Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.2019, Blaðsíða 92
FÓKUS 21. ágúst 201992
Níu ástæður til að vera sófakartafla í haust
Nú er farið að dimma, kuldinn stingur inn að beini og kvöldin orðin aðeins meira að kósí. Það þýðir að haustið er á næsta leiti, en
eitt það besta við haustin eru glænýir sjónvarpsþættir sem líta dagsins ljós í hinum stóra heimi. Fókus fór á stúfana og fann níu
spennandi þætti sem gætu hugsanlega gert þig að sófakartöflu.
Miníserían Unbelievable er byggð á verðlaunasögu
um unglingsstúlkuna Marie Adler sem er sökuð um að
ranglega ásaka mann um nauðgun. Lögregluþjónar
í bænum hennar trúa henni ekki en á sama tíma eru
tveir lögregluþjónar í öðrum bæ að rannsaka nokkrar
nauðganir sem eru svipaðar frásögn Marie. Hér er
valinn maður í hverju rúmi og ljóst að þessir átta þættir
gætu orðið ansi spennandi.
Hér eru á ferð þættir sem fjalla um son raðmorðingja,
sem kallaður er Skurðlæknirinn, sem gengur til liðs
við lögregluna í New York til að rannsaka ýmis morð-
mál. Leikaraliðið í þessum þáttum er ekkert slor en
raðmorðingjann leikur Michael Sheen. Meðal annarra
leikara eru Bellamy Young, Lou Diamond Philips og
Tom Payne.
Margir kannast við leikkonuna Cobie Smulders úr grínþátt-
unum How I Met Your Mother. Nú snýr hún á skjáinn sem
uppgjafahermaður sem reynir fyrir sér sem einkaspæjari í
Portland í Oregon. Á milli þess sem hún spæjar þarf hún að
hugsa um bróður sinn. Cobie nýtur liðsinnis annars þekkts
leikara úr gamanþáttum, Jake Johnson úr New Girl, en hann
leikur vin hennar í þáttunum.
Margir kannast við leikkonuna Cobie Smulders úr
grínþáttunum How I Met Your Mother. Nú snýr hún á
skjáinn sem uppgjafahermaður sem reynir fyrir sér
sem einkaspæjari í Portland í Oregon. Á milli þess sem
hún spæjar þarf hún að hugsa um bróður sinn. Cobie
nýtur liðsinnis annars þekkts leikara úr gamanþáttum,
Jake Johnson úr New Girl, en hann leikur vin hennar í
þáttunum.
Ben Platt, Gwyneth Paltrow, Jessica Lange – allt eru
þetta leikarar sem fara með veigamikil hlutverk í sjón-
varpsþáttunum The Politician. Þættirnir koma úr ranni
Ryans Murphy, sem er maðurinn á bak við Glee, American
Horror Story og Pose, og fjalla um moldríkan táning sem
þráir að verða forseti Bandaríkjanna. Hárbeitt ádeila
sem oft breytist í hálfgerðan söngleik.
Stórleikarinn Forest Whitaker heiðrar sjónvarpsáhorfend-
ur með nærveru sinni og bregður sér í hlutverk alræmda
glæpaforingjans Bumpy Johnson, sem sneri til baka á götuna
úr fangelsi á sjöunda áratug síðustu aldar. Þá var ítalska maf-
ían búin að taka völdin og þurfti Bumpy að berjast við hana
til að ná hverfinu sínu aftur á sitt band. Bumpy tók höndum
saman við Malcolm X til að ná ætlunarverki sínu sem orsakaði
mafíustríð sem rústaði næstum því Harlem.
Josh Schwartz og Stephanie Savage, fólkið á bak við
The O.C. og Gossip Girl, færir okkur sjónvarpsþætti sem
byggðir eru á skáldsögu eftir John Green, Looking for
Alaska. Sagan fjallar um Miles Halter sem fellur fyrir
dularfullri stúlku sem heitir Alaska Young. Í raun var
skáldsagan innblásin af tíma rithöfundarins í miðskóla
og inniheldur hún afar grafískar kynlífslýsingar. Spurn-
ing hvernig það verður leyst í sjónvarpsþáttunum.
Þetta er hugsanlega áhugaverðasta serían í hópnum.
Disney ákvað að opna streymisveitu sína með hvelli:
fyrstu leiknu Star Wars-sjónvarpsseríunni sem nokkurn
tímann hefur verið gerð. Game of Thrones-leikarinn
Pedro Pascal leikur Mandalorian, bardagahetju frá
Mandalore. Atburðarásin gerist í sama heimi og Star
Wars-myndirnar en ástsælir karakterar eins og Han
Solo og Rey verða víðs fjarri. Meðal annarra leikara í
þáttunum eru til að mynda Nick Nolte og Bill Burr.
Leikarinn Paul Rudd hefur makað krókinn sem Ant-Man
síðustu ár en í Living With Yourself fer hann aftur í rómantískt
gamanstuð og leikur mann sem fer í nýstárlega meðferð til
að verða betri manneskja. Þættirnir velta upp heimspekilegri
spurningu um hvað það þýðir að vera góð manneskja og
hverju fólk vill fórna til að ná því markmiði.
Unbelievable Prodigal Son Stumptown
Evil The Politician Godfather of Harlem
Looking for Alaska The Mandalorian Living With Yourself
Frumsýning: 13. september Frumsýning: 23. september Frumsýning: 25. september
Frumsýning: 26. september Frumsýning: 27. september Frumsýning: 29. september
Frumsýning: 18. október Frumsýning: 12. nóvember Frumsýning: Óljóst