Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Side 49

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Side 49
FÓKUS - VIÐTAL 4917. maí 2019 spila í Madison Square Garden í New York innan tveggja ára. Það var brjáluð hugmynd því við vor- um ekki einu sinni komnir með umboðsmann. Tímaramminn stóðst ekki alveg, en við spiluð- um í Madison Square Garden árið 1983, fimm árum eftir að hljóm- sveitin var stofnuð. Og við gerðum það af krafti viljans eintómum.“ Á þessum tíma varð Duran Duran eitt stærsta band heims- ins, hljómsveitin seldi milljónir platna, spilaði um allan heim og var mikill frumkvöðull í mynd- bandagerð. Gula pressan og papa- rassar hundeltu þá og fjölluðu um hverja hreyfingu. Voruð þið búnir undir frægð- ina? „Nei,“ segir Roger og flissar. „Við vorum ekki búnir undir frægðina. Þessi áætlun okkar leit mjög vel út á blaði og ég hafði viljað vera í stóru rokk- eða poppbandi síð- an ég var tólf ára. En þegar þetta raungerðist vorum við ekki undir- búnir. Við vorum rúmlega tvítugir, með milljónir inni á bankareikn- ingum, ekkert einkalíf. Við vor- um líka allir frægir, ólíkt mörgum öðrum böndum þar sem einn eða tveir verða stórstjörnur. Ég myndi ekki vilja fara aftur í tímann og breyta neinu því þetta kom okkur á þann stað sem við erum á í dag. En, nei, við vorum langt því frá undirbúnir. Við gátum ekki gengið úti á götu án þess að ljósmyndari væri að elta okkur.“ Eins og oft vill verða þá fylgir töluvert partíhald lífinu á tón- leikaferðalögum. Roger segir að það hafi alveg átt við um Duran Duran. „Já, kannski misstum við stjórn- ina nokkrum sinnum,“ segir Roger og hlær dátt. „Ef þú tekur nokkra tvítuga gutta, dælir peningum inn á reikningana þeirra og sendir þá í kringum hnöttinn þá mun alltaf eitthvað misjafnt gerast. Við vor- um hömlulausir á þessum tíma, fullir af krafti og sköpunargleði. Vegna frægðarinnar þá bólgnaði sjálfsálitið líka. Á tónleikaferðalagi er mikið af dauðum tíma. Maður er á sviði í klukkutíma og þarf einhvern veginn að fylla tímann. Alltaf á nýju hóteli og í nýrri borg. Hvað gerir maður þá? Jú, mað- ur djammar. Hjá okkur var þetta sennilega ansi villt um tíma.“ Vildi venjulegt líf Árið 1986 sagði Roger Taylor skil- ið við Duran Duran. Þá var hljóm- sveitin á hápunkti frægðarinnar. Árið áður áttu þeor lagið A View to a Kill úr samnefndri James Bond kvikmynd og spiluðu á styrktar- tónleikunum Live Aid sem einn og hálfur milljarður manns fylgdist með í sjónvarpi. „Ég þurfti að stíga til hliðar um tíma. Á þessum tíma var allt orðið svolítið brjálað. Við vorum fyrsta hljómsveitin sem var í blöðun- um á hverjum degi. Ritstjórar gulu pressunnar ákváðu að þeir vildu að poppstjörnur yrðu hluti af dag- legri umfjöllun. Allt sem við gerð- um eða sögðum komst í fréttirnar og það var of mikið fyrir mig. Ég ætlaði aðeins að taka mér pásu í stuttan tíma, en það varð að mörg- um árum. Ég vildi venjulegt líf, þótt það sé kannski ekki hægt eftir að hafa verið í Duran Duran.“ Roger flutti á búgarð í Englandi og eignaðist börn og buru. Hann hugsaði líf sitt upp á nýtt en skildi þó ekki alveg við tónlistina. Á tíunda áratugnum hreifst hann af danstónlistinni sem tröllreið öllu á þeim tíma. Hann fór að semja að nýju og gerðist plötusnúður um tíma. Duran Duran hélt áfram störfum en gekk í gegnum manna- breytingar. „Í kringum aldamótin hringdi John í mig og sagði að uppruna- lega bandið væri að koma aftur saman og hvort ég vildi ekki vera með. Ég hélt að Duran Duran væri búin að vera á þessum tímapunkti. Ég var því hikandi þegar hann hr- ingdi og þurfti að liggja á þessu yfir nótt. Síðan hringdi ég til baka og sló til.“ Var dýnamíkin sú sama í bandinu þegar þú komst til baka? „Nákvæmlega sú sama,“ seg- ir Roger og hlær. „Samt höfðum við allir verið að gera mismun- andi hluti á meðan við vorum í sundur. Fólk reynir að breyta sér en í grunninn erum við öll þau sem við erum. Eitt af því sem gerir dýnamíkina í bandinu svo góða er hversu ólíkir við erum. Það heldur okkur skapandi.