Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2019, Page 16
16 9. águst 2019FRÉTTIR
E
ggert Skúli Jóhannesson
framkvæmdastjóri hefur
ítrekað verið sakaður um
misferli í viðskiptum.
Á árinu 2016 hófst rannsókn
á meintum svikum hans úr
Ábyrgðarsjóði launa, hann
stofnaði Hjálparsamtök bág
staddra barna sem sættu mik
illi tortryggni og voru lögð nið
ur eftir aðeins örfáa mánuði.
Blaðamaður kafaði ofan í málið
og fann þar möguleg tengsl hans
við Fréttatímann, tengsl hans og
sonar hans við fyrirtækið Ice X
Investments ehf. og einnig hefur
gefið sig fram heimildarmaður
sem segir Eggert hafa falsað
undirskrift hans á pappírum og
komið því til leiða að hann er nú
einn sakborninga í áðurnefndu
sakamáli vegna meintra svika úr
Ábyrgðarsjóði launa.
Ábyrgðarsjóður launa
Grunur leikur á að umtalsvert
fé hafi verið fengið af Ábyrgðar
sjóði launa með sviksamlegum
hætti. Upphaflega var greint frá
málinu á árinu 2016 í Fréttatím
anum sem þá var undir ritstjórn
Þóru Tómasdóttur og Gunnars
Smára Egilssonar. Enn hefur
ekki verið gefin út ákæra í mál
inu sem heimildir DV herma að
sé enn til rannsóknar hjá ákæru
sviði Héraðssaksóknara.
Fréttatíminn greindi frá því í
ágúst 2016, í frétt sem bar fyrir
sögnina „Eggert Skúli víða sak
aður um svik“, að launakröfur frá
tveimur fyrirtækjum tengdum
Eggerti Skúla Jóhannessyni
framkvæmdastjóra hefðu borist
í Ábyrgðarsjóð launa. Hlut
verk Ábyrgðarsjóðs launa er að
bera ábyrgð á launum starfs
manna fyrirtækja sem fara í þrot.
Starfsmenn gera kröfur í þrota
bú vinnuveitanda síns og geta
þá fengið launin sín greidd úr
ábyrgðarsjóði.
Meintir starfsmenn fyrir
tækja sem tengjast Eggerti
Skúla fóru fram á háar greiðsl
ur úr Ábyrgðarsjóði launa og
áttu sumir hverjir að hafa starf
að launalaust fyrir fyrirtækin
í ríflega hálft ár. Heimildir DV
herma að málið varði þónokk
ur þrotabú sem virðast tengj
ast sömu aðilum og að launa
kröfurnar hafi jafnvel komið frá
meintum starfsmönnum sem
aldrei hafi unnið fyrir þessi fyrir
tæki og kannist jafnvel sjálfir
ekki við að hafa lagt fram kröf
urnar, eins og nánar verður vikið
að hér síðar.
Blaðamaður hafði samband
við embætti Héraðssaksóknara
en var greint frá því að ekki væri
hægt að veita svör við fyrirspurn
um sökum þagnarskyldu, en
samkvæmt áreiðanlegum heim
ildum DV hefur málið dregist
mikið á langinn sökum þess að
illa hefur gengið að ná í einn sak
borning og ekki vitað með vissu
hvar hann heldur sig.
Heimildarmaður DV, sem
ekki vill láta nafns síns getið,
segist í samtali við blaðamann
telja Eggert siðblindan og tel
ur ámælisvert hvað rannsókn
málsins hefur dregist á langinn:
„Þetta er náttúrulega sameigin
legur sjóður landsmanna. Núna
þurfti virkilega á þessum sjóð að
halda og þá er nú allt í lagi að það
séu inni einhverjir aurar í þess
um sjóði, að það séu ekki menn
eins og Eggert sem eru búnir að
tæma þetta.“
Hjálparsamtök bágstaddra
barna
Árið 2016 stofnaði Eggert Skúli,
ásamt fleirum, Hjálparsamtök
bágstaddra barna. Hjálparsam
tökin vöktu mikla athygli þar
sem upprunalega var ómögulegt
að rekja hverjir stæðu að baki
söfnunum sem samtökin stóðu
fyrir. Á daginn kom að Eggert
stóð að baki samtökunum ásamt
Gunnari Bender veiðimanni sem
nokkrum mánuðum fyrr hafði
lagt fram háar kröfur í Ábyrgðar
sjóð launa vegna meintra starfa
sinna fyrir fyrirtæki Eggerts.
Launakröfum Gunnars var hafn
að eftir að grunsemdir vöknuðu
um að þeir félagar væru í slagtogi
að reyna að svíkja fé úr sjóðn
um, en eins og áður hefur kom
ið fram eru meint svik Eggerts
enn til rannsóknar hjá Héraðs
saksóknara. Söfnunin þótti það
vafasöm að lögregla tók málið til
rannsóknar, en ekki hafði verið
aflað til hennar tilskilinna leyfa
samkvæmt lögum.
Í kjölfar umfjöllunar Frétta
tímans var samtökunum lokað.
Á heimasíðu samtakanna var
greint frá því að þeim hefði
formlega verið slitið, reikning
um lokað, reikningar greiddir
og eftirstöðvum, 68.500 krónum
hafi verið ráðstafað til Mæðra
styrksnefndar.
