Morgunblaðið - 08.05.2019, Blaðsíða 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2019
EES-samningurinn er eitt stærsta hags-
munamál íslensks atvinnulífs og hornsteinn
að bættum lífskjörum almennings. Efnahags-
legt sjálfstæði þjóðarinnar byggist á við-
skiptafrelsi sem er grundvallað á EES-
samningnum. EES-samstarfið hefur fært Ís-
lendingum mikinn ábata á liðnum
aldarfjórðungi, lífskjör hafa batnað og at-
vinnulífið eflst.
Farsælt EES samstarf, sem nú fagnar 25
ára afmæli, tryggir með fjórfrelsinu frjálsa
för fólks, vöru, þjónustu og fjármagns um alla
Evrópu. Þetta er afar mikilvægt og ekki síst
fámennum löndum eins og Ísland sannarlega
er.
EES-samstarfið nær ekki til nýtingar auð-
linda eins og sést af því að það eru Norð-
menn sjálfir sem ákveða hvernig nýta skuli
olíu- eða gaslindirnar þar. Það eru Finnar og
Svíar sem ákveða hvernig skuli höggva skóga
hjá sér. Og það eru Íslendingar sem ákveða
hvort eða hvernig nýta eigi jarðhitann, vatns-
aflið eða vindinn sem stöðugt blæs. Þessar
ákvarðanir eru ekki teknar af Evrópusam-
bandinu.
Samstarfið nær hins vegar til þess að vörur
sem eru á markaði þurfa að uppfylla
ákveðnar kröfur um orkunýtingu og tækni-
lega staðla á hverju sviði fyrir sig. Gert er
ráð fyrir að samkeppni ríki á sem flestum
sviðum þar á meðal um orkusölu enda sé það
fyrst og fremst til hagsbóta fyrir neytendur.
Smám saman hafa kröfur aukist um betri
nýtingu orku, aukna notkun endurnýjanlegra
orkulinda og um orkusparnað. Jafnt og þétt
verða loftslagsmál og orkumál samofnari
enda er notkun jarðefnaeldsneytis megin-
orsök þeirra loftslagsbreytinga sem við verð-
um að takast á við.
Íslendingar hafa sett sér markmið um að
draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og eru
í samstarfi við Evrópulöndin um sameig-
inlegar skuldbindingar gagnvart loftslags-
samningi Sameinuðu þjóðanna. Hagsmunir
Íslands af þessu samstarfi eru mjög miklir og
þátttaka í viðskiptakerfi Evrópu með los-
unarheimildir tryggir jafna samkeppnisstöðu
orkufreks iðnaðar og fleiri fyrirtækja hér á
landi og annars staðar á EES-svæðinu.
Löggjöf um orku- og loftslagsmál mun
halda áfram að þróast og auk löggjafar sem
nú er til meðhöndlunar á Alþingi (þriðji orku-
pakkinn) eru á döfinni enn frekari breytingar
á lögum og reglum sem þessu sviði tengjast.
Íslensk raforkulög taka þegar mið af því að
Íslendingar hafa innleitt fyrsta og annan
orkupakka ESB og hefur sú ákvörðun reynst
farsæl hingað til.
Það er mikilvægt fyrir hagsmuni Íslands,
atvinnulífsins og fólksins í landinu að halda
áfram samstarfinu við ESB um orku- og
loftslagsmál með innleiðingu 3. orkupakkans.
Alþjóðleg samvinna á þessu sviði mun auð-
velda viðureignina við loftslagsbreytingar og
gagnast ekki einungis okkar kynslóð heldur
börnum okkar og barnabörnum.
Eyjólfur Árni er formaður Samtaka atvinnulífs-
ins, Bjarnheiður er formaður Samtaka ferðaþjón-
ustunnar, Guðrún er formaður Samtaka iðnaðar-
ins, Helgi Bjarnason er varaformaður Samtaka
fjármálafyrirtækja, Helgi Jóhannesson er for-
maður Samtaka orku- og veitufyrirtækja, Jens
Garðar er formaður Samtaka fyrirtækja í sjávar-
útvegi, Jón Ólafur er formaður Samtaka versl-
unar og þjónustu og Magnús Þór er formaður
Samtaka álfyrirtækja.
