Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Qupperneq 32
Iðnaðarblaðið 17. maí 2019KYNNINGARBLAÐ
Bílasprautun og réttingar Auðuns:
Fagurkeri sem réttir
bíla og tekur ljósmyndir
Bílasprautun og réttingar Auðuns er gæðavottað réttingaverkstæði af Bílgreina-
sambandinu og tryggingafélögun-
um. „Við bjóðum upp á tjónamat,
bílaréttingar og bílasprautun. Einnig
koma til okkar einstaklingar með
bíla sem þarf að rétta og tökum við
að sjálfsögðu alltaf vel á móti öllum
viðskiptavinum með bros á vör,“ segir
Jón Grétarsson, einn eigenda fyrir-
tækisins.
Fyrirtækjaafsláttur
„Starfsemi okkar gengur aðallega
út á að þjónusta tryggingafélögin
með sprautun og réttingar á tjóna-
bílum, en við sjáum líka um bíla fyrir
fyrirtæki. Þá fá fyrirtækin afslátt af
þjónustu okkar sem og starfsmenn
fyrirtækjanna fyrir einkabíl sinn.“
Laða að sér viðskiptin alls staðar að
af landinu
Fyrirtækið er byggt á gömlum grunni
en það var upphaflega stofnað
1968. „Nýr eigandi kom inn í rekstur-
inn árið 2013 og rekum við þetta
nokkrir saman núna. Sjálfur er ég
með meistarapróf og áratuga reynslu
í bílaréttingum og bílasprautun.
Við erum fimm sem störfum alla
jafna á verkstæðinu. Við erum tveir
með meistarapróf, tveir eru með
sveinspróf og svo er einn lærlingur.
Það er alltaf nóg að gera í þessum
bransa og við erum líka að fá við-
skiptavini alls staðar að af landinu.
Hingað kom maður t.d. alla leið frá
Raufarhöfn með bílinn sinn. Fólk er
einnig að koma frá Ísafirði, Höfn,
Egilsstöðum og víðar. Við tökum
þessu að sjálfsögðu sem hrósi.“
Ljósmyndun og bílaréttingar: hin
fullkomna tvenna
Þess má geta að Auðunn er ekki
bara bílaréttingamaður af Guðs náð
heldur hefur hann hæfileika á fleiri
sviðum. „Sjálfur er ég mikill fagurkeri
og áhugamaður um ljós myndun.
Ég ferðast um landið með hópi
áhugaljósmyndara og tek ljósmyndir
af náttúrunni.“ Margir hafa undr-
ast það að á vefsíðu fyrirtækisins,
bilasprautun.is er að finna dálk með
fallegum ljósmyndum af íslenskri
náttúru. „Ég er stoltur af þessum
ljósmyndum og fannst liggja beint
við að hafa þær með. Svo tek ég
auðvitað ljósmyndir af verkefnum
okkar þegar við á og þær má einnig
sjá á síðunni. Þetta gerir vefsíðuna
skemmtilegri og ég hef líka séð að
dálkurinn hefur góð áhrif á við skiptin.“
Ljósmyndir Jóns má sjá á vefsíðu
fyrirtækisins.
Nánari upplýsingar má nálgast á
bilasprautun.is
Auðbrekka 27 – Dalbrekkumegin,
200 Kópavogur
Sími 554-2510
Netfang:
bilasprautun@bilasprautun.is
Jökulsárlón
Allar ljósmyndir eru teknar
af Jóni Grétarssyni.
Hverafell
Fagrifoss