Morgunblaðið - 08.05.2019, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2019
IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is
Nánari upplýsingar ib.is
Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB
Bílar á lager
Sími 4 80 80 80
2018 Nissan Titan XD PRO4X
Breyttur/upphækkaður
Nissan Titan XD PRO 4X. Litur: Dökkgrár, svartur að
innan. Stórglæsilegur bíll! Með nýrri 5,0L V8 Cummins
Diesel og Aisin sjálfskipting. ATH! Kominn á 33,2” dekk
og 18” felgur og upphækkaður. 375 HÖ, ný loftsía frá
AFE og tölvu-tune!
VERÐ
12.840.000 m.vsk
2019 GMC 3500 Sierra SLT,
35” breyttur
Litur: Summit white, svartur að innan. 6.6L Duramax
Diesel, 445 HÖ, 2019 Módel, 35” breyttur. Vel útbúinn
bíll t.d. upphitað stýri, sóllúga, BOSE hátalarakerfi,
dual alternators, upphituð og loftkæld sæti, Z71-pakki
heithúðaður pallur og kúla í palli (5th wheel pakki) o.fl.
VERÐ
11.640.000 m.vsk
2019 Chrysler Pacifica Hybrid
Limited
Glæsilegur 7 manna bíll. Einn með öllu, td hita/kæling
í sætum, glerþak, leðursæti, bakkmyndavél, Dvd
spilari, Harman Kardon hljómflutningskerfi o.fl o.fl.
3,6 L Hybrid.
VERÐ
8.490.000 m.vsk
2018 Ford F-150 Platinum
Ekinn 10.000 km. Litur: Platinum white / svartur að
innan. Upphækkaður, tölvubreyting 431 hö, lok á
palli, Ceramic húðaður. Quad-beam LED hedlights,
bakkmyndavél, heithúðaður pallur, sóllúga, fjarstart,
20” felgur. 3,5 L Ecoboost (V6), 10-gíra, 431 hestöfl
470 lb-ft of torque
VERÐ
11.790.000 m.vsk
aij@mbl.is
Kraftur er að komast í strandveið-
ar, en veiðar mátti hefja á fimmtu-
dag. Magnús Jónsson, trillukarl á
Sauðárkróki, aðstoðarsáttasemjari
og fyrrverandi veðurstofustjóri, lét
vel af upphafi vertíðar þegar rætt
var við hann í gær.
„Við fórum út klukkan þrjú í
nótt og komum til hafnar klukkan
rúmlega sjö með dagskammtinn,“
segir Magnús. „Það er að ganga
mjög góður þorskur inn í botn
Skagafjarðar og við vorum ekki
nema fimm mínútur að sigla á mið-
in. Þarna er fiskurinn aðallega í
rauðátu og smásíld, en líka í ung-
loðnu.
Það er sérstakt að strandveið-
arnar byrji svona vel á þessu
svæði, því okkar upphaldstími er í
júlí og ágúst. Það verður hins veg-
ar tæpast róið á miðvikudag og
fimmtudag vegna veðurs. Það
stjórnar sókninni og við liggur að
það þurfi ekki sérstaka veiðistjórn-
un.“ segir Magnús sem er formað-
ur Drangeyjar, Smábátafélags
Skagafjarðar.
Í aflanum í gærmorgun voru yfir
60% af fiskinum meira en fimm
kíló. Á mánudag var hlutfall stór-
fisks heldur lægra, en þá var farið
út klukkan fjögur um nóttina og
komið inn rétt fyrir hádegi.
Skemmtilegt og gefandi
Magnús er fæddur og uppalinn á
Sauðárkróki og segist vera „Lýt-
ingur í báðar ættir“. Hann reri
fyrst frá Króknum með föður sín-
um fyrir réttum 60 árum. Magnús
er rúmlega sjötugur að aldri og
segir strandveiðarnar skemmti-
legar og gefandi meðan menn hafi
getu til.
