Morgunblaðið - 08.05.2019, Page 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2019
Álið er hluti af lausninni
2019 | Ársfundur Samáls
Dagskrá:
Staða og horfur í áliðnaði
Magnús Þór Ásmundsson
stjórnarformaður Samáls
og forstjóri Alcoa Fjarðaáls
Ávarp
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
Verðmætasköpun í hálfa öld
Ingólfur Bender
aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins
Nýsköpun í öryggismálum
Kristín Sigurjónsdóttir
framkvæmdastjóri AMS
Fókusinn er á umhverfið
Steinunn Dögg Steinsen
framkvæmdastjóri öryggis-
og umhverfismála hjá Norðuráli
Stefnumótun út frá heimsmarkmiðum
Sameinuðu þjóðanna
Hrund Gunnsteinsdóttir
framkvæmdastjóri Festu
Hringrásarhagkerfið
Pétur Blöndal
framkvæmdastjóri Samáls
Ársfundur Samáls verður haldinn í Kaldalóni
í Hörpu 9.maí frá kl. 8:30 til 10:00.
Fjallað verður um stöðu og horfur í áliðnaði
á Íslandi og á heimsvísu og rætt um hlutverk
áls í að draga úr loftslagsvandanum. Statnett
sýnir þjálfunarbúnað í sýndarveruleika og
nýr rafbíll frá Jaguar, I-Pace, verður til sýnis,
sem er úr frumframleiddu og endurunnu áli.
Boðið verður upp á morgunverð kl. 8:00
og kaffi og veitingar að fundi loknum.
Fundarstjóri er Sólveig Kr. Bergmann.
Skráning fer fram á www.samal.is.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Alþjóðlegi hafréttardómurinn mun á
föstudaginn taka fyrir mál sem
stjórnvöld í Úkraínu höfðuðu á hend-
ur Rússum eftir að þeir hertóku þrjú
úkraínsk herskip með 24 sjóliðum á
Svartahafi hinn 25. nóvember síðast-
liðinn. Á málið að fara fyrir gerðar-
dóm, en þar sem óvíst er hvenær
hann tekur til starfa hefur Úkraína
óskað eftir því að hafréttardómurinn
skipi fyrir um bráðabirgðaráðstafan-
ir samkvæmt 5. málsgrein 290.
greinar hafréttarsáttmála Samein-
uðu þjóðanna.
Úkraínumenn krefjast þess að
Rússar afhendi þeim skipin þrjú
þegar í stað og að skipverjarnir 24
sem nú bíða réttarhalda í Rússlandi
verði leystir úr haldi og málaferlum
gegn þeim hætt. Segja Úkraínu-
menn að skipin þrjú hafi öll verið í
fullum rétti til að sigla þar sem þau
voru þegar Rússar tóku þau. Þannig
hafi tvö skipanna, Berdyansk og
Yani Kapu, verið minnst 12 sjómílur
frá ströndinni þegar þau voru tekin
og hið þriðja, Nikopol, um 20 sjómíl-
ur frá ströndinni. Segir jafnframt í
málaleitan Úkraínumanna að bæði
skipin og áhafnir þeirra eigi að njóta
friðhelgi, en meint brot skipverjanna
geta varðað allt að sex ára fangelsi í
Rússlandi.
Taka ekki þátt í ferlinu
Upphaflega ætlaði dómurinn sér
að fara yfir málið bæði 10. og 11. maí
næstkomandi, en rússnesk stjórn-
völd tilkynntu um síðustu mánaða-
mót að þau myndu ekki taka þátt í
störfum hafréttardómsins í þessu
máli. Telja Rússar að fyrirhugaður
gerðardómur muni ekki hafa lög-
sögu í málinu og þar af leiði að haf-
réttardómurinn megi ekki setja á
bráðabirgðaráðstafanir líkt og Úkra-
ínumenn fara fram á. Þá hafi Úkra-
ínustjórn neitað að hefja sáttavið-
ræður um lausn málsins áður en því
var vísað í dóm.
Kemur einnig fram að Rússar úti-
loki ekki að þeir taki þátt á seinni
stigum fari svo að málið verði rekið
áfram á vettvangi hafréttardómsins,
auk þess sem þeir ætla sér að skila
inn skriflegri greinargerð um af-
stöðu sína til dómsins.
Rússar viðurkenna
ekki lögsögu dómsins
Alþjóðlegi hafréttardómurinn fjallar um úkraínsku skipin
AFP
Úkraínudeilan Tvö af skipunum
þremur sjást hér í haldi Rússa.
Ráðherrafundi Norðurskautsráðsins
lauk í fyrsta sinn í gær án þess að
meðlimir ráðsins næðu saman um
orðalag sameiginlegrar yfirlýsingar
að fundi loknum. Vildu fulltrúar
Bandaríkjanna ekki að minnst yrði á
loftslagsmál í yfirlýsingunni. Timo
Soini, utanríkisráðherra Finnlands,
lýsti því yfir við upphaf fundarins að í
stað sameiginlegrar yfirlýsingar
myndu ráðherrarnir gefa út yfirlýs-
ingar hver í sínu lagi.
Kínverjar gagnrýndu í gær Mike
Pompeo, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, fyrir ræðu hans í fyrradag,
en þar hafði hann gefið til kynna að
Bandaríkin þyrftu að stíga upp til
þess að mæta ágengri hegðun Rússa
og Kínverja og ásælni þeirra í nátt-
úruauðlindir. Sagði Geng Shuang,
talsmaður kínverska utanríkisráðu-
neytisins, Pompeo fara rangt með
staðreyndir í ræðu sinni og að málefni
norðurskautsins vörðuðu allar þjóðir.
AFP
Formennska Guðlaugur Þór Þórðarson tók við formennsku í Norður-
skautsráðinu af Timo Soini, utanríkisráðherra Finnlands.
Loftslagsmál stóðu í vegi