Morgunblaðið - 08.05.2019, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.05.2019, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2019 Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Mikill Eurovision-áhugi landans virðist ekki hafa farið fram hjá Þjóðminjasafni Íslands því safnið leitar nú eftir aðstoð almennings við að safna upplýsingum um hefðir tengdar söngvakeppninni evrópsku. Er fyrst og fremst verið að leita eftir frásögnum fólks af eigin reynslu og siðum í tengslum við keppnina, en þetta mun vera liður í þeirri starf- semi Þjóðminjasafnsins að safna upplýsingum um samtímann. „Við erum ekki bara á kúskinns- skóm og í bændasamfélaginu,“ segir Ágúst Ó. Georgsson, sérfræðingur þjóðháttasafns hjá Þjóðminjasafni Íslands, spurður út í Eurovision- könnunina. „Þetta verkefni hefur í raun verið nokkuð lengi í pípunum því við reynum að vera með puttann á því sem er að gerast í kringum okkur. Og þessi keppni hefur verið lengi áberandi og því fannst okkur ástæða til að safna heimildum um hana og þá hvernig fólk gerir sér glaðan dag í tilefni af Eurovision.“ Er heimildasöfnunin því skrásetn- ing um nýja alþjóðlega hefð, að sögn Ágústs. „Um sjálfa keppnina er auð- vitað til mikið af heimildum, bæði í blöðum og sjónvarpi, en það er eig- inlega ekkert til um hvernig fólk heldur upp á þetta sjálft og þar ligg- ur fókusinn okkar,“ segir hann. Könnunin fer vel af stað Áhugasamir geta nálgast könn- unina á heimasíðu Þjóðminjasafns- ins, en opnað var fyrir hana í fyrra- dag. Þegar Morgunblaðið náði tali af Ágústi snemma í gærmorgun höfðu þegar um 120 manns tekið þátt í könnuninni og segir Ágúst það lofa góðu um framhaldið, en áfram verð- ur hægt að taka þátt næstu vikur. Meðal þess sem þátttakendur eru spurðir út í er hvort þeir líti á Euro- vision sem hátíð, hvort farið sé í ein- hverja leiki í Eurovision-partíum, hvort fólk skreyti híbýli sín sér- staklega í tengslum við keppnina og hvaða mat boðið er upp á í partíum. Þá er einnig meðal annars spurt hvort viðkomandi hafi sótt einhverja Eurovision-keppni heim í útlöndum og hvað hafi þá verið minnisstætt. Könnun þessi er ekki sú fyrsta sem Þjóðminjasafnið stendur fyrir um samtímann. Hafa fyrri kannanir meðal annars tekið fyrir búsáhalda- byltinguna svonefndu, loftslags- breytingar, gæludýraeign, aðstæður kynjanna og sundlaugamenningu. „Við erum jú safn og söfn safna og þess vegna erum við að þessu ásamt því að gera þessar upplýsingar að- gengilegar fyrir almenning. Þessi gögn eru mikið notuð, t.d. af há- skólastúdentum,“ segir Ágúst. Morgunblaðið/Eggert Hatari Framlag Íslands í Eurovision 2019 hefur vakið talsverða athygli erlendis og spá margir því góðu gengi. Þjóðminjasafnið vill vita um Eurovision-hefðir fólks  Við erum ekki bara á kúskinnsskóm, segir sérfræðingur Gengið verður að tilboði lægstbjóð- anda, Ístaks, í byggingu Húss ís- lenskunnar sem rísa mun við Arn- grímsgötu í Reykjavík, að því er mennta- og menningarmálaráðu- neytið tilkynnti í gær. Gert er ráð fyrir að verklegar framkvæmdir taki um þrjú ár. Húsið verður á þremur hæðum auk kjallara undir hluta þess. Heildarflatarmál er tæpir 6.500 m2. Kostnaðaráætlun hljóðar upp á 6,2 milljarða. Ríkis- sjóður mun fjármagna um 70% af heildarkostnaði og Háskóli Íslands um 30%. Tryggt verður að fjármagn til verkefnisins rúmist innan fjár- málaáætlunar. „Það er fagnaðarefni að fram- kvæmdir við Hús íslenskunnar séu að hefjast. Þetta er löngu tímabært að verðugt hús sé reist til að varð- veita handritin okkar. Þau eru einar merkustu gersemar þjóðarinnar og geyma sagnaarf sem ekki aðeins er dýrmætur fyrir okkur heldur hluti af bókmenntasögu heimsins. Nú er heppilegur tími fyrir opinberar framkvæmdir í ljósi þess að hagkerf- ið er að kólna,“ segir Lilja Alfreðs- dóttir mennta- og menningarmála- ráðherra í tilkynningunni. Í bygg- ingunni verða sérhönnuð rými fyrir varðveislu, rannsóknir og sýningu á skinnhandritum auk vinnustofa