“ Er það sveipað jafn miklum ljóma í dag að túra um heiminn? „Ef ég á að vera hreinskilinn þá held ég að það hafi aldrei verið sveipað miklum ljóma. Við erum annaðhvort á tónleikastaðnum, á hóteli eða flugvelli. Það koma þó dagar þar sem við eigum frí og get- um skoðað okkur um. Í dag erum við líka mun rólegri og yfirvegaðri en við vorum áður fyrr og einbeit- um okkur að tónleikunum sjálf- um.“ Ekkert fimm ára plan Margar eldri hljómsveitir hætta að gefa út nýtt efni á einhverjum tímapunkti. Þær endurnýja sig ekki og spila aðeins eldra efni. Það er ekki hægt að segja um Duran Duran sem gefur sífellt út nýj- ar plötur þótt hljómsveitin flytji einnig eldra efni í bland á tónleik- um. Síðan Roger gekk aftur til liðs við sveitina hefur Duran Duran gefið út fjórar plötur og sú nýjasta, Paper Gods frá árinu 2015, náði töluverðum vinsældum. „Við erum að vinna að nýrri plötu núna,“ segir Roger. „Hún kemur sennilega út á næsta ári. Á síðustu plötunni fórum við vel inn í elektróníkina en á þeirri næstu förum við nær rótum okkar á ní- unda áratugnum. Við erum ekki bundnir af neinu og getum farið í hvaða átt sem við viljum í laga- smíðinni. Það er bara eitthvað sem gerist af sjálfu sér. Við ræðum ekk- ert sérstaklega hvaða stefnu við ætlum að taka.“ Er yngra fólk móttækilegt fyrir tónlistinni ykkar? „Já, við sjáum töluvert af yngra fólki á tónleikaferðalögum okkar. Í dag er tónlistarneysla orðin svo breytt. Áður fyrr var alltaf fyrirfram ákveðinn farvegur sem tónlistin varð að fara, í gegnum útgáfufyrir- tæki, tónlistarpressuna og gagn- rýnendur. Fólk las þetta og keypti plötur byggt á þeirri gagnrýni. Nú hlustar fólk á tónlistina á netinu, kynnist fleiru og lætur ekki aðra stjórna því hvað það hlustar á. Ungt fólk í dag nálgast tónlistina okkar án fyrirframgefinna skoð- ana.“ Hefur þinn trommustíll breyst? „Já, mjög svo. Ég sé þetta þegar ég horfi á gömul myndbönd af sjálfum mér. Ég var alinn upp á pönki og allt snerist um kraft og hraða. Í dag er ég orðinn mun mildari og fágaðri í hreyfingum, með meira grúví en áður.“ Býstu við að hljómsveitin haldi áfram í mörg ár til viðbótar? „Ég hreinlega veit það ekki. Við ræðum það aldrei og reynum að lifa í núinu, eins og sagt er. Núna erum við að einbeita okkur að nýju plötunni og lagasmíð fyrir hana. Svo förum við á tónleikaferðalag eftir útgáfu hennar. Við hugsum ekki lengra fram í tímann en það. Það er ekkert fimm ára plan.“ Roger segir að meðlimir Duran Duran séu góðir vinir, frekar en hljómsveitarfélagar, en þó eyði þeir ekki öllum frítíma sínum saman. Í dag hafa þeir meiri skiln- ing hver á öðrum og setji ekki óþarfa pressu á sig. En það var ekki alltaf svo. „Áður fyrr vissum við ekki hvernig við áttum að tala saman. Það safnaðist sífellt upp kergja og að lokum funkeruðum við ekki sem heild. Við ólumst upp í Birmingham á sjöunda og áttunda áratugnum og lærðum því ekki að ræða hlutina. Í dag er miklu betri skilningur á milli okkar og virki- lega góð og lífseig vinátta.“ n Duran Duran kemur til Ís- lands og heldur tónleika í Laugar- dalshöllinni þann 25. júní næst- komandi. Búast má við miklu sjónarspili frá poppurunum sem hafa plægt akurinn í fjörutíu ár, selt hundrað milljónir platna og unnið ótal verðlaun á ferlinum Hægt er að nálgast miða á tónleik- ana hjá tix.is GRÆNA TUNNAN AUÐVELDAR FLOKKUNINA Pappír, pappa, plast og minni málmhluti má setja beint í tunnuna - Muna að skola Pantaðu grænu tunnuna í síma 577-5757 eða www.igf.is/panta 577 5757 Við vissum í raun ekkert hvað við vorum að gera, en við ætluðum að spila í Madi- son Square Garden í New York innan tveggja ára. Ef þú tekur nokkra tvítuga gutta, dælir pen- ingum inn á reikningana þeirra og sendir þá í kring- um hnöttinn þá mun alltaf eitthvað misjafnt gerast.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.