Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Side 41

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Side 41
FÓKUS - VIÐTAL 4117. maí 2019 „Ég er að kenna fólki að njóta sköpunarverksins“ Margrét Erla er önnum kafin meðan hún bíður frumburðarins M argrét Erla Maack hefur verið í sviðsljósinu á sjón­ varpsskjáum og skemmt­ unum landsmanna í fjölda ára. Starfstitlarnir í dag eru fjölmargir: skemmtikraftur, veislu­ stjóri, danskennari, plötusnúður, karókískrímsli og sprellikerling og í haust bætist nýtt hlutverk við, en Margrét á von á sínu fyrsta barni í lok september. Blaðamaður fór og hitti Mar­ gréti á Mokka kaffi, þar sem hún tók á móti henni ólgandi af krafti og áhuga og það er farið að sjá á henni að hún er ekki kona ein­ sömul. Margrét er skemmtileg og talar hratt, alvön að veita viðtöl og segja frá og greinilegt að hún á marga vini og kunningja en svo hefur það ekki alltaf verið. „Ég var ekki rosavinsæl í grunn­ skóla, en ég fór nokkrum sinn­ um til útlanda í alþjóðlegar sum­ arbúðir á vegum CISV og það hjálpaði mér að komast í gegnum grunnskólann að sjá að heimurinn er stærri en 7. bekkur Austurbæjar­ skóla, og milli tvítugs og þrítugs fór ég þrisvar út með börn á veg­ um CISV og gaf þannig til baka,“ segir Margrét. Aðspurð hvort hún hafi lent í einelti í grunnskóla, svarar hún neitandi. „Orðum það frekar þannig að þau hafi ekki fatt­ að hvað ég er skemmtileg. Ég átti alveg góða vini og vinkonur. En það var fólk sem var opinberlega illa við mig og svona hatursfélög. Þetta hefur ekkert gert mér nema gott og ég vil bara nota tækifær­ ið til að þakka þeim kærlega fyrir mótlætið. Þetta sýndi mér líka að það þurfa ekki allir að fíla mann, þetta var erfitt á þessum tíma, en ég er þakklát fyrir þetta í dag.“ Herranætur og heilahimnubólga Að loknum grunnskóla ákvað Mar­ grét að fara í MR, og segir hún að mesti hvatinn hafi verið að enginn úr Austurbæjarskóla fór þangað. „Ég var búin að fara á sýningar á Herranótt, þar sem eldri frændi minn og uppeldisbróðir, Ólafur Egils, var í MR. Ég heillaðist af fé­ lagslífinu í MR og fann mína rödd svolítið þar. Ég var í nollabekk og í nokkur ár var ég tossinn í bekkn­ um, þar sem ég var svo mikið í fé­ lagslífinu og mátti lítið vera að því að sinna náminu. Á lokaárinu tók ég mig á, en fékk heilahimnu­ bólgu í janúar/febrúar rétt fyrir út­ skrift þannig að þrátt fyrir að ég hefði tekið mig á skilaði það sér ekki í einkunnum, sem var svolítið leiðinlegt.“ Margrét tók þátt í sýningum Herranætur öll árin í MR, var í stjórn í eitt ár og segir MR hafa verið ótrúlegan skóla. Hún fagnar því að í dag sé horft á hvað stúd­ entar hafi gert í félagslífinu þegar þeir sækja um atvinnu, hvort þeir hafi komið að skólablaðinu, kunni að gera fjárhagsáætlun og annað slíkt. „Það er gleðilegt að það sé orðinn stór hluti af því sem skoðað er í fari fólks. Eftir MR ætlaði ég í leiklist eða eitthvað tengt leik­ eða sýningar­ stjórn. Svo komst ég ekki inn í leik­ listarskólann og fór að læra ensku í Háskóla Íslands. Síðan komst ég inn í sýningarstjórnun í Ragna Gestsdóttir ragna@dv.is M Y N D IR : H A N N A /D V Lífsglöð Margrét hefur erft lífsgleðina frá ömmu sinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.