Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIR 9. ágúst 2019
2001– Palestínumaður réðst á
Sbarro-veitingastað í Jerúsalem og
myrti 15 manns.
Á þessum degi,
9. ágúst
1173 – Bygging klukkuturns við
dómkirkjuna í Písa hófst.
1945 – Bandaríkjamenn vörpuðu
kjarnorkusprengju á japönsku borgina
Nagasaki.
1969 – Leikkonan Sharon Tate var
myrt í útverfi Los Angeles af fylgjendum
Charles Manson.
1974 – Afsögn Richards Nixon
Bandaríkjaforseta gekk í gildi og Gerald
Ford varaforseti tók við.
tilefni til skrúðgöngu á Íslandi
Íslendingar
eru góðir ýmsu
en það ríkir
aldeilis skortur á
skrúðgöngum og
tilefnisgöngum.
Á Gleðigöngu
Hinsegin daga
ríkir gleðin í hinni
tærustu mynd,
rétt eins og
Druslugangan þar
á undan kemur
punkti sínum
glæsilega til skila.
Göngurnar búa
yfir svo mikilli
samstöðuorku
að ómögulega
komast sumir
hjá því að velta
fyrir sér hvaða
önnur tilefni væri
hægt að nýta til
skrúðgöngu.
Afmæli Wintris -
málsins
Ísland fór á hliðina þegar
kom í ljós að ákveðnir
Íslendingar áttu í hlut
í Panama-skjölunum
alræmdu. Til að minna
almenning á þennan
skandal væri ekki svo galið
að hefja skrúðgöngu frá
húsi Sigmundar Davíðs og
taka langa göngu upp að
Alþingishúsi til að fagna
mótmælunum sem áttu sér
stað árið 2014. Æskilegt væri
að mæta með pappíra til
að dreifa um allar götur og
klæðast felulitum, jafnvel
huliðsskikkjum.
Hrunið
Það voru svo sannarlega
mikil kaflaskil hér á landi í
október 2008. Til að minn-
ast þess ætti almenningur
að ganga um götur með
sparibauka, potta og
pönnur og láta rækilega í
sér í sér heyra. Hentugasta
nálgunin væri sennilega
að ganga hring í kringum
miðbæ Reykjavíkur, sem
frekara tákn um að við
gætum verið á góðri leið
með að stefna í annað
hrun.
Síðustu orðin
„Auðvitað þekki ég þig. Þú
ert eiginkona mín og ég
elska þig.“
Þetta sagði bandaríski leikarinn
John Wayne þegar hann sneri sér
að eiginkonu sinni, skömmu áður
en hann lést.
Heilbrigðari lífsstíll
Nú í ár er heill áratugur
liðinn síðan stórrisakeðjan
McDonald‘s kvaddi Ísland
og kom þannig landinu í
ákveðna sérstöðu. Fólk
á það til að grínast með
að jafnvel þriðja heims
lönd bjóði upp á sveittu
McBorgarana og sé þá
Ísland komið langt undir
þann stall. Þetta er alls
ekki rétt. Þvert á móti eiga
Íslendingar að sjá þetta
sem tilefni til hollara
mataræðis. Því ekki þá að
þramma frá Suðurlands-
braut til Austurstrætis
(þar sem matstaðirnir
voru upphaflega til
húsa) með blaðlauk og
spergilkál við hönd? Hægt
er að kyrja: „Ísland og
matur! Keðjuna McBurt!“
Íslandsvinum fagnað
Fólk setur að sjálfsögðu á
sig sína flottustu gervi-
mottu og fagnar lostanum
eins og hann leggur sig og
yfirburðum landans til að
eignast nýja „Íslandsvini“
eins og þeir kallast. Í kringum
sumarið 2002 kom hinn góð-
kunni Ron Jeremy til Íslands.
Þá þýðir vissulega ekkert
annað en að landsmenn
safnist saman með gervi-
mottu framan í sér og söngli
eitthvert þemalag í fagn-
aðarskyni vegna víðfrægra
Íslandsvina. Langsóttari
hlutir hafa nú gerst.
Jafnlaunavottunin
Þann 1. janúar 2018 tóku gildi
lög um breytingu stöðu um
jafnan launarétt karla og
kvenna. Megin breytingin
var sú að nú er fyrirtækjum
og stofnunum skylt að sýna
fram á að þau greiði jöfn laun
fyrir sömu og jafn verðmæt
störf. Jafnlaunastaðallinn er
svo sannarlega skref í réttu
áttina og þótt nýársdagur-
inn sé ekki heppilegasti
dagurinn til að rífa fólk á
lappir og marsera með bros
á vör, má vel vinna með þá
hugmynd ef heitt kakó eða
kaffi verður í boði.