Jens Garðar
Helgason
Eyjólfur
Árni Rafnsson
Bjarnheiður
Hallsdóttir
Jón Ólafur
Halldórsson
Magnús Þór
Ásmundsson
Helgi
Jóhannesson
Guðrún
Hafsteinsdóttir
Helgi
Bjarnason
Samstarf um orku- og loftslagsmál er nauðsyn
» Það er mikilvægt fyrir hags-
muni Íslands, atvinnulífsins
og fólksins í landinu að halda
áfram samstarfinu við ESB um
orku- og loftslagsmál með inn-
leiðingu 3. orkupakkans.
Eftir Eyjólf Árna Rafnsson, Bjarnheiði
Hallsdóttur, Guðrúnu Hafsteinsdóttur,
Helga Bjarnason, Helga Jóhannesson,
Jens Garðar Helgason, Jón Ólaf Hall-
dórsson og Magnús Þór Ásmundsson
Sé rétt á málum
haldið geta legið mikil
– jafnvel stórkostleg
tækifæri í fiskeldi fyrir
okkur Íslendinga. Við
höfum tækifæri til að
byggja upp öfluga at-
vinnugrein af skynsemi
og á grunni bestu vís-
indalegrar þekkingar.
Eða við getum unnið
óbætanleg spjöll á
náttúrunni með ófyrirsjáanlegum
efnahagslegum afleiðingum.
Stefnt er að því að Alþingi afgreiði
á vorþingi tvö frumvörp sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra um
fiskeldi. Annað frumvarpið felur í sér
umtalsverðar breytingar á gildandi
lögum um fiskeldi, þar sem markaður
er skýrari rammi um vaxandi at-
vinnugrein. Markmiðið er, eins og
segir í greinargerð, að „styrkja laga-
umgjörð og stjórnsýslu fiskeldis og
með því að ýta undir að fiskeldi verði
sterk og öflug atvinnugrein þar sem
sjálfbær þróun og vernd lífríkis er
höfð að leiðarljósi“. Það á að gæta
„ýtrustu varúðar við uppbyggingu
fiskeldis“ og byggja ákvarðanir á ráð-
gjöf vísindamanna. Með síðara frum-
varpinu verður tekin upp gjaldtaka af
fiskeldi í sjó sem „grundvallast á
þeirri aðstöðu að handhafar rekstr-
arleyfa til sjókvíaeldis njóta takmark-
aðra réttinda til hagnýtingar auð-
linda“. Gjaldið sem innheimt verður
tekur mið af alþjóðlegu markaðs-
verði. Til að ýta undir eldi á ófrjóum
laxi og eldi í lokuðum kvíum verður
gjaldið helmingi lægra.
Fjórföldun á tíu árum
Í tölum Hagstofunnar kemur fram
að á síðustu tíu árum hefur magn
slátraðs eldisfisks nær fjórfaldast en
rúmum 19 þúsund tonnum var slátr-
að á síðasta ári. Mest er aukningin í
laxeldi. Rétt tæpum 300 tonnum var
slátrað árið 2008 en 13.500 tonnum á
liðnu ári. Gríðarleg aukning í fram-
leiðslu endurspeglast í verulegri
fjölgun starfsmanna. Frá 2008 til
2017 nær 2,7-faldaðist fjöldi starfs-
manna fiskeldisfyrirtækja, fór úr 164
í 435 manns. Tekjur fyrirtækja í fisk-
eldi námu 19,3 milljörðum árið 2017 –
tvöfalt meiru en árið 2015 og meira en
sex-falt meiru en 2008.
Heildarútflutnings-
verðmæti hefur nær sjö-
faldast. Mest munar um
mikinn vöxt á útflutn-
ingi á eldislaxi. Árið
2008 var verðmæti út-
flutnings um 500 millj-
ónir króna en 8,8 millj-
arða á síðasta ári.
Öllum má því vera
ljóst að hagsmunirnir
sem eru í húfi við upp-
byggingu fiskeldis eru
miklir. Við sem viljum fara varlega og
leggjum áherslu á að byggt sé á vís-
indalegri þekkingu, verðum að við-
urkenna að möguleikarnir eru miklir,
hvort heldur er í landeldi eða sjókvía-
eldi. Takist vel til getur fiskeldi orðið
styrkasta stoð margra sveitarfélaga
til framtíðar. Okkur Íslendingum
hættir hins vegar oft til að pissa í skó-
inn okkar – það verður hlýtt stutta
stund en síðan sækir kuldinn aftur að
okkur og er hálfu verri en áður.