Hann lét af störfum sem veður-
stofustjóri 2008 og byrjaði á
strandveiðum 2012. Hann var í
hlutastarfi sem aðstoðarrík-
issáttasemjari árin 2010-2016. Í
vetur var hann síðan tilnefndur í
tólf manna hóp aðstoðarsáttasemj-
ara. Hann segir að komi símtal frá
ríkissáttasemjara muni hann
örugglega bregðast jákvætt við.
Magnús rær á Maró SK 33, ým-
ist einn eða við annan mann. „Við
eigum bátinn ég og gamall og góð-
ur vinur minn sem ég kynntist í
menntaskóla, Róbert Magnússon,
prófessor í rafmagnsverkfræði í
Bandaríkjunum, sem rær með mér
í einn mánuð á ári. Nafnið á bátn-
um er sótt í nöfn okkar félaganna,
tveir stafir úr hvoru nafni, og svo
er hægt að leika sér talsvert með
þetta orð, en margir hvá þegar þeir
heyra það fyrst,“ segir Magnús.
Fimm mínútna sigling á
miðin í botni Skagafjarðar
Kraftur að komast í strandveiðar Í mörgum hlutverkum
Vertíð Magnús Jónsson undir stýri á Maró SK 33 í Skagafirði í fyrrasumar.
Búið var að gefa út 379 leyfi til strandveiða í fyrrakvöld, en 219 bátar
höfðu landað afla. Á sama tíma í fyrra höfðu 323 leyfi verið gefin út. Eins
og áður róa flestir á A-svæði sem nær frá Arnarstapa í Súðavík. Í síðustu
viku var aðeins heimilt að róa á fimmtudeginum, 2. maí, og var mestur
meðalafli á D-svæði, frá Höfn í Hornafirði til Borgarness. Þann dag setti
veður víða strik í reikninginn og því biðu margir fram yfir helgi.
Þetta er 11. ár strandveiða og á tímabilinu maí, júní, júlí og ágúst er
heimilt að veiða á handfæri allt að 11.100 lestir af óslægðum botnfiski.
Ekki er tiltekinn heilarafli fyrir veiðisvæði eða mánuði og er hverjum
strandveiðibát heimilt að stunda veiðar í 12 veiðidaga innan hvers mán-
aðar frá mánudegi til fimmtudags, en þó ekki á rauðum dögum. Nú er
heimilt að skila inn strandveiðileyfi innan strandveiðitímabilsins og fá al-
mennt veiðileyfi sem nýtist það sem eftir stendur af fiskveiðiárinu.
Ellefta ár strandveiða
12 VEIÐIDAGAR Í MÁNUÐI – ALLS 11.100 TONN
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Íbúum landsins heldur áfram að
fjölga vegna aðflutnings erlendra
ríkisborgara. Á fyrsta fjórðungi
fluttu um 1.400 fleiri erlendir ríkis-
borgarar til landsins en frá því. Að-
fluttir í þeim hópi voru þá 2.330 en
brottfluttir voru
940. Slíkur fjöldi
aðfluttra á einum
ársfjórðungi telst
mikill í sögulegu
samhengi.
Samtímis fluttu
um 130 fleiri ís-
lenskir ríkisborg-
arar frá landinu
en fluttu þá til
landsins.
Hinn 1. apríl sl.
bjuggu 358.780 manns á Íslandi og
er það metfjöldi. Til samanburðar
voru landsmenn 317.630 talsins í
byrjun kreppuársins 2010. Það er
fjölgun um 40 þúsund manns.
Karl Sigurðsson, sérfræðingur hjá
Vinnumálastofnun, hefur spáð því að
fjölskyldur erlendra ríkisborgara
sem hafa komið hingað vegna vinnu
myndu síðar flytja til landsins og
sameinast.
Sú spá er mögulega að rætast.
Viðmælendur Morgunblaðsins
hafa á síðustu misserum tengt að-
flutning erlends vinnuafls við aukin
umsvif í ferðaþjónustu og bygging-
ariðnaði. Án útlendinga yrði skortur
á fólki í þessum greinum.
Aðflutningur erlendra ríkisborg-
ara á fjórðungnum vekur því athygli
í ljósi samdráttar í ferðaþjónustu.
