Morgunblaðið - 08.05.2019, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2019
HRINGDU Í BÓTARÉTT Í SÍMA 520 5100 OG ÞÚ FÆRÐ ÞITT.
Slys valda heilsutjóni og þjáningum. En það er ekki síður sárt þegar starfsorkan
skerðist og áætlanir um framtíðina bregðast. Því fylgir óvissa og áhyggjur.
Ef þú hefur orðið fyrir slysi þá skaltu hafa samband við Bótarétt sem fyrst.
Það kostar ekkert að kanna málið. Við metum stöðu þína og skoðum síðan málin
ofan í kjölinn. Þú getur látið þér batna á meðan við sækjum rétt þinn.
ER BROTIÐ Á ÞÉR?
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
B
O
T
70
22
7
08
/1
4
botarettur.is
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Akraneskaupstað hefur borist já-
kvætt svarbréf frá Minjastofnun Ís-
lands og Þjóðminjasafninu við ósk um
leyfi til þess að ráðast í förgun Kútt-
ers Sigurfara, sem er orðinn mjög illa
farinn.
Sævar Freyr Þráinsson, bæjar-
stjóri Akraness, sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær, að í svarbréfinu
kæmi fram að fyrir tilstuðlan Minja-
stofnunar Íslands og Þjóðminjasafns-
ins hefði á undanförnum árum verið
unnið að nákvæmri skráningu skips-
ins. Skipið sé í afar slæmu ástandi og
ekki verði við það gert, nema með
miklum tilkostnaði. Í bréfinu segir
orðrétt: „Um yrði að ræða nýsmíði en
ekki varðveisluverkefni. Að höfðu
samráði við Þjóðminjasafn Íslands er
með bréfi þessu friðun skipsins af-
létt.“
Kútter Sigurfari er 85 smálesta tví-
mastra kútter, var smíðaður árið 1885
á Englandi, gerður út frá Hull og
keyptur til Íslands 1897. Skipið hefur
þótt eitt helsta kennileiti Akraness
undanfarna áratugi þar sem það hef-
ur staðið við Byggðasafnið í Görðum
á Akranesi.
Sævar Freyr segir að áður en til
förgunar komi, verði áhugasömum
gefinn kostur á að eignast skipið. „Við
höfum verið að bíða eftir þessu bréfi
frá Minjastofnun Íslands og vænt-
anlega munum við eftir umfjöllun um
málið í ráðum bæjarins ræða við þá
sem sýnt hafa því áhuga að eignast
kútterinn,“ sagði Sævar Freyr.
Aðspurður hvort hann sem bæjar-
stjóri væri ánægður með þessa niður-
stöðu Minjastofnunar og Þjóðminja-
safns sagði Sævar Freyr: „Þetta er
súrsæt niðurstaða. Auðvitað hefði
maður kosið að fjárveiting hefði feng-
ist frá ríkinu til þess að gera við
Sigurfara, en við vitum jafnframt að
slík viðgerð yrði mjög kostnaðar-
söm.“
Heimilt að farga kútternum
Morgunblaðið/Ásdís Haraldsdóttir
Kútter Sigurfari Brátt hverfur Kútter Sigurfari frá Akranesi.
Súrsæt niðurstaða
segir bæjarstjóri
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Áfengisneysla jókst á milli áranna
2017 og 2018 samkvæmt nýbirtum
tölum Hagstofu Íslands um sölu
áfengis hér á landi. Alls nam áfeng-
isneysla 2.202 þúsund alkóhóllítrum
eða um 7,72 lítra á hvern íbúa lands-
ins, 15 ára og eldri. Neysla á hvern
íbúa 15 ára og eldri minnkar lítillega
milli ára svo ætla má að aukna sölu
megi að stærstum hluta rekja til er-
lendra ferðamanna.
Þessar tölur Hagstofunnar byggj-
ast á álagningu áfengisgjalds á inn-
flutning og framleiðslu áfengis hér á
landi og sölutölum ÁTVR. Tölurnar
ná ekki til sölu í fríhöfnum.
Árið 1980 nam áfengisneysla hér á
landi 716 þúsund alkóhóllítrum, eða
4,33 lítrum á hvern Íslending eldri
en 15 ára. Árið 2000 var áfengis-
neysla komin upp í 6,14 lítra á hvern
íbúa eldri en 15 ára. Nýjustu tölur,
2.202 þúsund lítrar árið 2018, sýna
að áfengissala hefur ríflega þrefald-
ast frá 1980.
Ef rýnt er í sölutölur má sjá að
talsverður kippur kemur í söluna ár-
ið 2015. Árið 2014 seldust 1.826 þús-
und alkóhóllítrar en árið 2015 var sú
tala komin í 2.023 þúsund lítra. Þetta
gerist samfara stórauknum straumi
ferðamanna hingað til lands. Þessi
þróun hefur haldið áfram og hefur
áfengissala aukist síðustu tvö ár.
Forvitnilegt verður að sjá hvort
samdráttur verður í ár, ef ferða-
mönnum fækkar eins og spár gera
ráð fyrir.
