Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Page 56
56 17. maí 2019
W
alburga „Dolly“
Oesterreich var banda-
rísk húsmóðir og eigin-
kona vellauðugs textíl-
framleiðanda, Freds Oesterreich.
Dolly fæddist árið 1880, en áhöld
eru um hvort það var í Þýska-
landi eða í Milwaukee í Wiscons-
in-fylki í Bandaríkjunum.
Hvað sem því líður þá var um
hana sagt að hún hefði alltaf ver-
ið með karlmann innan seilingar,
alla jafna fleiri en einn. Um eigin-
mann hennar var sagt að hann
hefði verið harður nagli, gef-
inn fyrir sopann og, eins og áður
sagði, afar loðinn um lófana.
Fred hafði auðgast á höndlun
með textílvörur; aðallega kven-
fatnaði og þá mestmegnis svunt-
um.
Otto táldreginn
Dolly og Fred bjuggu fyrst saman
í Milwaukee, en fluttu síðar til Los
Angeles. Það var í Milwaukee, í
kringum 1913, sem Dolly kynnt-
ist Otto nokkrum Sanhuber. Otto
vann í verksmiðju Freds og sá þar
um viðgerðir á saumavélum.
Dolly sá sér leik á borði og
ákvað að draga Otto, sem þá var
sautján ára, á tálar. Fyrsti leik-
ur Dolly í stöðunni var að hr-
ingja í mann sinn, sem þá var í
vinnunni og segja að saumavél
hennar væri biluð. Þegar Otto
kom á heimili hjónanna, grun-
laus með öllu, tók Dolly á móti
honum íklædd nælonsokkum og
silkislopp. Björninn var unninn
og það sem síðar varð er lyginni
líkast.
Fred kemst að sannleikanum
Innan skamms varð Otto sem
leir í höndum Dolly og síðar lýsti
hann sjálfum sér sem „kynlífs-
þræl“ hennar. Þau hittust á laun á
nálægu hóteli eða annars staðar.
Einnig hittust þau á heimili Dolly
og Freds ef svo bar undir.
En tíðar heimsóknir Ottos
fóru ekki fram hjá nágrönnum
hjónanna sem færðu þær í tal
við Fred. Kokkállinn brást hinn
versti við og skipaði Otto að
halda sig fjarri Dolly þaðan í frá.
Dolly stakk þá upp á því að
Otto segði starfi sínu í verksmiðju
Freds lausu og flytti inn á heim-
ili þeirra hjóna, með leynd; hann
gæti komið sér fyrir uppi í risi og
látið lítið fyrir sér fara.
Skrifar í frístundum
Það fannst Otto þjóðráð því ekki
aðeins yrði hann nær ástkonu sinni
heldur fengi hann að auki tækifæri
og tíma til að láta draum sinn um
að skrifa glæpareyfara rætast.
Við tók daglegt líf. Otto sinnti
heimilisverkum og skyldum sín-
um gagnvart húsmóðurinni. Hann
fékk matarleifar úr eldhúsinu. Í
„frítíma“ sínum var hann í næði í
risinu, las reyfara og skrifaði sjálf-
ur ævintýrasögur þar sem losti
og rómantík léku stórt hlutverk.
Otto tókst meira að segja að selja
tímaritum einhverjar sagna sinna,
en það er önnur saga.
Hjónin flytja og Otto með
Tilvist Ottos á heimilinu fór full-
komlega fram hjá Fred þótt stund-
um hafi litlu munað að hann kæm-
ist að blekkingunni. Árið 1918
fluttu Oesterreich-hjónin til Los
Angeles. Dolly hafði hugsað fyrir
öllu og sent Otto þangað á undan
og skyldi hann bíða komu þeirra.
13 ára dóttir Barböru Opel, Heather, var á meðal þeirra fimm unglinga sem Barbara réð til að myrða 64 ára yfir-mann hennar, Jerry Duane Heimann. Unglingarnir myrtu
Heimann þann 13. apríl, 2001. Þá bjó Barbara með Heimann og 89
ára gamalli móður hans, sem hún reyndar sá um.
Barbara ágirntist 40.000 Bandaríkjadali sem Heimann hafði
fórum sínum og daginn þann sátu unglingarnir fyrir honum er hann
kom heim frá vinnu og réðust á hann með hnífum og hafnabolta-
kylfu. Lík hans fannst átta dögum síðar í grunnri gröf í um sextán
kílómetra fjarlægð frá húsi hans í Snohomish-sýslu í Washington.
Kyle Boston, 14 ára, fékk 220 dali fyrir vikið, og síðar 18 ára dóm, og
SAKAMÁL
LEIÐANDI Í GREIÐSLULAUSNUM
verifone@verifone.is S: 544 5060
Verifone á Íslandi,
leiðandi fyrirtæki í greiðslulausum
Ný greiðslulausn fyrir sjálfsala
DRAUGURINN Í RISINU
n Dolly Oesterreich var ekki við eina fjölina felld n Átti um tíma þrjá ástmenn n Otto geymdi hún í risinu í áratug n Rifrildi hjónanna breytti öllu„Eiginmaðurinn og
ástmaðurinn tók-
ust á og þegar upp var
staðið hafði Fred verið
skotinn þremur skotum,
þar af einu í hnakkann
Hús Oesterreich-hjónanna
í Milwaukee Dolly geymdi
ástmann sinn í risinu um nokkurra
ára skeið.