Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Side 48
48 FÓKUS - VIÐTAL 17. maí 2019
B
reska poppsveitin Dur-
an Duran var lengi vel vin-
sælasta hljómsveitin hér á
landi og aðdáendurnir ein-
hverjir þeir staðföstustu. Hún var
stofnuð árið 1978 og varð fljótlega
heimsþekkt. Duran Duran hefur
gengið í gegnum miklar manna-
breytingar í gegnum tíðina en
um aldamótin komu uppruna-
legu meðlimir sveitarinnar aftur
saman og hafa starfað sleitulaust
síðan þá. Munu þeir troða upp í
Laugardalshöllinni þann 25. júní
næstkomandi. DV ræddi við Roger
Taylor, trymbil Duran Duran,
um tónlistina, sögu sveitarinnar,
frægðina og fleira.
„Ég þekki Björk“
Duran Duran kom hingað til lands
árið 2005 og hélt tónleika í Egils-
höll. Roger Taylor man vel eftir
þeim tónleikum. Hann segir:
„Ég hef mikið hugsað um þá.
Þetta var frábært kvöld og heim-
sókn. Þá var ekki langt síðan við
komum saman aftur og það var
mikið að gera hjá okkur. Því mið-
ur höfðum við ekki mikinn tíma til
að skoða okkur um. Við stoppuð-
um hérna í aðeins tvær nætur. En
ég man að þetta er heillandi staður
og eftirminnilegur.“
Þekkir þú íslenska tónlist?
„Ég þekki Björk,“ segir Roger
eftir smá hik og hlær.
Hverju megum við eiga von frá
ykkur núna?
„Við höfum gefið út nokkrar
plötur síðan við komum síðast.
Tónlistarsafnið hefur því stækkað
og tónleikarnir verða sífellt full-
gerðari, ef svo má segja. Við elsk-
um samt að spila gömlu lögin,
hittarana frá því snemma á níunda
áratugnum. Við hlökkum mikið til
að koma.“
Flóttinn frá Birmingham
Duran Duran-liðar koma frá
borginni Birmingham, í Mið-
löndunum í Englandi. Borgin var
lengi vel grámygluleg iðnaðar-
borg, en tónlistarlífið hefur alltaf
verið blómlegt. Til að mynda þá
er Birmingham fæðingarstaður
þungarokksins. Hljómsveitirnar
Black Sabbath og Judas Priest
komu þaðan, einnig Robert Plant
og John Bonham úr rokksveitinni
Led Zeppelin, og ELO.
„Ég er alinn upp í verkamanna-
stétt. Birmingham var miðpunkt-
ur bílaiðnaðarins í Bretlandi og
faðir minn starfaði hjá Rover-
verksmiðjunum. Allir í minni fjöl-
skyldu, marga ættliði aftur, unnu
með höndunum. Sem trommari
geri ég það nú upp að vissu marki
líka,“ segir Roger og hlær. „Þetta
var verkafólk en faðir minn elskaði
tónlist og smitaði mig af þeim
áhuga. Þegar hann kom heim á
kvöldin kenndi hann mér á klass-
ískan gítar, spænskan gítar og hvað
sem hann gat komið höndum yfir.
Ég kenndi mér sjálfur að spila á
trommurnar þegar ég var tólf ára
og varð sá fyrsti í minni fjölskyldu
til að sleppa úr hinu hefðbundna
verkamannalífi. Faðir minn hafði
mikla trú á sjálfkennslu, að mað-
ur gæti lært nánast hvað sem er
ef maður læsi nógu mikið og æfði
sig. Ég á honum og hans heimssýn
mikið að þakka.“
Hafði harða rokkið áhrif á þig?
„Ég fór og sá flest þessi bönd
sem unglingur og þau gerðu það
að verkum að við höfðum trú á að
það væri hægt að komast burt og
„meika ’ða.“ Við fórum allt aðra
leið og vorum að einhverju leyti
undir áhrifum frá pönkbylgjunni.
En þessi eldri og þyngri bönd gáfu
okkur trúna.“
Planið leit vel út á blaði
Roger segir að Duran Duran hafi
ekki tekið sig af neinni léttúð í
upphafi. Þeir voru með áætlun um
að sigra heiminn, jafn vel áður en
ein einasta nóta var komin niður á
blað.
„Við vorum aðeins rétt byrjað-
ir, John (Taylor) var nýbúinn að
skipta úr gítar yfir í bassa, Nick
(Rhoads) var nýbúinn að kaupa
sér hljómborð. Við vorum ekki
enn komnir með söngvara. Við
vissum í raun ekkert hvað við vor-
um að gera, en við ætluðum að Umboðsaðilar: Húsgagnaval Höfn Bara snilld ehf. Egilsstöðum
„Við vorum
ekki búnir
undir frægðina“
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Roger Taylor er trommari Duran Duran – Tók langa pásu til að eignast
eðlilegt líf – Ný plata á leiðinni