Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Page 54

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Page 54
54 17. maí 2019TÍMAVÉLIN SKAGFIRSKUR GALDRAMAÐUR n Jónas Jónsson í Hróarsdal n Tók á móti hundruðum barna n Ritfær og iðinn „Sagt var að aldrei hefði kona dáið af barnsförum hjá honum Á rið 1927 lá Jónas Jónsson, bóndi í Hróarsdal í Skaga- firði, háaldraður á bana- legunni. Hann átti áhuga- verðari og sérkennilegri ævi en margur annar bóndi í sveitinni og Íslandi ef út í það er farið. Hann var sagður vera göldróttur, átti galdrabók og stundaði lækningar. Hann var ómenntaður ljósfaðir og tók á móti hundruðum barna og átti fjölmörg sjálfur. Auk þess var hann skáld, leikritahöfundur, smiður og stjórnmálamaður. Verð- ur hér stuttlega gerð grein fyrir ævi hins skagfirska galdramanns. Eignaðist 33 börn Jónas Jónsson var fæddur þann 20. septembermánaðar árið 1840 í Hróarsdal í Hegranesi. Foreldr- ar hans voru bændur þar. Jónas tók við búskapnum og kvænt- ist fyrstu eiginkonu sinni, Sigur- björgu Sveinsdóttur, árið 1863. Var það ástríkt hjónaband en barn- laust. Önnur kona Jónasar var Elísabet Gísladóttir og var það hjónaband mun frjórra. Eignuðust þau tólf börn en Elísabet lést árið 1894. Þriðja eiginkona Jónasar var Lilja Jónsdóttir, sem var 32 árum yngri en hann. Þau gerðu bet- ur og eignuðust 13 börn. Er þar ekki lokið upptalningu á börn- um Jónasar því átta átti hann utan hjónabands og voru börnin því 33 talsins. Komust þau langflest á legg og urðu mörg langlíf. Árið 1985, þegar 145 ár voru liðin frá fæðingu Jónasar, greindi Þjóðvilj- inn frá því að sex börn hans væru enn á lífi. Tók á móti 500 börnum Jónas gekk aldrei menntaveginn en sankaði að sér fróðleik engu að síður, héðan og þaðan. Hann las bæði íslensk og erlend rit og var einn mesti tungumálamaður í bændastétt síns tíma. Sérstakan áhuga hafði Jónas á læknisfræði og stundaði lækningar þótt engin prófgráða væri til staðar. Jónas gerði þetta af hugsjón fremur en til gróða, og hann leyfði sjúkling- um sínum að ákveða hversu mik- ið þeir borguðu honum fyrir við- vikið og meðölin. Oft voru launin ekki mikil. Lengi lá hann yfir bókum um sjúkdóma og reyndi að búa sjálf- ur til meðöl við þeim. Sagt er að hann hafi búið til formúlu til að slá á kíghósta. Einnig fór það orð af Jónasi að hans remedíur virk- uðu betur en margra lærðra lækna og að fólk hefði læknast af illkynja sjúkdómum eftir að hann tók við meðhöndluninni af lærðum. En vitaskuld voru fræðin öðruvísi í þá tíð og sögusagnir áttu það til að verða ýktari þegar þær fóru manna á milli. Jónas beitti óhefðbundn- um lækningum, hómópatíu og aðferð sem kölluð er alopaþa- lækningar. Gjarnan notaði hann íslenskar lækningajurtir. Vin- sælt var að kalla í Jónas þegar um fæðingar var að ræða. Sagt er að hann hafi tekið á móti fimm hund- ruð börnum og líklegast öllum sín- um eigin. Sagt var að aldrei hefði kona dáið af barnsförum hjá hon- um. Dverghagur og ritfær Jónas var ekki aðeins vel lesinn maður heldur var verkkunnátta hans mikil og þótti hann afburða- fær í höndunum og iðinn. Smíðaði hann með tré, járni, silfri og jafnvel gulli og var sagður dverghagur. Fá ef nokkur voru þau störf sem hann gat ekki gengið inn í. Ekki varð hann þó ríkur af þessu frekar en lækningunum og auk þess þurftu hann og eiginkonur hans að sjá fyrir risastórum barnahóp. Einnig stundaði Jónas störf fyrir sveitina. Hann sat í sýslunefnd Skagafjarð- ar í 26 ár og í hreppsnefnd lengi einnig. Er þá ekki upptalið allt sem Jónas vann sér til frægðar því að ritfær var hann einnig og skáld. Jónas orti fjölmörg ljóð og vísur, skrifaði leikrit og greinar í blöð og tímarit. Hér er dæmi um kveðskap Jónasar, vísan „Eg held bjargist Ísaland.“ Eg held bjargist Ísaland að þó nokkuð þrengdi, Ef að bróðurástarband Alla saman tengdi. Dularfullt galdrakver Það undarlegasta sem Jónas festi á blað var af allt öðrum og tor- skildari meiði. Galdrakver með þulum, rúnum og táknum, 25 blaðsíður í heildina. Ekki er vitað hvenær Jónas skrifaði upp gald- rana og ekki er vitað hvort hann skrifaði þá upp eftir öðru riti. Hverju sem því líður vissu Skag- firðingar að Jónas ætti kverið og gekk sú saga í sveitinni að hann væri göldróttur. Sennilega hefur áhugi hans á lækningum og grasa- meðölum haft sitt að segja varð- andi það. Galdrakverið fannst í fórum afkomenda Jónasar og er það nú geymt hjá Stofnun Árna Magnússonar. Þegar Jónas var kominn á ní- ræðisaldurinn var hann orðinn slitinn og hrumur. Sinakreppa hrjáði hann og lá hann því rúm- fastur árum saman. Þó að líkam- inn hafi verið farinn að gefa sig var hann ern og ungur í anda. Lést hann loks árið 1927. n Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is Hjónin í Hróarsdal Jónas og Lilja, þriðja kona hans. Galdrakver Jónasar Tíminn 17. júní 1994.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.