Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Side 39

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Side 39
Iðnaðarblaðið 17. maí 2019 KYNNINGARBLAÐ Þekking, reynsla og rík þjónustulund Vélfang ehf. var stofnað vorið 2004 af þeim Eyjólfi Pétri Pálmasyni, Skarphéðni Erlingssyni, Stefáni G. Ármannssyni, Þórði Jónssyni og Kristjáni Ragnarssyni. Fyrirtækið hefur vaxið og dafnað og í dag selur fyrirtækið og þjónustar jafnt nýjar sem notaðar vélar og tæki fyrir land­ búnað, vélaverktaka, golfvelli og sveitarfélög. 15 ára reynsla „Við veitum framúrskarandi þjónustu og miðlum þekkingu sem byggir á tæplega 15 ára reynslu. Hjá okkur starfar fámenn en öflug liðsheild með mikla starfsreynslu á sviði bú­ og vinnu­ véla. Í raun er erfitt að skilgreina starfssvið hvers og eins en eitt eiga starfsmennirnir sameiginlegt: Það er rík þjónustulund og vilji til að leysa þau verkefni sem framundan eru. Við höfum allt frá upphafi lagt áherslu á að ráða gott og öflugt fólk til starfa, sem passar inn í þann hóp og þann góða anda sem fyrir er. Einn okkar er til dæmis svo skáldmæltur að hann getur beinlínis talað í ferskeytlum. Hann heitir Kristján og sér um vísnaþátt fyrirtækisins,“ segir Eyjólfur og bendir á að andinn innan fyrirtækisins sé sérstaklega góður. Þjónustar nýjar vélar, gamlar og varahluti „Starfsmenn okkar keppast við að uppfylla þarfir viðskiptavina sinna, hvort sem um er að ræða sölu og þjónustu á notuðum eða nýjum vélum eða við útvegun varahluta. Stundum hentar góð, notuð vél jafn vel og ný, og öfugt,“ segir Eyjólfur. Stór hluti af starfsemi Vélfangs ehf. er varahlutaþjónustan. Fyrirtækið er með umboð fyrir fjölda fyrirtækja sem þjónusta vinnuvél­ ar. „Því höfum við tök á að afgreiða flesta sem til okkar koma með skjótum og öruggum hætti,“ segir Eyjólfur. Helstu fram­ leiðendur sem Vélfang hefur umboð fyrir eru CLAAS, Fendt, Kuhn, Redrock, og margir fleiri. JCB – heimsklassa fjölskyldufyrirtæki „Við erum stolt að geta sagt frá því að Vélfang ehf. tók við umboði fyrir JCB­vinnuvélar á haustmánuðum 2009. JCB er einn stærsti framleiðandi vinnuvéla í heimi og í gegnum tíðina hefur hann fjárfest mikið í rannsóknum og þróun. Með þessu móti heldur fyrirtækið sér fremst í flokki nýsköpunar og að sama skapi getum við útvegað fyrsta flokks vinnuvélar fyrir viðskiptavini okkar,“ segir Eyjólfur. Gæðafatnaður á góðu verði „Nýlega stækkaði Vélfang verslun sína og ákváðum við að bjóða upp á meira úrval í gæðafatnaði, fyrir alla fjölskylduna, minjagripum og leikföngum. Við bjóðum upp á gott vöruúrval af sterkbyggðum vinnufatnaði fyrir alla fjölskylduna, svo sem samfestinga, smekkbuxur, boli, hanska og fleira. Einnig erum við með geysivinsælar hettupeysur með traktor framan á og vinnuhanska fyrir börn. Úrval af leikföngunum er alltaf að aukast hjá okkur sökum mikillar eftirspurnar. Við erum einnig með frábært verð á leikföngunum og fatnaði sem kemur á óvart,“ segir Eyjólfur. Nánari upplýsingar má nálgast á www.velfang.is og Facebook-síðunni Vélfang ehf. Gylfaflöt 32, Grafarvogi og Frostagötu 2a, Akureyri Sími: 580-8200 Opið alla virka daga frá 08.00–17.00 Netpóstur: velfang@velfang.is Vélfang ehf:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.