Flugfélagið WOW air dró mikið úr
starfsemi sinni í desember, fækkaði
þotum úr 20 í 11 og sagði upp á fjórða
hundrað manns. Jafnframt fækkuðu
fyrirtæki sem þjónustuðu WOW air
starfsfólki, ekki síst á Keflavíkur-
flugvelli. WOW air hætti svo starf-
semi í lok mars og voru áhrifin af því
ekki komin fram á fyrsta fjórðungi.
Störfum mun fækka
Fram kemur í nýrri skýrslu
Greiningar Íslandsbanka að störfum
á Íslandi fjölgaði um 46 þúsund árin
2011-2018, og var þriðjungur þeirra,
eða um 17 þús. störf, í ferðaþjónustu.
„Í kjölfar gjaldþrots WOW Air
bárust Vinnumálastofnun 1.450 um-
sóknir um atvinnuleysisbætur. Af
[þeim] voru 740 umsóknir frá starfs-
mönnum flugfélagsins og má ætla að
meginþorri annarra sé vegna starfa
innan ferðaþjónustunnar sem megi
rekja óbeint til gjaldþrots WOW Air.
Frá gjaldþroti flugfélagsins hefur
störfum innan ferðaþjónustunnar
því væntanlega þegar fækkað um
5%,“ sagði þar m.a.
Útlit sé fyrir frekari uppsagnir.
Elvar Orri Hreinsson, sérfræðing-
ur hjá Greiningu Íslandsbanka, segir
samdrátt í ferðaþjónustu munu leiða
til fækkunar starfa.
Hjöðnun á vinnumarkaði
„Þessi hjöðnun sem nú er að eiga
sér stað á vinnumarkaði er líkleg til
þess að draga úr innflæði á erlendu
vinnuafli og gæti stuðlað að auknum
brottflutningi íslenskra ríkisborgara
út fyrir landsteinana.
Samkvæmt könnun Gallup um við-
horf 400 stærstu fyrirtækja landsins
eru hlutfallslega fleiri fyrirtæki sem
vilja fækka starfsfólki en fjölga og
það gefur vísbendingu um að vænta
megi frekari hjöðnunar á vinnu-
markaði. Um fjórðungur fyrirtækja
vill fækka starfsfólki á næstu sex
mánuðum en aðeins 14% fyrirtækja
vilja fjölga starfsfólki,“ segir Elvar
Orri um horfurnar í atvinnulífinu.
Áfram er straumur til landsins
Búferlafl utningar frá Íslandi 2000 til 2019*
Aðfl uttir umfram brottfl utta
Íslenskir Erlendir
2000 62 1.652
2001 -472 1.440
2002 -1.020 745
2003 -613 480
2004 -438 968
2005 118 3.742
2006 -280 5.535
2007 -167 5.299
2008 -477 1.621
2009 -2.466 -2.369
2010 -1.703 -431
2011 -1.311 -93
2012 -936 617
2013 -36 1.634
2014 -760 1.873
2015 -1.265 2.716
2016 -146 4.215
2017 352 7.888
2018 -65 6.621
2019* -130 1.390
+6
+5
+4
+3
+2
+1
0
-1
-2
-3
-4
.000
’00 ’01 ’02 ’03 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18 ’19*
Samtals Íslenskir Erlendir
2000-2019* -11.753 45.543
2005-2008 -806 16.197
2009-2011 -5.480 -2.893
2012-2019* -2.986 26.954
2015-2019* -1.254 22.830
Íslenskir ríkisborgarar
Erlendir ríkisborgarar
8.240
*Til og með 31. mars 2019 (fyrstu 3 mánuðir ársins)
Fyrstu 3 mán.
2019
Heimild: Hagstofa Íslands
Tæplega 1.400 fleiri erlendir ríkisborgarar fluttu til landsins en frá því á fyrsta fjórðungi ársins
Með því hafa nærri 23 þúsundum fleiri erlendir ríkisborgarar flutt til landsins en frá því síðan 2015
Elvar Orri
Hreinsson