Í sátt við náttúruna
Það er mikilvægt að þegar stutt er
við uppbyggingu á fiskeldi í sjó og
nýjar leikreglur mótaðar sé það gert í
sátt. Að tekið sé tillit til allra hags-
muna, ekki síst náttúrunnar sjálfrar.
Fiskeldi og náttúruvernd geta farið
ágætlega saman en þá verða ákvarð-
anir um sjókvíaeldi að vera í sam-
ræmi við ráðgjöf vísindamanna og
bestu þekkingu á hverjum tíma. Með
fyrirhuguðum breytingum á lögum
um fiskeldi er hægt að leggja grunn
að því að nýta tækifærin sem vissu-
lega eru fyrir hendi án þess að fórna
öðrum hagsmunum. Komið er til
móts við ólík sjónarmið – annars veg-
ar þeirra sem stunda fiskeldi og hins
vegar þeirra sem standa vilja vörð
um náttúruna.
Sjókvíaeldi í opnum kvíum er langt
í frá áhættulaus starfsemi (jafnvel
þótt litið sé fram hjá því að notaður sé
kynbættur laxastofn af norskum upp-
runa sem er erfðafræðilega frábrugð-
inn íslenskum laxastofnum). Þessu
hafa aðrar þjóðir fengið að kynnast.
Hugsanleg erfðablöndun getur brotið
niður náttúrulega laxastofna í ís-
lenskum ám, sjúkdómar og laxalús
geta magnast með óafturkræfum,
skelfilegum afleiðingum fyrir náttúr-
una. Um leið er mikilvægum stoðum
kippt undan búfestu í öðrum sveitum
landsins. Og enn vitum við lítið sem
ekkert um hvort og hvaða áhrif sjó-
kvíaeldi hefur á uppeldisstöðvar
nytjastofna hér við land.
Nýting veiðihlunninda er mikilvæg
í mörgum sveitum og er forsenda
byggðafestu. Þingmenn verða að hafa
þetta í huga þegar þeir móta lagaum-
gjörð um fiskeldi. Þeir verða að virða
sjónarmið veiðiréttarhafa sem byggja
afkomu sína að stórum hluta á veiði-
réttartekjum. Fjárhagslegir hags-
munir bænda eru samofnir byggða-
festu og lífvænlegum sveitum.
Spila ágætlega saman
Ég er ekki andstæðingur sjókvía-
eldis en ég er sannfærður um að til
langrar framtíðar farnist okkur best
– og þá ekki síst þeim sveitarfélögum
sem vilja nýta tækifæri til atvinnu-
uppbyggingar – að fara varlega í sak-
irnar. Við þurfum að stórauka rann-
sóknir en um leið ýta með skipulegum
hætti undir nýjungar í fiskeldi og
auka fjárhagslega hvata til að stunda
fiskeldi á ófrjóum fisk eða í lokuðum
kvíum. Það er hægt að tryggja að til
verði öflug sjálfbær atvinnugrein sem
hefur vernd lífríkisins að leiðarljósi.
Með þeim hætti er ég sannfærður um
að ágæt sátt verði um uppbyggingu
fiskeldis á Íslandi.
Atvinnulífið og náttúruvernd geta
spilað ágætlega saman. Ég hef ítrek-
að haldið því fram í ræðu og riti að
náttúruvernd sé efnahagslegt mál, að
það séu efnahagsleg verðmæti fólgin í
því að tryggja vernd náttúrunnar. Til
framtíðar er skynsamleg nýting og
náttúruvernd ein forsenda þess að
ferðaþjónusta blómstri. Stjórnkerfi
fiskveiða er eitt merkasta framlag
okkar Íslendinga til náttúruverndar
og ætti að vera fyrirmynd annarra
þjóða í sjálfbærri nýtingu auðlinda.
Í sátt við menn og náttúruna
Eftir Óla Björn
Kárason
Óli Björn Kárason
»Hægt er að tryggja
að til verði öflug
sjálfbær atvinnugrein
sem hefur vernd lífrík-
isins að leiðarljósi. At-
vinnulífið og náttúru-
vernd spila vel saman.
Höfundur er alþingismaður Sjálf-
stæðisflokksins.
Framleiðsla eldisfisks á Íslandi 2008-2018
Þúsundir tonna af óslægðum fiski
12
10
8
6
4
2
0
2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 2018
Heimild: Hagstofan
Lax
Bleikja
Regnbogasilungur
Aðrar tegundir
Morgunblaðið/Einar Falur
Laxveiði Laxveiðimaður þreytir einn vænan í Norðurá í Borgarfirði.