Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Síða 64

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2019, Síða 64
17. maí 2019 20. tölublað 109. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000 En ég á samt alltaf lokaorðið! L ilja Katrín Gunnarsdóttir, núverandi yfirmaður dægur- máladeildar DV, hefur verið ráðin sem ritstjóri Frjálsrar fjölmiðlunar. Mun hún formlega taka við stjórnartaumunum á mánudag en einnig verður annar ritstjóri ráðinn til félagsins sem rekur DV og dv.is „Þetta er gífurlega spennandi verkefni og talsverð áskorun, en það er ágætt við og við að þjóta út fyrir þægindarammann. Mér þykir afar vænt um DV og tel mig afar heppna að fá að þróa miðilinn áfram í samvinnu með góðu fólki,“ segir Lilja Katrín. Hinn nýráðni ritstjóri hefur fimmtán ára reynslu og hefur meðal annars starfað sem ritstjóri Séð og heyrt og vefstjóri Mannlífs. Þá hefur hún einnig starfað sem umsjónarmaður innblaðs Frétta- blaðsins og Lífsins á Vísi. Hún er með háskólagráðu í kvikmynda- og sjónvarpsþáttaleiklist. Hefur hún einnig starfað á því sviði, bæði sem leikari og handritshöfundur. „Ég hef átt þeirri lukku að fagna síðustu fimmtán árin að vinna undir og með mörgu af fremsta fjölmiðlafólki landsins. Ég á því stóran reynslubanka að leita í og er ávallt þakklát því fólki sem ég hef unnið með í þessum bransa á lífsleiðinni. Þau hafa leitt mig á þann stað sem ég er á í dag.“ n Á hvað er Heið- ar að horfa ? É g hef verið dálítið einsleitur þegar kemur að sjónvarpsefni, þar sem ég er smá sci-fi-, zombie- og vampíru-þátta perri. Ég lá heima í heilan mánuð eftir aðgerð og þá var ég duglegur að renna í gegnum sjónvarpsefnið hjá bæði Sjónvarpi Símans og Netflix. Þættirnir voru eðlilega misgóðir, en á tímabili þá var mér sama hversu lélegt efnið var, svo lengi sem ég hafði eitt- hvað til að góna á þegar ég lá fyrir. Ég tók rispu í að horfa á þættina Z Nation á Netflix, hámhorfði á seríu eitt en missti svo fljótlega áhugann þegar ég byrjaði á seríu tvö. Það var engin sérstök ástæða fyrir því, ég var held ég bara kominn með nóg af þeim. Þeir í raun og veru fjalla um enda- lok heimsins, veiru sem fer á milli manna og breytir alsak- lausum manneskjum í upp- vakninga sem vilja bara heila í for-, aðal- og eftirrétt. Það ein- kenndi Z Nation hins vegar að þarna voru saman komnir lík- lega lélegustu leikarar og leik- konur Hollywood en mér var alveg sama. Áfram gott sjónvarp! Lilja Katrín nýr ritstjóri DV„Ég á því stóran reynslubanka að leita í og er ávallt þakklát því fólki sem ég hef unnið með í þessum bransa á lífsleiðinni Verktakar Sýnar á greiðslufrest O rðið á götunni er að allir verktakar Sýnar verði nú settir á tveggja mánaða greiðslufrest. Með þessu nýja fyrirkomulagi sparar fyrirtækið sér að greiða þeim laun næstu tvo mánuði, en um er að ræða nokkuð stóran hluta af starfsfólki fyrir- tækisins. Sýn birti í vikunni afkomu fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins og jókst hagnaður um 620 milljónir milli ára. En þar skipti mest 817 milljóna króna sölu- hagnaður vegna samruna dótturfélaga. Rekstrartekjurnar sjálfar jukust ekki nema um eitt prósent og hlutabréf hafa fallið um nærri helming á einu ári. Þá voru greiddar 137 milljónir vegna starfsloka stjórnenda. Harpa / Skeifan 6 / Kringlan / 5687733 / epal@epal.is / www.epal.is FRITZ HANSEN, ROSENDAHL, STELTON, ERIK JORGENSEN, MARIMEKKO, JOSEPH JOSEPH, CARL HANSEN, HAY OG ALLIR HINIR Í DAG FÖSTUDAG, Á MORGUN LAUGARDAG, OG Á SUNNUDAG 16. - 19. MAÍ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.