir umhverfisvænt fiskeldi og hefur hlotið Aqua Gap vottun á framleiðslu sinni sem gerir kröfur um sjálfbærni. Notkun allra ónáttúrulegra vinnsluefna er einnig bönnuð. Mest af vörunni okkar er selt út fyrir landsteinana. Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðunni icefishfarm.is og Face- book-síðunni Fiskeldis Austfjarða: Ice Fish Farm.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.