Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2019, Síða 32
MORÐKVENDI Í MELBOURNE
32 9. ágúst 2019
SAKAMÁL
B
ernska Mörthu Needle
var lituð ofbeldi og illri
meðferð. Martha fæddist
skammt frá Morgan í Suð-
ur-Ástralíu árið 1863. Hún var að
sögn blíðlynt barn, en sinni henn-
ar fór ekki varhluta af því ofbeldi
sem einkenndi heimilislífið. Ung
að árum fór Martha að sýna merki
um andleg veikindi, en það kom
þó ekki í veg fyrir að hún gengi í
hjónaband. Sautján ára að aldri
giftist hún Henry Needle í Norð-
ur-Adelaide og 1882 fæddist þeim
hjónum dóttir, Mabel. Ári síð-
ar fæddist Elsie og árið 1885 kom
May í heiminn og sama ár flutti
fjölskyldan til Richmond í úthverfi
Melbourne.
Dauðinn knýr dyra
Þann 23. febrúar, 1885, dó Mabel
eftir stutt veikindi og sagði Martha
að líf hennar hefði „virst dofna“.
Síðar innheimti Martha líf-
tryggingu Mabel, 100 pund, and-
virði hátt í 100.000 Bandaríkjadala
á núvirði.
Liðu nú nokkur ár, en 4. október,
1889, knúði dauðinn dyra í ann-
að sinn. Þá dó Henry úr einhverj-
um óskilgreindum og dularfullum
sjúkdómi og má geta þess að hann
var líftryggður fyrir 200 pund.
Elsie fylgdi föður sínum árið
1890 og síðar sama ár dó May.
Læknar voru ráðvilltir og kunnu
engar skýringar á öllum þessum
dauðsföllum. Martha eyddi nán-
ast öllu tryggingarfénu í veglegan
fjölskyldugrafreit sem hún vitjaði
tíðum.
Ástarsamband og andlát
Vinur Mörthu frá Adelaide, Lou-
is Juncken, höndlaði, með bróð-
ur sínum Otto, með hnakka í
Richmond. Árið 1893 tók Martha,
sem þá hafði breytt viðbyggingu
húss síns í gistiheimili, upp sam-
band við Otto. Þegar þar var kom-
ið sögu voru þeir bræður leigjend-
ur hjá Mörthu.
Bræðrum Ottos, áður nefnd-
um Louis og Hermanni, sem bjó
í Adelaide, hugnaðist ekki sam-
dráttur Mörthu og Ottos og gerðu
þeir hvað þeir gátu til að hindra
fyrirhugaða trúlofun þeirra.
Árið 1894 veiktist Louis og and-
aðist í kjölfarið. Var talið að tauga-
veiki hefði dregið hann til dauða.
Arsenik í ælunni
Í júní, 1894, fór Hermann frá
Adelaide til Melbourne til að
ganga frá málum Louis heitins.
Hann fékk eðlilega gistingu á gisti-
heimili Mörthu og eftir að hafa
innbyrt máltíð sem hún útbjó fyrir
hann fékk hann heiftarlega verki.
Hermann jafnaði sig þó fljótt,
en næsta dag endurtók sagan
sig eftir að hann hafði borðað
morgunverð. Liðu nú tveir dagar
og Hermann varð fullfrískur, en
þá, að máltíð lokinni, sem Martha
hafði framreitt, fékk hann slæma
krampa, svo slæma að hann
kastaði upp. Hermanni leist ekki á
blikuna og lét sækja lækni. Lækn-
irinn, Boyd, tók sýni úr ælunni og
viti menn, rannsókn leiddi í ljós að
hún innihélt arsenik.
n Martha hagnaðist ekki persónulega á ódæðum sínum n Tryggingaféð notað í fjölskyldugrafreit n Hélt fram sakleysi sínu allt til enda
Árla morguns 1. mars, 2008, ruddust tveir ungir menn inn á heimili Caffey-fjöl-
skyldunnar í Alba í Texas og skutu á allt sem hreyfðist. Morðhrinan kostaði tvö ung
börn og móður þeirra lífið. Heimilisfaðirinn, Terry Caffey, var skotinn mörgum skotum,
en náði við illan leik að skríða frá heimilinu áður en ódæðismennirnir báru eld að því.
Íbúar í Alba voru slegnir vegna ódæðisins og ekki bætti úr skák þegar lögregla upplýsti
að Erin, dóttir Caffey-hjónanna, stóð að baki morðunum.
Erin var formlega ákærð í mars 2008 og taldi lögregla að ástæðuna fyrir morðunum
hefði mátt rekja til ósættis Erin og foreldra hennar,
V
innufélögum Jennifer A. Dalton, í
Damascus í Maryland í Bandaríkjun-
um, var ekki rótt að morgni föstudags-
ins 25. september 2009. Jennifer, sem
bjó í Mt. Airy, vann hlutastarf á dýralækninga-
stofu í Damascus og hafði hvorki mætt til vinnu
né tilkynnt forföll. Það var mjög ólíkt henni.
Vinnufélagar hennar hringdu í hvort tveggja
heimasíma Jennifer og farsíma, en án árangurs.
Enginn á lífi
Að kvöldi þess sama dags kom í ljós að fyrir því var ærin
ástæða; Jennifer Dalton var ekki lengur í tölu lifenda.
Reyndar var enginn úr fjölskyldunni á lífi. Heimilis-
faðirinn Charles Dalton eldri, eiginkona hans Jenni-
fer, og tvö börn þeirra, Charles Dalton yngri, 14 ára, og
Emmaline, 7 ára, höfðu öll verið skotin til bana.
Tíðindin komu nágrönnum og vinum í opna
skjöldu, enda gat enginn ímyndað sér að nokkur vildi
vinna Dalton-fjölskyldunni mein.
Morð og sjálfsmorð í Mt. AiryÁ vettvangiÓhugnanleg sjón mætti lögreglu.
Öll fjölskyldan vegin – Heimilishundurinn slapp ekki
Martha Needle
Ólst upp við fátækt og slæma meðferð.
Systursonur Mörthu
Alexander Newland Lee fylgdi
fordæmi frænku sinnar.
May og Elise
Tvær dætra Mörthu í kringum 1889.