Morgunblaðið - 08.05.2019, Qupperneq 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2019
Nú er til umfjöllunar
frumvarp til laga um
breytingar á ýmsum
lagaákvæðum sem
tengjast fiskeldi. Hér
er því kjörið tækifæri
fyrir íslensk stjórnvöld
að marka skýra stefnu í
málefnum fiskeldis.
Margir hafa lesið eða
heyrt um að áður en
fiskeldisleyfi er veitt
skal meta burðarþol viðkomandi
svæðis. Burðarþol (e. carrying capa-
city), sem hljómar tiltölulega einfalt,
er í raun flókið samspil margra þátta
sem teknir saman svara spurning-
unni: «Hve mikið eldi er hægt að
hafa á ákveðnu svæði án þess að
valda óafturkræfum skaða». Yfirleitt
er talað um fjóra höfuðþætti, eða
flokka þátta, sem eru: 1) eðl-
isfræðilegir þættir, s.s. hafstraumar,
súrefni og hitastig, 2) fram-
leiðslutengdir þættir, s.s. fóður og
innviðir, 3) vistfræðilegir þættir, s.s.
þörungablómi og líffræðilegur fjöl-
breytileiki og 4) samfélagslegir þætt-
ir s.s. búsetuskilyrði og atvinnutæki-
færi.
Áhættumatið sem unnið var af
Hafrannsóknastofnun er í raun einn
hluti burðarþolsmatsins en hefur
verið sett fram sem sérstakt skjal.
Það er gert með það fyrir augum að á
sem bestan hátt sé hægt að vernda
villtan íslenskan lax. Slíkt mat er
mikilvægt, um það geta allir verið
sammála, en til að slíkt mat nýtist
stjórnvöldum við úthlutun starfs-
leyfa þarf það einnig að taka til
greina þær mótvægisaðgerðir sem
mögulegar eru og líkur á að hafi áhrif
á matið. Þetta er lykilatriði. Eðlilegt
er að Hafrannsóknastofnun leiði
slíka faglega vinnu og þá í samvinnu
við fagaðila frá öðrum vísindastofn-
unum og fyrirtækjum. Slíkt samstarf
skilar sér í vandaðri ráðgjöf og
breiðri sátt um uppbyggingu fisk-
eldis. Í breytingartillögunum er lagt
til að skipuð sé samráðsefnd (2.gr.b),
að virðist til höfuðs vísindalegri
vinnu Hafrannsóknastofnunar og
samstarfsaðila. Hlutverk slíkrar
nefndar sem í sitja fulltrúar hags-
munaaðila á ekki að vera að rýna vís-
indaleg vinnubrögð Hafrann-
sóknastofnunar og samstarfsaðila,
heldur að koma sjónarmiðum hags-
munaaðila á framfæri sem hluta af
heildarráðgjöf til stjórnvalda. Það
eru jú stjórnvöld sem á endanum
bera ábyrgð á og veita starfsleyfi fyr-
ir fiskeldi. Í þessu felst góð stjórn-
sýsla þar sem vísindamenn sinna vís-
indalegu hlutverki, hagsmunaðilar
koma með sjónarmið út frá rekstr-
arlegum forsendum og stjórnvöld
sinni stjórnsýslunni.
Það er því kjörið tækifæri fyrir
ríkisstjórn Íslands að móta öfluga
stefnu í fiskeldi til að tryggja vöxt
greinarinnar með það fyrir augum að
bæði umhverfi og íbúar landsins geti
átt sér lífvænlega framtíð.
En hvert er svo framhaldið þegar
burðarþol ákveðins svæðis hefur ver-
ið metið og áhættumat liggur fyrir?
Hér komum við að þætti sem alltof
margir misskilja og rugla gjarnan
saman við burðarþolsmatið, en hér er
átt við lögbundna vöktun eldis-
starfseminnar. Á meðan burðarþol er
í dag reiknað út frá hámarkseldi mið-
að við magn súrefnis, þá er vöktun
mun ítarlegri og tekur tillit til upp-
söfnunar lífræns efnis (sem sumir
kjósa að kalla skít) undir og í ákveð-
inni fjarlægð frá eldiskvíum auk þess
Eftir Þorleif
Ágústsson og
Þorleif Eiríksson
» Til að stefnumörkun
í fiskeldi sé raunhæf
er mikilvægt að njóta
ráðgjafar vísindamanna,
bæði Hafrannsókna-
stofnunar sem og ann-
arra, enda getur engin
ein stofnun haft á herð-
um sínum alræðisvald
þegar kemur að svo
mikilvægum málaflokki.
