Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2019, Page 94
FÓKUS 21. ágúst 201994
Þau eru jafngömul
n Bjarni Ben og Anna Mjöll deila fæðingarári n Vissir þú að Mugison og Lárus Welding eru jafnaldrar?
Afgreiðum HÁDEGISMAT Í BÖKKUM
alla daga ársins til fyrirtækja og stofnana
GÆÐA BAKKAMATUR
Mismunandi réttir
ALLA DAGA VIKUNNAR
Hólshraun 3, 220 Hafnarfjörður / S 555 18 10 og 565 1810 / veislulist@veislulist.is / veislulist.is
HRINGDU OG PANTAÐU Í SÍMA 555 1810
Aldur er afstæður en oft getur það komið á óvart hve ólíkir jafnaldrar eru.
DV ákvað því að fara yfir aldur nokkurra landsþekktra Íslendinga og kom
margt á óvart þegar leitað var að jafnöldrum.
1976 – Mugison,
Lárus og Katrín
Forsætisráðherra vor, Katrín Jakobsdóttir, fæddist þann 1. febrúar
árið 1976. Í september það sama ár kom tónlistarmaðurinn Mugison í
heiminn og í desember fæddist athafnamaðurinn Lárus Welding.
1973 – Óli og Óli
Leikarinn Ólafur Darri Ólafs-
son og handboltahetjan Ólafur
Stefánsson eiga ekki mikið
sameiginlegt nema fæðingarárið.
1965 – Bjarkey
og Björk
Óvíst er hvort stjórnmálakonan
Bjarkey Gunnarsdóttir sé söngelsk
en hún er jafngömul Björk okkar
Guðmundsdóttur.
1967 – Gnarr,
Bjöggi og Birgitta
Jón Gnarr hefur margoft sagt frá því að hann eigi afmæli 2. janúar, á
sjálfum talningardeginum. Jón fæddist árið 1967 líkt og kaupsýslu-
maðurinn Björgólfur Thor Björgólfsson og þúsundþjalasmiðurinn
Birgitta Jónsdóttir.
1955 – Siggi,
Steingrímur,
Diddú og Einar
Margir landsþekktir einstak-
lingar fæddust árið 1955, til að
mynda Siggi Sigurjóns leik-
ari, Steingrímur J. Sigfússon
pólitíkus, söngkonan Diddú
og rithöfundurinn Einar
Kárason.
1948 – Davíð og Ari
Davíð Oddsson, ritstjóri Morgun-
blaðsins, er jafngamall jarðfræðingn-
um og stjórnmálamanninum Ara
Trausta Guðmundssyni.
1957 – Bergþór og Lilja
Söngvarinn Bergþór Pálsson kom
syngjandi í heiminn árið 1957, líkt
og stjórnmálakonan Lilja Rafney
Magnúsdóttir.