Morgunblaðið - 08.05.2019, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2019
Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is
Apótekið þitt
í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2
Afgreiðslutími:
9-18:30 virka daga
10-16:00 laugardaga
Reykjavíkur Apótek býður upp á allar tegundir lyfja. Mikið og fjölbreytt úrval af
heilsuvörum, bað- og ilmvörum, gjafavörum auk ýmissa annarra góðra kosta.
Reykjavíkur Apótek er sjálfstætt starfandi apótek sem leggur áherslu á
persónulega þjónustu og hagstætt verð.
• Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur
• Frí heimsendingarþjónusta
Sagt vera „árás á lýðræðið“
Erdogan ver ákvörðun kjörstjórnar um að láta kjósa upp á nýtt í Istanbúl
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Fulltrúar stjórnarandstöðunnar í Tyrklandi gagn-
rýndu ákvörðun kjörstjórnar landsins frá í fyrra-
dag um að láta kjósa upp á nýtt í borgarstjóra-
kosningum í borginni Istanbúl, og sögðu hana
vera tilraun til þess að breyta niðurstöðunni í
trássi við vilja kjósenda og „árás á lýðræðið“. Re-
cep Tayyip Erdogan Tyrklandsforseti varði hins
vegar ákvörðunina, þrátt fyrir að hún væri gagn-
rýnd af ýmsum erlendum ríkjum.
Landskjörstjórn Tyrklands ákvað á mánudag-
inn að láta endurtaka kosningar til borgarstjóra-
embættisins, sem fram fóru 31. mars síðastliðinn,
en þar bar Ekrem Imamoglu, frambjóðandi
stjórnarandstöðuflokksins CHP sigurorð af Binali
Yildirim, frambjóðanda Réttlætis- og þróunar-
flokksins (AKP), flokks Erdogans. Kjörstjórn
hafnaði hins vegar að láta endurtaka kosningar til
borgarstjórnarinnar í heild, en þar hlaut AKP
meirihluta borgarfulltrúa, þó hann tapaði borg-
arstjóraembættinu.
Kemal Kilicdaroglu, formaður CHP, gagnrýndi
ákvörðun kjörstjórnarinnar harkalega, og sagði
þá sem þægju vald sitt frá „höllinni“ þurfa að
standa skil á gjörðum sínum einn góðan veðurdag.
„Við þiggjum vald okkar frá þjóðinni,“ sagði Ki-
licdaroglu.
Erdogan sagði hins vegar að kosningin 31. mars
hefði verið mörkuð af spillingu og annmörkum, og
því væri það „besta skrefið“ fyrir þjóðina að láta
endurtaka kosningarnar, en meðal þess sem Er-
dogan hefur gagnrýnt er að einungis 13.000 at-
kvæði skildu á milli Imamoglu og Yildirim þegar
búið var að telja aftur.
Imamoglu hét stuðningsmönnum sínum aftur á
móti að hann myndi aldrei leggja árar í bát. Þá
hefur Necdet Gokcınar, frambjóðandi flokks ísl-
amista, sem lenti í þriðja sæti, lýst því yfir að hann
íhugi að draga framboð sitt til baka og lýsa yfir
stuðningi við Imamoglu, en Gokcinar hlaut rúm-
lega 100.000 atkvæði í kosningnunum.
„Ógagnsæ og okkur óskiljanleg“
Heiko Maas, utanríkisráðherra Þýskalands,
gagnrýndi ákvörðunina í gær og sagði hana bæði
ógagnsæja og óskiljanlega frá sjónarhóli Þjóð-
verja. Þá skoraði Evrópusambandið á kjörstjórn-
ina að birta rökstuðning sinn fyrir ákvörðuninni
án tafar. Tóku Frakkar undir þá áskorun og sögðu
brýnt að virða grundvallarreglur lýðræðisins.
AFP
Mótmæli Stuðningsmenn Imamoglu þyrptust út
á götur Istanbúl til að mótmæla ákvörðuninni.
Lars Løkke
Rasmussen, for-
sætisráðherra
Danmerkur, boð-
aði í gær til þing-
kosninga sem
haldnar verða 5.
júní næstkom-
andi. Sósíal-
demókratar, sem
nú leiða stjórnar-
andstöðublokk-
ina, þykja sigurstranglegastir sam-
kvæmt skoðanakönnunum. „Ég vil
nota allan minn styrk, getu og
reynslu til að leiða Danmörku
áfram,“ sagði Rasmussen í þing-
ræðu sinni þegar hann tilkynnti
kosningadaginn, sem jafnframt er
stjórnarskrárdagur Danmerkur.
Vinstriflokkarnir njóta samtals
um 54% fylgis samkvæmt könn-
unum, og er Sósíaldemókrataflokk-
urinn með um helming þess fylgis.
Hægriflokkarnir, sem nú fara með
völdin, eru samtals með um 46%
fylgi í könnunum og þar af er
Venstre, flokkur Rasmussens, með
um 19%.
Munar þar einna mest um Danska
þjóðarflokkinn, sem hefur misst
nokkurt fylgi á undanförnum miss-
erum. Er það meðal annars rakið til
breyttrar stefnu annarra flokka í
innflytjendamálum, þar sem meðal
annars sósíaldemókratar undir for-
ystu Mette Fredriksen hafa tekið
upp aðra og harðari stefnu en áður.
Boðar til
kosninga
5. júní nk.
Lars Løkke
Rasmussen
Vinstriflokkar
með 54% fylgi
Hinn fimm ára gamli Ahmad Sayed Rahman frá
Afganistan dansar hér á nýjum gervifæti sínum,
sem hann fékk á sjúkrahúsi Rauða krossins í höf-
uðborginni Kabúl. Rahman missti hægri fót sinn
þegar hann lenti í miðri skothríð og fékk byssu-
kúlu í lærið. Hann er nú orðinn að stjörnu á sam-
félagsmiðlum í Afganistan og víðar eftir að
myndband af honum að dansa á nýja fætinum
var sett á samfélagsmiðilinn Twitter.
Missti fótinn en dansar nú á nýjum gervifæti
AFP
Afganistan
Mike Pompeo,
utanríkis-
ráðherra Banda-
ríkjanna, hætti
við fyrirhugaða
heimsókn sína til
Þýskalands í gær
einungis nokkr-
um klukkutímum
áður en hún átti
að hefjast. Sagði talsmaður banda-
ríska utanríkisráðuneytisins að
„aðkallandi verkefni“ hefðu neytt
Pompeo til að breyta áætlunum sín-
um, og að hann hlakkaði til að
heimsækja Þýskaland við fyrsta
tækifæri.
Þýskir fjölmiðlar sögðu hins veg-
ar ákvörðun Pompeos vera móðgun
og tákn um að vinasamband Banda-
ríkjanna og Þýskalands stæði nú á
brauðfótum.
ÞÝSKALAND
Hætti við heimsókn
á síðustu stundu