Jóhannes Gísli Eggertsson
Sonur Eggerts Skúla, Jóhannes
Gísli Eggertsson, virðist tengj
ast mörgum af sömum fyrirtækj
unum og faðir hans. Hann hefur
ítrekað komist í kast við lögin og
hlotið dóma fyrir fjársvik.
Í nóvember 2016 var Jóhann
es Gísli Eggertsson dæmdur í
sex mánaða fangelsi fyrir um
fangsmikil fjársvik úr vefverslun
ELKO. Í dómnum kemur fram
að Jóhannes Gísli hafi í fjögur
skipti, á tímabilinu 17.–21. feb
rúar pantað vörur, fyrir um eina
milljón króna, meðal annars
Samsungsnjallsjónvarp og
iMacfartölvu, og síðan sent fals
aða greiðslukvittun í tölvupósti.
Hann hafi síðan nálgast vörurn
ar í verslun ELKO daginn eftir. Í
tvö skipti reyndi Jóhannes Gísli
sama leik og freistaði þess að fá
vörurnar sendar í pósti auk þess
sem hann sendi annan einstak
ling til þess að sækja vörurnar.
Þær tilraunir misheppnuðust.
Þetta var ekki fyrsta brot hans,
hann hafði áður hlotið þrjá
dóma fyrir auðgunarbrot.
Fréttatíminn
Fréttatíminn var áður í eigu út
gáfufélagsins Morgundags sem
var tekið til gjaldþrotaskipta
sumarið 2017. Skömmu síð
ar birtist Fréttatíminn aftur á
netinu í breyttri mynd, en mik
il leynd hvíldi yfir því hver stæði
þar að baki. DV greindi frá því í
janúar 2018 að Jóhannes Gísli
hefði fest kaup á léninu. Í kjöl
far fyrirspurna DV var opinber
að að Fréttatíminn væri í eigu
Guðlaugar Hermannssonar fisk
kaupanda sem þvertók fyrir að
komu Jóhannesar að fjölmiðlin
um.
Jóhannes hafði þó skrifað
frétt á vef Fréttatímans þar sem
hann birti myndband þar sem
greina mátti rödd hans og þar
sem hann titlaði sig sem blaða
mann Fréttatímans. Guðlaugur
hafði því sagt ósatt. Jóhannes
sjálfur þvertók fyrir aðkomu sína
að miðlinum í fyrstu en viður
kenndi síðan að starfa þar. Hann
hefði óttast að verða dæmdur
vegna fortíðar sinnar og kvaðst
dreyma um að vera blaðamað
ur. Jóhannes Gísli neitar allri að
komu sinni að Fréttatímanum í
dag.
Á huldu er hverjir skrifa frétt
ir á vef miðilsins en við rannsókn
blaðamanns kom í ljós áhuga
verð tenging við Eggert Skúla.
Þegar leitað er eftir nafni Egg
erts á netinu má sjá fjölda frétta
af vef Fréttatímans þar sem neðst
stendur Uppsetning: Eggert
Skúli Jóhannesson. Þessi undir
skrift er þó hulin og sést aðeins
ef textinn er valinn sérstaklega.
Fréttatíminn hefur einnig
bæði skrifað grein og birt aug
lýsingu fyrir Alheim vefsíðu
hönnun en lénið alheimur.is er
skráð á fyrirtækið Ice X Invest
ments ehf. sem samkvæmt fyrir
tækjaskrá er auglýsingastofa. Ice
X Investments á fjöldann allan
af lénum. Meðal þeirra léna er
icelandicinfo.is. Tölvupóstfang
tengiliðar er skr áð sparmye@
icetraveler.is en Sparmye AS er
fyrirtæki Eggerts Skúla í Noregi
sem hefur verið tekið til gjald
þrotaskipta.
Frá því að Fréttatíminn fór
aftur í loftið hefur einnig birst
viðtal við Eggert Skúla og mynd
ir af honum frá viðburðum Mið
flokksins svo eitthvað sé nefnt.
Ice X Investments
Sonur Eggerts Skúla, Hörður,
er einn í stjórn Ice X Invest
ments í dag. En samkvæmt sam
þykkt félagsins frá mars 2018 var
barnsmóðir Jóhannesar Gísla
formaður stjórnar þar til nýlega.
Athygli vekur að bæði barnsmóð
irin og Hörður eru skráð með
sama netfang á skjölunum, net
fang sem tengist veiði, en Eggert
Skúli er mikill veiðimaður.
Hvorki náðist í Hörð né
barnsmóður Jóhannesar Gísla
við vinnslu fréttarinnar.
Eggert Skúli virðist einnig eiga
Pintrestsíðu þar sem hann má
finna möppu sem heitir Ice X In
vestments.
Einnig vekur athygli að Ice
X Investments, skráð sem aug
lýsingastofa í fyrirtækjaskrá,
og eigandi lénsins alheimur.is,
sem hefur auglýst vefsíðugerð,
VAFASÖM FLÉTTA
EGGERTS SKÚLA
n Ítrekað verið sakaður um misferli í viðskiptum n Grunaður um að svíkja úr
sameiginlegum sjóði landsmanna og skjalafals n Möguleg tengsl við Fréttatímann
„Ráðlegg þér að sleppa þessari
birtingu á þessari „frétt“ því að
það verða miklir eftirmálar af þessum
meiðyrðum og vísvitandi rangri frá-
sögn.
Erla Dóra
erladora@dv.is
Skjáskot/ Fréttatíminn