Þorleifur
Eiríksson
Þorleifur Ágústsson er fiskalífeðlis-
fræðingur. Þorleifur Eiríksson er
dýrafræðingur.
hag@norceresearch.no the@rorum.is
Samvinna vísindaaðila
og stjórnvalda er lykill
að vel heppnuðu fiskeldi
sem fjölbreytni lífríkisins er skoðuð
og mat lagt á breytingar.
Mikilvægt er að vöktun sé unnin
af óháðum fagaðila, ekki síst í ljósi
þess að eldisaðilar bera ábyrgð á því
að vöktun sé framkvæmd og því
óeðlilegt að sami aðili geri burð-
arþolsmat og sinni svo vöktun. Það
er því slæmt að í nýrri tillögu um
breytingar á fiskeldislögum (6.gr. b)
sé lagt til að Hafrannsóknastofnun
sinni bæði mati á burðarþoli og
vöktun. Slíkt mun skapa hagsmuna-
árekstra og valda því að mikilvægi
óháðra rannsókna sé kastað fyrir
róða og öðrum fagaðilum, hvort sem
um er að ræða háskóla eða einkafyr-
irtæki, sé meinuð þátttaka í rann-
sóknum er tengjast lífríki Íslands.
Til að stefnumörkun í fiskeldi sé
raunhæf er mikilvægt að njóta ráð-
gjafar vísindamanna – bæði Haf-
rannsóknastofnunar sem og ann-
arra, enda getur engin ein stofnun
haft á herðum sínum alræðisvald
þegar kemur að svo mikilvægum
málaflokki.
Með þessu móti mun nást fram
meginmarkmið laga um fiskeldi,
sem er að skapa skilyrði til upp-
byggingar fiskeldis og efla þannig
atvinnulíf og byggð í landinu og
tryggja verndun villtra nytjastofna.
Þorleifur
Ágústsson
Vegurinn til upprisu
lífsins getur sann-
arlega verið þyrnum
stráður. Jafnvel háll,
þungur og torfær.
Hann getur verið
brattar brekkur hvers
kyns vonbrigða og
áfalla vegna sjúkdóma
eða slysa, marg-
víslegra sorga, höfn-
unar, einmanaleika,
óréttlætis eða brotinnar sjálfs-
myndar. Og ekki síst vegna ósættis
í samskiptum og óuppgerðra mála
sem plaga og lama hug okkar og
jafnvel löngun til þess að vera.
Ljósið vinnur á myrkrinu
En ljósið kom í heiminn. Frels-
arinn Jesús. Ljósið sem er lífið sjálft.
Hann sem er vegurinn, sannleik-
urinn og lífið. Hann sem er upprisan
og lífið. Hann sem sagði: Sá sem trú-
ir á mig mun lifa þótt hann deyi.
Hann er andi kærleikans í þessum
heimi. Er einn fær um að gefa frið í
hjarta sem æðri er öllum mann-
legum skilningi. Hann er andi fyr-
irgefningar og sátta. Hann sem sætti
heiminn við sig. Tók á sig afbrot
okkar, brenglaðar
hugsanir og syndugar
gjörðir. Hann sem
einn er fær um að af-
rugla okkur. Því
reynslan sýnir að við
ráðum eitthvað svo
skelfing illa við okkur
sjálf. Hann sem er
vorið, vonin og nýtt
upphaf. Hann sem
einn megnar að gefa
líf í fullum blóma um
eilífð. Sá sem fylgir
honum mun aldrei að
eilífu deyja.
Andaðu á okkur
upprisukrafti þínum
Þess vegna erum við mörg sem
viljum fá að biðja þig um að anda
á okkur þínum heilaga góða anda
svo að líf okkar mætti bera ávöxt
þér til dýrðar, fólki til blessunar
og sjálfum okkur til heilla.
Guð kærleikans og lífsins, frið-
arins og ljóssins, miskunna þú
okkur. Veit okkur þá náð þína að
þiggja það að fá að vera farvegir
kærleika þíns og friðar, fyrirgefn-
ingar og fagnaðarerindis þíns um
sáttina, vorið og vonina, ljósið og
lífið.
Veit okkur að njóta stund-
arinnar í ljósi eilífðarinnar. Hjálp-
aðu okkur að lifa hverja stund
með vorið vistað í sálinni, sólina
og eilíft sumar í hjarta. Því ham-
ingjan felst í því að vera með him-
ininn í hjartanu. Takk fyrir lífið!
