Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Side 37
Iðnaðarblaðið 17. maí 2019 KYNNINGARBLAÐ
„Gæði skipta okkur
meira máli en magn“
ICELAND RECRUITMENT:
Vantar þig starfsmann með þekkingu og reynslu í því sem starfið felst í? Ert þú að
hugsa um að byggja en veigrar þér
við að hafa samband við múrara,
pípu lagningamann, arkitekt, smiði,
og alla hina, og halda svo utan um
þetta allt saman? Iceland Recruit
ment er starfsmannaþjónusta
sem útvegar reynda starfsmenn
með sérhæfða menntun til ráðn
ingar. „Ég hef verið í starfsmanna
þjónustubransanum síðan 2005 og
fyrir fimm árum stofnaði ég Iceland
Recruitment starfsmannaþjónustu,“
segir Alan Matthews, eigandi Iceland
Recruitment.
Svið starfsmanna þjónustunnar
Iceland Recruitment er tvíþætt.
„Annars vegar erum við með geira
innan þjónustunnar sem útvegar
iðnaðarmenn fyrir byggingar iðnaðinn.
Hins vegar erum við með starfs
mannaþjónustu sem útvegar starfs
menn fyrir ýmis önnur störf, hvort
sem það eru starfsmenn í matvæla
framleiðslu, grafískir hönnuðir, texta
höfundar, sölumenn, vefsíðuhönnuðir
eða hvaðeina.“
Ekki sóa tíma og fjármunum
Ef þú hefur hug á að byggja, stórt
eða smátt, þá er einfalt að klára
dæmið með því að hafa samband við
Iceland Recruitment. „Við höfum það
fyrir reglu að allir iðnaðarmenn okkar
séu með tilskilin réttindi og menntun
og minnst fimm ára reynslu. Starfs
menn okkar koma frá Bretlandseyjum
og hafa allir ensku að móðurmáli. Það
er ótrúlegt magn af tíma og fjármun
um sem sóast þegar menn skilja ekki
hver annan. Því er það skylda fyrir
alla okkar starfsmenn að tala góða
ensku. Einnig greiða allir okkar starfs
menn skattaiðgjöld í íslensk stétta
félög og lífeyrissjóði eins og íslenskir
starfsbræður þeirra. Einnig borgum
við öllum okkar starfs mönnum sann
gjörn laun og erum jafnvel að borga
hærri laun en margir aðrir. Við bjóð
um notendafyrirtækjum okkar upp á
fullkomið gagnsæi varðandi launa
greiðslur starfsmanna.“
Gæði umfram magn
„Þessi bransi fer bara stækkandi
enda síaukin þörf fyrir iðnaðarmenn
og annað starfsfólk á vinnumark
aðnum til þess að sinna öllum þeim
verkefnum sem fylgja nútíma
þjóðfélagi. Við hjá Iceland Recruit
ment höfum alltaf einblínt á gæði
frekar en magn og haft það fyrir reglu
að starfsmenn okkar séu fyrsta flokks
og kunni vel til verka. Enda hefur það
sýnt sig að viðskiptavinir okkar eru
hæstánægðir með fólkið okkar.“
Nánari upplýsingar má nálgast á
icelandrecruitment.is
Ármúli 36, Reykjavík.
Sími: 522-7700
Netpóstur: alan@icelandrecruit-
ment.is