„Ég er ekki stoltur af þessu“
Í
slenskur karlmaður, Hafsteinn
Ingvar Rúnarsson, 35 ára,
bíður um þessar mundir dóms
í Missouri-fylki í Bandaríkjun-
um vegna ofbeldis í garð eigin-
konu sinnar (e. domestic assault
2nd degree). Hann er ákærð-
ur fyrir að hafa í tvígang ráðist á
eiginkonu sína og valdið henni
líkamsmeiðingum. Verði hann
fundinn sekur á hann yfir höfði
sér allt að sjö ára fangelsi.
Hafsteinn Ingvar er fyrrver-
andi knattspyrnumaður, en hann
hefur spilað með liði Keflavíkur
og Reyni, auk þess sem hann hef-
ur spilað með Grindavík, Njarð-
vík og Víði. Hefur hann verið bú-
settur í Kansas undanfarin ár.
Þann 26. júlí síðastliðinn ákvað
kviðdómur í Jackson-sýslu að
gefa skyldi út ákæru á hendur
Hafsteini. Hann er ákærður fyrir
ofbeldi af annarri gráðu og er
ákæran í tveimur liðum.
Rankaði við sér á jörðinni
Fram kemur í ákæru að þann
13. júní síðastliðinn „hafi hinn
ákærði með ásettu ráði valdið
fórnarlambinu líkamsmeiðingum
með því að taka það kverkataki.“
Þá er Hafsteinn einnig ákærð-
ur fyrir að hafa valdið eiginkonu
sinni líkamsmeiðingum með því
að berja höfði hennar í glugga.
Brotin varða tveggja til sjö ára
fangelsi.
Í lögregluskýrslu kemur fram
að þann 13. júní síðastliðinn
hafi borist tilkynning um átök á
ónafngreindu bílaplani í Kansas-
-borg. Þegar lögregla mætti á
svæðið tilkynnti eiginkona Haf-
steins að hann hefði beitt hana
ofbeldi. Tjáði hún lögreglu að
komið hefði til rifrildis á milli
þeirra hjóna þar sem þau voru
stödd á bílastæði á ónefndum
stað í borginni. Sagðist hún hafa
rifið gleraugu Hafsteins af hon-
um og hent þeim í burtu, þvert
yfir bílastæðið. Sagði hún Haf-
stein hafa brugðist við með of-
beldi, en hún sagðist ekki muna
restina af atburðarásinni. Sagð-
ist hún muna eftir að hafa rankað
við sér þar sem hún lá á jörðinni.
Þá sagði hún Hafstein hafa ráðist
aftur á hana stuttu síðar.
Öskur og læti
Fram kemur í lögregluskýrsl-
unni að kona hafi verið vitni að
árásinni. Umrædd kona tjáði lög-
reglu að hún hefði verið á leið heim
úr vinnu þegar hún heyrði hávær
öskur úr bíl á bílastæði. Sagðist
hún hafa séð Hafstein sitja í ök-
umannsætinu, með báðar hend-
ur utan um háls eiginkonunnar
sem sat á jörðinni við hliðina á
bílnum, ökumannsmegin. Kon-
an sagðist hafa kallað í átt að Haf-
steini sem hafi brugðist við með
að sleppa kverkatakinu og setj-
ast síðan í aftursæti bílsins. Eig-
inkona Hafsteins settist því næst
í ökumannsætið og ók á brott.
Vitnið sagðist hafa keyrt af stað og
komið þá aftur að bílnum og þá
heyrt öskur koma innan úr hon-
um. Greip hún þá kúbein og gekk
að bílnum þar sem hún sá Haf-
stein slá höfði eiginkonu sinnar í
bílrúðuna, ökumannsmegin.
Undir áhrifum
Fram kemur lögregluskýrslunni
að eiginkona Hafsteins hafi ver-
ið með mar á vinstra auga og að
áverkar hafi verið á hálsi hennar,
sem bendi til að hún hert hefði
verið að hálsi hennar. Var Haf-
steinn umsvifalaust handtekinn
og fluttur á lögreglustöð.
Við yfirheyrslur sagði hann
að komið hefði til rifrildis á
milli þeirra hjóna vegna þess
að eiginkona hans hefði ver-
ið að senda skilaboð á ónefnd-
an einstakling. Hafsteinn sagð-
ist hafa innbyrt áfengi og verið
drukkinn þegar þetta átti sér stað.
Þá kemur fram í skýrslunni að
þegar Hafsteinn var spurður hvað
hefði átt sér stað hefði hann svar-
að:
„Við vorum að ræða saman. Ég
var reiður af því að ég var undir
áhrifum. Einhverra hluta vegna þá
hafði ég ekki stjórn á tilfinningum
mínum og þetta *** gerðist. Ég er
ekki stoltur af þessu.“
Samkvæmt opinberum
gögnum var Hafsteinn Ingv-
ar fluttur í Jackson County Det-
ention Center en þar eru vistaðir
fangar sem bíða dóms. n
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is
Hafsteinn Ingvar Rúnarsson bíður dóms í Kansas vegna ofbeldis gagnvart eiginkonu sinni
Hafsteinn ingvar Rúnarsson