Með kærleiks- og friðarkveðju.
Lifi lífið!
Upprisan og lífið
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
Sigurbjörn
Þorkelsson
» Veit okkur að njóta
stundarinnar í ljósi
eilífðarinnar. Hjálpaðu
okkur að lifa með vorið
vistað í sálinni, sólina og
eilíft sumar í hjarta.
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og aðdáandi lífsins.
Flugfélag Íslands,
síðar Flugleiðir og nú
Icelandair, hefur lengi
verið eitt af óskabörn-
um Íslands. Fyrir-
tækið hefur verið uppi-
staðan í þeim vef er
tryggir okkur góðar
samgöngur út í heim.
Það hefur einnig verið
góður landkynnir og
sýnt vel með störfum
sínum að það vill vera
traust fyrirtæki og til fyrirmyndar
um margt. Ég hef oft dáðst að störf-
um þess.
Hótel þess hafa tekið þessa sömu
stefnu og kallað á traust þeirra sem
hafa notið þjónustunnar. Í stefnu
þeirra, sem birt er á vef Icelandair
Hotels, segir m.a.: „Við viljum hafa
samfélagsábyrgð að leiðarljósi.“ Þau
eru græn hótel, gera sér grein fyrir
ábyrgð sinni gagnvart umhverfinu
og hafa fengið ISO 14001 umhverf-
isvottun. Þau segja: „Umhverfisvit-
und okkar teygir sig einnig í nær-
umhverfi okkar, en Icelandair
hótelin hafa öll fengið viðurkenn-
ingar fyrir lóðina og umhverfi sitt.“
Hótelin segjast vilja skapa „vettvang
menningarlegrar samræðu í sam-
félaginu“. Með því vilja þau sam-
félagsábyrgð í verki.
Nokkur Icelandair-hótelanna
tengjast einnig Hilton-keðjunni, hót-
elum í fremstu röð, sem hafa afar
sterk orð um menningarlega ábyrgð í
sínum codex ethicus, ekki síst þar
sem álitamál koma við sögu. Hótelið,
sem nú á að reisa að hluta til í Vík-
urkirkjugarði, á að verða í þeirra
hópi.
Þegar ég hugsa um bygginguna
þar og ber vinnubrögð Lindarvatns,
framkvæmdaaðilans sem Icelandair
á helmingshlut í, saman við sam-
félagsábyrgð og menningarlega vit-
und Icelandair Hotels,
þá skil ég ekki hvernig
félag með svo göfug
áform, sem ég hef lýst,
getur talið sig þekkt
fyrir það sem þar hefur
gengið á. Ráðist er á
elsta minningar- og
menningarreit í höfuð-
borginni, Víkur-
kirkjugarð. Fyrst er
fengið leyfi til fornleifa-
rannsókna og það síðan,
í bága við öll lög og regl-
ur, nýtt til að tæma hótelgrunninn af
líkamsleifum forfeðra okkar sem þar
lágu. Með þessu segja forsvarsmenn
Lindarvatns í þekkingarleysi sínu
engan kirkjugarð þarna lengur.
Heitir þetta að sýna samfélagslega
eða menningarlega ábyrgð?
Verði þetta lýðum ljóst mundi ég í
sporum eigenda óttast að það yrðu
fleiri en ég og mínir líkar sem ekki
myndu hafa slíkan gististað í for-
gangi.
Icelandair eða Icelandair Hotels
hafa aldrei komið sjálf inn í þá um-
ræðu sem verið hefur um Víkurgarð
og örlög hans. Ég kalla á þátttöku
fyrirtækjanna í þessari umræðu og
þá ekki síst skýringu á hvernig bygg-
ing hótels á slíkum stað samræmist
göfugum sjónarmiðum óskabarna Ís-
lands.
Orðstír Icelandair
Hotels
Eftir Þóri
Stephensen
Þórir
Stephensen » Verði þetta lýðum
ljóst mundi ég í
sporum eigenda óttast
að það yrðu fleiri en ég
og mínir líkar sem ekki
myndu hafa slíkan gisti-
stað í forgangi.
Höfundur er fyrrverandi
dómkirkjuprestur og staðarhaldari í
Viðey.
Dýrabær Smáralind, Kringlunni, Reykjanesbæ og Akranesi | Byko Selfossi
Fiskó Garðabæ | Heimkaup | Hundaheppni | Sími 511 2022 | dyrabaer.is
NÁTTÚRULEG INNIHALDSEFNI
bragðgott – hollt – næringarríkt
– fyrir dýrin þín