fyrir kennara og fræðimenn, lesrými, fyrirlestra- og kennslusalir, bóka- safn og kaffihús. gudni@mbl.is Tilboði í Hús ís- lenskunnar tekið  Framkvæmdir taka um þrjú ár Tölvuteikning/Mennta- og menningarmálaráðuneytið Hús íslenskunnar Ístak mun reisa húsið sem verður tæpir 6.500 m2. Hjörtur J. Guðmundsson hjortur@mbl.is Tilurð evrusvæðisins var algerlega ótímabær. Þetta kom meðal annars fram í máli Mervyns Kings, fyrrver- andi bankastjóra Englandsbanka, á fundi á vegum viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands og Samtaka spari- fjáreigenda sem fram fór í hátíðarsal skólans í gær. King brást þar við fyrirspurn frá Benedikt Jóhannessyni, fyrrverandi fjármálaráðherra, sem innti banka- stjórann fyrrverandi eftir sýn hans á stöðu mála á evrusvæðinu. Sagðist King ekki þekkja nein dæmi í sög- unni um myntbandalag sem hefði lif- að af án þess að hafa orðið að einu ríki (e. full political union). Ef ekki væri vilji til þess að taka það skref væri betur heima setið. King sagði áhrifafólk innan Evr- ópusambandsins hafa gert sér fulla grein fyrir því að evrusvæðið væri ávísun á vandamál eins og staðið hefði verið að því. Það fyrirkomulag gæti ekki gengið. Það kæmi til efna- hagskreppu á endanum en hún myndi hins vegar neyða ráðamenn innan sambandsins til þess að fara alla leið og breyta því í eitt ríki. „Þeir trúa þessu ennþá, þeir trúa því enn að Þýskaland verði aldrei reiðubúið til að láta myntbandalagið hrynja og að lokum muni þýskir kjósendur neyðast til þess að niður- greiða skuldir [evru-]ríkja í suðr- inu,“ sagði King. Leiðtogar Evrópu- sambandsins hefðu engan veginn staðið sig í þessum efnum. Án sam- eiginlegra ríkisfjármála væri ábyrgðarlaust að setja myntbanda- lag á laggirnar. Evruríki föst þar sem þau eru Þetta hefði meðal annars leitt til þeirra efnahaglegu erfiðleika sem Grikkir hefðu þurft að takast á við, sem hefðu verið jafnvel verri en efnahagskreppan á fjórða áratug síðustu aldar. Það væri hneyksli að hans áliti. Ríki evrusvæðisins væru á milli steins og sleggju. Þau legðu ekki í að yfirgefa evrusvæðið, þótt það væri misheppnað, og ekki væri heldur nægur vilji til þess að taka skrefið í átt að sameiginlegum fjár- málum. „Þau eru algerlega föst þar sem þau eru.“ King sagði ekki hægt að fara út í „ævintýri“ eins og evrusvæðið án þess að vera heiðarlegur við kjós- endur og tjá þeim hvað því myndi fylgja. Ekki hefði verið heiðarlegt að segja kjósendum að ekkert neikvætt fylgdi evrusvæðinu og ekki þyrfti að hafa neinar áhyggjur. Vissu að evrusvæðið myndi leiða til efnahagserfiðleika  Fyrrverandi bankastjóri Englandsbanka segir evrusvæðið hafa verið ótímabært Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Ótímabært myntbandalag Mervyn King, fyrrverandi bankastjóri Englands- banka, ræddi m.a. um evrusvæðið á fundi í hátíðarsal Háskóla Íslands. Mjaldrarnir Litla-Grá og Litla-Hvít eru væntanlegir til landsins 19. júní næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá góðgerðarsamtök- unum Sea Life Trust. Verða dýrin flutt til landsins með sérútbúinni flutningavél lúxemborgíska flug- félagsins Cargolux frá Changfeng Ocean World-sædýragarðinum í Sjanghæ í Kína. Upprunalega stóð til að flytja mjaldrana til landsins 16. apríl en komu þeirra var þá frestað vegna veðurs og lokunar Landeyjahafnar. Eftir flugið stendur til að flytja mjaldrana til Vestmannaeyja þar sem svæði í Klettsvík hefur verið útbúið og girt af fyrir þá. Dýrin eru talin ófær um að bjarga sér í náttúrunni, en þau hafa varið meirihluta ævi sinnar í steypukeri í sædýragarðinum. Svæðið í Klettsvík á að vera líkara náttúrulegum heim- kynnum þessarar hvalategundar, en þar munu þær Litla-Hvít og Litla- Grá hafa 32.000 ferkílómetra svæði til umráða. Mjaldrarnir væntan- legir til Eyja í júní Mjaldrar Litla-Grá og Litla-Hvít eru vænt- anlegar til Vestmannaeyja hinn 19. júní. Ljósmynd/Sea Life Trust

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.