Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2019, Side 92

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2019, Side 92
FÓKUS 21. ágúst 201992 Níu ástæður til að vera sófakartafla í haust Nú er farið að dimma, kuldinn stingur inn að beini og kvöldin orðin aðeins meira að kósí. Það þýðir að haustið er á næsta leiti, en eitt það besta við haustin eru glænýir sjónvarpsþættir sem líta dagsins ljós í hinum stóra heimi. Fókus fór á stúfana og fann níu spennandi þætti sem gætu hugsanlega gert þig að sófakartöflu. Miníserían Unbelievable er byggð á verðlaunasögu um unglingsstúlkuna Marie Adler sem er sökuð um að ranglega ásaka mann um nauðgun. Lögregluþjónar í bænum hennar trúa henni ekki en á sama tíma eru tveir lögregluþjónar í öðrum bæ að rannsaka nokkrar nauðganir sem eru svipaðar frásögn Marie. Hér er valinn maður í hverju rúmi og ljóst að þessir átta þættir gætu orðið ansi spennandi. Hér eru á ferð þættir sem fjalla um son raðmorðingja, sem kallaður er Skurðlæknirinn, sem gengur til liðs við lögregluna í New York til að rannsaka ýmis morð- mál. Leikaraliðið í þessum þáttum er ekkert slor en raðmorðingjann leikur Michael Sheen. Meðal annarra leikara eru Bellamy Young, Lou Diamond Philips og Tom Payne. Margir kannast við leikkonuna Cobie Smulders úr grínþátt- unum How I Met Your Mother. Nú snýr hún á skjáinn sem uppgjafahermaður sem reynir fyrir sér sem einkaspæjari í Portland í Oregon. Á milli þess sem hún spæjar þarf hún að hugsa um bróður sinn. Cobie nýtur liðsinnis annars þekkts leikara úr gamanþáttum, Jake Johnson úr New Girl, en hann leikur vin hennar í þáttunum. Margir kannast við leikkonuna Cobie Smulders úr grínþáttunum How I Met Your Mother. Nú snýr hún á skjáinn sem uppgjafahermaður sem reynir fyrir sér sem einkaspæjari í Portland í Oregon. Á milli þess sem hún spæjar þarf hún að hugsa um bróður sinn. Cobie nýtur liðsinnis annars þekkts leikara úr gamanþáttum, Jake Johnson úr New Girl, en hann leikur vin hennar í þáttunum. Ben Platt, Gwyneth Paltrow, Jessica Lange – allt eru þetta leikarar sem fara með veigamikil hlutverk í sjón- varpsþáttunum The Politician. Þættirnir koma úr ranni Ryans Murphy, sem er maðurinn á bak við Glee, American Horror Story og Pose, og fjalla um moldríkan táning sem þráir að verða forseti Bandaríkjanna. Hárbeitt ádeila sem oft breytist í hálfgerðan söngleik. Stórleikarinn Forest Whitaker heiðrar sjónvarpsáhorfend- ur með nærveru sinni og bregður sér í hlutverk alræmda glæpaforingjans Bumpy Johnson, sem sneri til baka á götuna úr fangelsi á sjöunda áratug síðustu aldar. Þá var ítalska maf- ían búin að taka völdin og þurfti Bumpy að berjast við hana til að ná hverfinu sínu aftur á sitt band. Bumpy tók höndum saman við Malcolm X til að ná ætlunarverki sínu sem orsakaði mafíustríð sem rústaði næstum því Harlem. Josh Schwartz og Stephanie Savage, fólkið á bak við The O.C. og Gossip Girl, færir okkur sjónvarpsþætti sem byggðir eru á skáldsögu eftir John Green, Looking for Alaska. Sagan fjallar um Miles Halter sem fellur fyrir dularfullri stúlku sem heitir Alaska Young. Í raun var skáldsagan innblásin af tíma rithöfundarins í miðskóla og inniheldur hún afar grafískar kynlífslýsingar. Spurn- ing hvernig það verður leyst í sjónvarpsþáttunum. Þetta er hugsanlega áhugaverðasta serían í hópnum. Disney ákvað að opna streymisveitu sína með hvelli: fyrstu leiknu Star Wars-sjónvarpsseríunni sem nokkurn tímann hefur verið gerð. Game of Thrones-leikarinn Pedro Pascal leikur Mandalorian, bardagahetju frá Mandalore. Atburðarásin gerist í sama heimi og Star Wars-myndirnar en ástsælir karakterar eins og Han Solo og Rey verða víðs fjarri. Meðal annarra leikara í þáttunum eru til að mynda Nick Nolte og Bill Burr. Leikarinn Paul Rudd hefur makað krókinn sem Ant-Man síðustu ár en í Living With Yourself fer hann aftur í rómantískt gamanstuð og leikur mann sem fer í nýstárlega meðferð til að verða betri manneskja. Þættirnir velta upp heimspekilegri spurningu um hvað það þýðir að vera góð manneskja og hverju fólk vill fórna til að ná því markmiði. Unbelievable Prodigal Son Stumptown Evil The Politician Godfather of Harlem Looking for Alaska The Mandalorian Living With Yourself Frumsýning: 13. september Frumsýning: 23. september Frumsýning: 25. september Frumsýning: 26. september Frumsýning: 27. september Frumsýning: 29. september Frumsýning: 18. október Frumsýning: 12. nóvember Frumsýning: Óljóst
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.