Mest selt af bjór
Mynstur áfengisneyslu hefur
breyst mikið í áranna rás. Eftir að
bjórinn var leyfður á ný árið 1989
hefur neysla á sterkum vínum
minnkað mikið og nú er bjórneysla
stærstur hluti áfengisneyslu hér á
landi. Árið 1988 var hlutur sterkra
drykkja 77% á móti 23% léttra vína.
Um aldamótin var bjór 49% seldra
alkóhóllítra, létt vín 22% og sterk vín
29%. Hrunárið 2008 nam bjórsala
49% allra seldra alkóhóllítra en létt-
vín námu þá 30% sölunnar og sterk
vín 21%. Í fyrra hafði bjórinn gefið
enn frekar í með 57% allrar sölu,
léttvín með 27% og sterk vín með
16%.
Sala áfengis
jókst milli ára
Neysla á hvern íbúa er þó á niðurleið
Áfengisneysla 1980-2018
2.000
1.800
1.600
1.400
1.200
1.000
800
600
400
200
0
Þúsundir alkóhóllítra
8
7
6
5
4
3
2
1
0
Sterk vín Létt vín bjór
Alkóhóllítrar á íbúa 15 ára og eldri
Heimild: Hagstofa Íslands
’80 ’81 ’82 ’83 ’84 ’85 ’86 ’87 ’88 ’89 ’90 ’91 ’92 ’93 ’94 ’95 ’96 ’97 ’98 ’99 ’00 ’01 ’02 ’03 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18
Bjórneysla hefur
aukist mikið hér á
landi síðan hrunárið
2008. Það ár neyttu
Íslendingar
899 þúsund alkóhól-
lítra en var neyslan
komin upp í
1.252 þús. alkó-
hóllítra árið 2018
Ef horft er lengra aftur
má sjá að áfengisneysla
hefur aukist talsvert hér
á landi. Árið 1980 nam
áfengisneysla hér
716 þús. alkó-hóllítrum og
hefur því rífl ega þrefald-
ast fram til 2018, í
2.202 alkóhól-lítra
Sterk vín 71%
Léttvín 29%
Sterk vín 21%
Léttvín 30%
Bjór 49%
Sterk vín 16%
Léttvín 27%
Bjór 57%
Léttvínsneysla hefur aukist
mun minna. Hún var
536 þús. alkóhóllítr-ar árið 2008 en
602 þús. alkóhóllítr-ar í fyrra
Neysla á sterkum vínum hef-
ur sveifl ast á sama tímabili.
Hún var 348 þús. alkóhóllítr-
ar árið 2018 sem er talsvert
minna en árið 2008
Al
kó
hó
llít
ra
r á
íb
úa
1980 2008 2018
Árið 1980 nam áfengisneysla
4,33 lítrum á hvern landsmann
15 ára og eldri. Árið 2008 var
þessi tala komin upp í 7,19 lítra
og í fyrra nam hún 7,72 lítrum
1980 2018
4,33
7,72
2.202 alkóhól lítrar
(6,2 á íbúa)
Bílafloti landsins hefur yngst undan-
farin ár, eða allt þar til á síðasta ári en
þá hækkaði meðalaldur flotans lítil-
lega á milli ára. Þetta kemur fram í
nýrri frétt á vefsíðu FÍB.
Í samantekt FÍB segir að undir lok
seinasta árs hafi meðalaldur fólks-
bílaflotans verið 12,4 ár og er þá mið-
að við alla skráða fólksbíla, hvort sem
þeir eru í notkun eða ekki.
„Árið 2017 var meðalaldur allra
skráðra fólksbifreiða 12,03 ár. Meðal
bíla í hópi hóp-, sendi- og vörubifreiða
jókst meðaldurinn einnig, fór úr 13,27
árum í 14,43 ár. Af þeim bifreiðum
sem í notkun eru var meðalaldurinn
10,6 ár við lok árs 2018,“ segir í frétt-
inni.
Komið hefur fram í fréttum Morg-
unblaðsins að lægst fór meðalaldur
bílaflotans hér á landi á árinu 2007
þegar hann var 9,1 ár en frá þeim
tíma þokaðist hann jafnt og þétt upp á
við allt til ársins 2016.
Í samantekt FÍB um bílaflotann í
fyrra kemur fram að mesta fjölgunin
var í flokki bifreiða yfir 20 ára. Voru
bílar í þeim aldurshópi alls 40.594 og
hafði fjölgað frá fyrra ári um 24%.
„Í yngsta aldursflokknum, bílum á
bilinu 0-5 ára, nam aukningin 12,5% á
milli ára og voru 89.900 bílar í þeim
aldurshópi. Engin tölfræði er til um
stöðuna í Evrópu fyrir árið 2018, en
nýjustu upplýsingar ná til ársins
2016. Það ár var meðalaldur fólksbíla
um 11 ár á meðan meðalaldur at-
vinnubifreiða var 12 ár,“ segir á vef-
síðu FÍB. Meðalaldur íslenskra fólks-
bíla í notkun var 9,91 ár í árslok 2018.
Meðalaldur bíla-
flotans hækkaði
Yfir 40 þúsund bílar eldri en 20 ára
Morgunblaðið/Hari
Bílar Meðalaldur fólksbíla er 12,4 ár.